Leikskólinn Hagaborg - endurgerð

Gagngerar viðhaldsframkvæmdir og endurbætur á leikskólanum Hagaborg.
2025 - 2029
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmyndir og teikningar

Hvað verður gert?

Gerð hefur verið heildstæð ástandsskoðun á megin húsnæði Hagaborgar sem byggt var árið 1958 og erum 945m2 að stærð. Ástandsskoðunin gaf til kynna verulega endurnýjunarþörf og hefur því starfsemi í húsinu verið hætt. Á lóð skólans eru einnig færanleg timburhús sem komið var fyrir árið 2022 og heldur starfsemi áfram í þeim.

Á haustmánuðum árið 2025 var farið í valkostagreiningu á verkefninu en í kjölfar hennar var ákveðið að ráðast í heildstæða endurgerð á húsnæðinu. Þær framkvæmdir grundvallast á:

  • Endurnýjun glugga og hurða
  • Endurnýja vatns- og rafmagnslagna
  • Endurgerð gólfs á jarðhæð og uppsetning gólfhita
  • Drenlögn í kringum bygginguna
  • Bættri hljóðvist og lýsingu
  • Uppsetning á lyftu
  • Vélrænni loftræsingu í öllum rýmum
  • Utanússklæðningu og útveggjaeinangrun

Áætlað er að framkvæmd við heildstæða endurgerð hefjist á sumar- eða haustmánuðum árið 2026. Gera má ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir í 2 – 3 ár. 

Fyrirhugað er að endurgerð húsnæðisins verði Svansvottuð.

Hvernig gengur?

Vetur 2026

Unnið er í að fullgera hönnunargögn á loka mánuðum ársins þannig að þau muni verða tilbúin til útboðsauglýsingar í desember á þessu ári. Stefnt er á að tiboð í heildarendurgerð húsnæðisins verði opnað á fyrstu mánuðum næsta árs og framkvæmdir muni þá hefjast í kjölfarið.

Vor 2026 - Haust 2026

Unnið hefur verið í hönnun á endurgerð húsnæðisins, gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði tilbúin til útboðsauglýsingu á haust mánuðum.

Meðfram hönnunarvinnu var unnið í gögnum vegna útboðs á niðurrifi innanhúss, sú vinna var tilbúin í lok vormánuða og sóst var etir tilboðum í gegnum Rammasamninga hjá Reykjavíkurborg. Atlas Verktakar framkvæma niðurrif innanhúss og miðar verkefninu vel áfram, áætlað er að verklok niðurrifs innanhúss verði á haustmánuðum 2026.

Vetur 2025 - Vor 2026

Undirbúningur og hönnun stendur yfir.

Framkvæmd hefur verið umhverfisgreining.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Verkvist

Umhverfisgreining og Svansvottun

VA arkitektar

Arkitektahönnun og hönnunarstjórn

Cowi

Ástandsskoðun, brunahönnun og hljóðvistarhönnun

VSB Verkfræðistofa

Loftræsi-, lagna-, burðarþols-, rafmagns- og lýsingarhönnun
Síðast uppfært 24.09.2026