Rimaskóli - loftræsikerfi og innanhússfrágangur
Hvað verður gert?
Framkvæmdin felur í sér uppsetningu á fullbúnu loftræsikerfi í tveimur álmum Rimaskóla. Loftræsikerfið verður fullhannað inn- og útsogskerfi með varmaendurvinnslu. Núverandi útsogskerfi verður lagt af en samhliða verða kerfisloft endurnýjuð, innveggir málaðir og salerni endurnýjuð.
Framkvæmdinni verður áfangaskipt. Hafist verður handa á álmu 1 (syðri álmu) sumarið 2026 og áætlað að framkvæmdum ljúki á haustmánuðum sama árs. Áætlað er að hefja framkvæmdir á álmu 2 (nyrðri álmu) sumarið 2027 og að framkvæmdum ljúki þá um haustið.
Umfang framkvæmda kallar á að álmurnar séu tæmdar meðan framkvæmdum stendur. Tilfærslur á skólastarfi eru leystar innanhúss og í samstarfi við frístundaheimili.
Hvernig gengur?
Mars 2026
Útboðsheimild samþykkt í borgarráði.