Tímabundin endastöð Strætó við Skúlagötu
Framkvæmdir fela í sér að núverandi bílastæði við Skúlagötu á móts við gatnamót Skúlagötu/Klapparstígs verði endurgerð sem endastöð fyrir Strætó. Endastöðin er með miðeyjar fyrir stoppistöðvar fyrir fimm Strætóleiðir og starfsmannaaðstöðu fyrir vagnstjóra.
Áætlaður framkvæmdatími: 07.03.2024 -20.05.2024
Myndir
Hvað verður gert?
Tímabundin stoppistöð Strætó vegna framkvæmda á Hlemmi.
Nánari upplýsingar um leiðakerfisbreytingar Strætó vegna framkvæmda á Hlemmi.
Hvernig gengur?
Apríl 2024
Vinna við veitulagnir er að mestu leyti lokið. Búið er að setja upp ljósastaura og er vinna við yfirborðsfrágang í gangi. Einnig er verið að undirbúa jarðveg og vinnu við undirstöður fyrir gámahús sem afhent verður í byrjun maí.
Hver koma að verkinu?
Síðast uppfært 17.04.2024