Héðinsreitur (Vesturvin) - Yfirborðsfrágangur 2025

Verkið felst í yfirborðsfrágangi framan við nýtt hús á Héðinsreitnum við Mýrargötu 41 og 43 ásamt gróðurbeðum og nýjum götukanti við Ánanaust.
Framkvæmdatími: Júlí 2025 - Júlí 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Verkið felst í yfirborðsfrágangi á Héðinsreit eða Vesturvin eins og uppbyggingarreiturinn er einnig kallaður.

Framkvæmdasvæðið er að mestu framan við Mýrargötu 41 og 43 en einnig frágangur á götukanti og gróðurbeðum framan við Ánanaust 1 og 3. Verkið felst að mestu í hellulögn á nýjum stígum ásamt gerð gróðurbeða og uppsetningu ljósastólpa.

Hvernig gengur?

Júní 2026

Verktaki hefur ekki náð að planta í gróðurbeð en stefnt er að ná því á næstu vikum.

Apríl 2026

Yfirborðsfrágangi og hellulögn er lokið að mestu leiti. Búið er að setja jarðveg í gróðurbeð en plöntun er ekki lokið. Plöntun og niðursetning gróðurs er áætluð á næstu vikum.

Hedinsreitur-2026-04-22-b Hedinsreitur-2026-04-22-a

Nóvember 2025

Verkið gengur ágætlega og er fimmtungi útboðsverks lokið. Nýjum myndum af verksvæðinu sem teknar voru 26. nóvember hefur verið bætt inn á síðuna.

Búið er að setja út nýjan forsteyptan kant í hringtorg og verið er að vinna í nýjum kanti meðfram Ánanaustum. Einnig er vinna við að koma fyrir tilsöguðu grágrýti milli hellulagnar og gróðurbeðs vel á veg komin.

Verktaki mun leggja áherslu á að komast sem lengst með hellulögn framan við Mýrargötu 43 fyrir jól.

Hver koma að verkinu?

Verktaki

Krafla ehf.

Eftirlit framkvæmda

Verkfræðistofa Reykjavíkur

Verkefnastjórnun

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds
Síðast uppfært 25.06.2026