Héðinsreitur (Vesturvin) - Yfirborðsfrágangur 2026

Verkið felst í yfirborðsfrágangi framan við ný hús á Héðinsreitnum við gatnamót Ánanausta og Vesturgötu.
Framkvæmdatími: Maí 2026 - Desember 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Verkið felst í yfirborðsfrágangi á Héðinsreit eða Vesturvin eins og uppbyggingarreiturinn er einnig kallaður.

Framkvæmdasvæðið er við gatnamót Vesturgötu og Ánanausta og upp Vesturgötu. Verkið felst að mestu í hellulögn á nýjum gönguleiðum, upphækkaðrar gönguþverunar yfir Vesturgötu ásamt gerð gróðurbeða og uppsetningu ljósastólpa.

Hvernig gengur?

Júní 2026

Tafir urðu á verkstöðu verktaka og tókst ekki að hefja framkvæmdir eins fljótt og áætlað var. Verktaki hefur sagað malbik og stefnir á að hefja upprif í byrjun júlí. 

Maí 2026

Reykjavíkurborg hefur samið við Kröflu ehf. sem verktaka framkvæmda. Verkfræðistofa Reykjavíkur verður með eftirlit með framkvæmdaverki.

Áætlað er að famkvæmdir hefjist í byrjun júní.

Hver koma að verkinu?

Verktaki

Krafla ehf.

Eftirlit framkvæmda

Verkfræðistofa Reykjavíkur

Verkefnastjórnun

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu
Síðast uppfært 25.06.2026