Hlemmur og nágrenni: Rauðarástígur-Laugavegur - gatnagerð, yfirborðsfrágangur og lagnir
Hvað verður gert?
Framkvæmdin felur í endurnýjun götuhluta Laugavegs og Rauðarárstígs sunnan og austan við Hlemm. Núverandi fráveitulögn verður endurnýjuð með tvöföldu kerfi regnvatns- og skolps. Fyrirliggjandi heimæðar og niðurföll verða tengd nýja kerfinu auk nýrra svelgja í regnbeðum. Hluti hitaveitulagna í götustæði verða endurnýjaðar sem og vatnsveitulagnir.
Samfara endurnýjun lagna verður götukassi endurnýjaður að fullu með fullnaðarfrágangi undirbyggingar í samræmi við snið, gróðurbeðum blágrænna lausna, nýrri hellulögn í gang- og götustæði ásamt nýju snjóbræðslukerfi undir hellulögn. Gengið verður að fullu frá fæðistrengjum rafmagns í jörðu og verður einnig götulýsing endurnýjuð.
Tímabundinn yfirborðsfrágangur verður á svæði við Hverfisgötu þar til framkvæmdir við Borgarlínu hefjast þar. Samræma þarf hönnun þessa svæðis við það verkefni þegar hönnun þess liggur fyrir. Gert er ráð fyrir að svæðið verði nýtt sem kynningaraðstaða fyrir Hlemm verkefnið og að svæðið verði hellulagt og malbikað án snjóbræðslu.
Hvernig gengur?
Jarðvinna 1. áfanga í gangi
Nú er vinna við 1. áfanga hafin sem er götukaflinn á Rauðarárstíg. Áætlað er að jarðvinna og vinna við veitulagnir við þann áfanga klárist í lok ágúst. Í framhaldi verður fer fram vinna við snjóbræðslukerfi og yfirborsðfrágang og borgarlýsingu og er áætlað að ljúka þeirra vinnu í lok september.
Reiknað er með að vinna við áfanga á Laugaveginum geti hafist samhliða upp úr miðjum ágúst.