Hlaðhamrar 52 - Leikskóli. Endurgerð og viðbygging.

Framkvæmdin felst í endurgerð eldra húsnæðis og viðbyggingu.
Haust 2024 - Sumar 2025
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Framkvæmdin felst í endurgerð eldra húsnæðis og nýrri viðbyggingu.  

Núverandi húsnæði er gamalt gæsluvallahús og hefðbundin færanleg stofa sem bætt var við síðar samtals 126 m².
Endurgera á eldra húsnæðið og stækka.


Stækkunin er ein leikskólastofa, eldhús og tengibygging samtals 196,5 m². Eftir stækkun verður húsnæðið samtals 322,5 m². Núverandi húsnæði er byggt úr timbri og verður viðbygging einnig byggð úr timbri.

Hvernig gengur?

Maí - júní 2025

Nýbygging

Ísetningu glugga og hurða lokið.

Uppbyggingu innveggja lokið og unnið í málun og spörslun.

Samhliða er unnið í raf- og vatnslögnum. 

Lokið hefur verið við viðbyggingu nýs eldhús. 

Unnið í klæðningum utanhúss. 

 

Eldra húsnæði

Unnið hefur verið í lögnum og frágangi veggja.

Uppbyggingu innveggja lokið og unnið í málun og spörslun.

Unnið í klæðningum utanhúss. 

 

Lóðarframkvæmd

Unnið er við lóðarframkvæmd.

Byrjað er að helluleggja og setja upp leiktæki. 

Apríl 2025

Nýbygging

Unnið er í ísetningu glugga og hurða.

Byrjað er á uppbyggingu innveggja.

Samhliða er unnið í raf- og vatnslögnum. 

Lokið hefur verið við uppbyggingu nýs eldhús. 

 

Eldra húsnæði

Unnið hefur verið í lögnum og frágangi veggja.

 

Lóðarframkvæmd

Byrjað er á lóðarframkvæmd.

Mars 2025

Nýbygging

Búið er að loka og þétta húsi. 

Vinnu við gólfhita og gólfílögn lokið.

 

Eldra húsnæði

Unnið hefur verið í lögnum og frágangi veggja.

Hver koma að verkinu?

Verkkaupi

Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Skrifstofa framkvæmda og viðhalds

Eftirlit

Ferill ehf.

Verktaki og byggingarstjórn

Húsasmíði ehf.
Síðast uppfært 27.06.2025