Leikskólinn Laugasól - niðurrif og nýbygging
Hvað verður gert?
Áætlaðar voru gagngerar endurbætur á Laugaborgarhúsnæði Laugasólar. Við upphaf framkvæmda komu í ljós verulegir ágallar á burðarvirki hússins og voru því framkvæmdir stöðvaðar.
Nú liggur fyrir ákvörðun um niðurrif hússins og uppbyggingu nýs 10 deilda leikskóla þess í stað. Ráðgert er að ný leikskólabygging muni leysa hvorutveggja Lækjarborgar- og Laugaborgarhúsnæði Laugasólar af hólmi og samhliða fjölga leikskólaplássum í hverfinu umtalsvert.
Hvernig gengur?
Maí 2026
Unnið er að nýju deiliskipulagi svo sækja megi um heimild til niðurrifs á Laugaborg. Samhliða er unnið að frumhönnun nýs leikskólahúsnæðis á reitnum.
Maí 2025
Spretthópur borgarstjóra um leikskólauppbyggingu skilar frá sér tillögu um að Laugaborgarhúsnæðið verði rifið og þess í stað byggður nýr 10 deilda leikskóli sem rúma muni alls 180 börn.
Ráðgert er að ný leikskólabygging muni leysa hvorutveggja Lækjarborgar- og Laugaborgarhúsnæði Laugasólar af hólmi og samhliða fjölga leikskólaplássum umtalsvert.
Desember 2024
Samþykkt í borgarráði að hætta framkvæmdum við endurgerð hússins og og segja upp verksamningi við verktaka. Samhliða er Umhverfis- og skipulagssviði falið að deiliskipuleggja lóðina upp á nýtt með niðurrif húsnæðisins að markmiði og uppbyggingu nýs leikskólahúsnæðis þess í stað.
Vetur 2024
Við breytingar á húsinu kom í ljós að burðarviki hússins var lélegra en gert var ráð fyrir. Ásamt því kom í ljós að undirstöður hússins og burðarhæfi jarðvegsins undir húsinu voru ekki nægjanleg.
Verið er að skoða næstu skref varðandi framtíðar uppbyggingu.
Haust 2024
Niðurrif og hreinsun að innan hófst í maí 2024. Gluggar fjarlægðir. Grafið frá húsi til að koma fyrir nýjum dren- og fráveitulögnum. Í ljós kom að engir sökklar eru undir húsinu og ekki hægt að koma fyrir hefðbundnum drenlögnum meðfram því. Verk var stöðvað.
Fengin var verkfræðistofa til að gera úttekt á undirstöðum hússins og fyllingu undir því.
Verulegur ágalli er talinn á undirstöðum og ekki raunhæft að halda verki áfram án frekari skoðunar.