Korpuskóli - Endurgerð lóðar 2026
Verkið snýr að endurgerð/breytingum á lóð Korpuskóla að Bakkastöðum 2, 112 Reykjavík vegna breyttrar notkunnar á húsnæði. Horft verður til hluta skólalóðar þar sem aðalleiksvæði skólans er staðsett en það svæði er alls u.þ.b 6700 m² að stærð en heildarstærð lóðarinnar er um 22.000 m². Korpuskóli verður að sérkennsluskóla fyrir eldri börn á grunnskólaaldri. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki. Bætt verður við snjóbrædd svæði á lóð. Öll aðstaða á skólalóðinni verði bætt og verði aðgengileg fyrir börn og fullorðna með mismunandi tegundir fötlunar, þar með talið hreyfihömlun, sjón- eða heyrnarskerðingu og þroskafrávik.
Maí - Ágúst 2026
Hvað verður gert?
Öll aðstaða á skólalóðinni verði bætt og verði aðgengileg fyrir
Ný leiktæki og ný yfirborðsefni með fallvörn þar sem það á við og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.
Jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Bætt verður við snjóbrædd svæði á lóð.
Hvernig gengur?
Maí 2026
Byrjun maí - Aðstöðusköpun verktaka og upprif - upprif hefst 13/5
Hver koma að verkinu?
Verkefnastjóri
Andri Þór Andrésson
Deild gatna, lóða og opinna svæða
Reykjavíkurborg
Deild gatna, lóða og opinna svæða
Reykjavíkurborg
Síðast uppfært 07.05.2026