Leikskólinn Klambrar, endurgerð lóðar 2023, 2. áfangi (seinni áfangi).
Leikskólinn Klambrar, endurgerð lóðar 2023, 2.áfangi - myndir
Hvað verður gert?
Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Hvernig gengur?
Desember
Smíðavinna á lóð hafin, t.d. setbekkir og grinverk í kringum ungbarnasvæði, stefnt að því að klára smíðavinnu og aðra verkliði sem eftir eru í desember. Ungbarnarennibraut er kominn og verið að setja niður. Beðið er eftir þverslám í rólur áður en klárað er að setja þær upp.
Nóvember
Útikennslusvæði klárarð, jafnvægisdrumbar settir upp , stubbalögn kláruð, stoðir fyrir regnbogagöng steyptar og reistar. Megnið af leiktækjum sett niður eins og t.d. trampólín og leikkofi. Ungbarnarennibraut og róluslár vantaði í sendingu frá leiktækjaframleiðanda, verður sett upp í desember.
Október
Búið að ljóka við uppsetningu á ljósastaurum og lömpum, lýsing komin á þennan hluta lóðar. Tyrfing í gangi í nokkuð góðri tíð. Snjóbræðsla lögð að ungbarnasvæði.
September
Upprifi, fleygun lokið, gröftur og fyllingar (jarðvegsvinna í gangi). Drenlagnir komnar niður. Einnig byrjað að reisa ljósastaura.
Ágúst
Aðstaða verktaka sett upp og farið á fullu í upprif, gröft fyllingar og drenlagnir.