Suðurborg - utanhússviðgerðir

Viðgerð á göflum leikskólans er í framkvæmd sumarið 2025.
2024-2025
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Útlitsmyndir

Hvað verður gert?

Hönnuð var ný klæðning á gaflveggi Suðurborgar. Reiknað er með framkvæmdum yfir sumarið 2025 og þeim ljúki um haustið. (sept-okt) 

Hvernig gengur?

Apríl 2025

Búið er að bjóða verkefnið út og bárust Þrjú tilboð frá bjóðendum vegna framkvæmdar á utanhúss klæðningu á göflum Suðurborgar leikskóla.

Kappar ehf voru lægstir og gegnið verður til samninga við þá.

Aðilar verktaka ætla að útbúa verkáætlun fyrir verkið en áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí.

Verklok samkvæmt útboðs- og samningsskilmálum er 30. september 2025.

Júlí 2024

Hönnun er yfirstandandi. 

okt 2024

Hönnunargögn er langt komin reiknað er með að verkið fari í útboð fljótlega eftir áramót

Hver koma að verkinu?

Reykjavíkurborg

Verkkaupi

Nordic-Arch (áður Arkþing )

Hönnun og eftirlit

Kappar ehf

Verktaki
Síðast uppfært 03.04.2025