Esjumelar, Norðurgrafarvegur og Bronsslétta - Gatnagerð og lagnir

Um er að ræða heildarframkvæmdir við gerð gatna, jarðvegsskipti fyrir göngu- og hjólastígum og lagna á Esjumelum. Verkið felst í megindráttum í gerð nýrra gatna og fullnaðarfrágangi stofnlagna fráveitu, skólplagna og vatns í götustæði ásamt frágangi stofnlagna hitaveitu, rafmagns og ljósleiðara í gangstéttarstæði.
Október 2022 - Desember 2023
Undirbúningur
Hafið
Lokið

Esjumelar framkvæmd

Hvað verður gert?

Fullnaðarfrágangur götulýsingar og heimæða aðliggjandi lóða er einnig hluti verksins. Verktaki skal rífa núverandi yfirborð í hluta götustæða, jarðvegsskipta undir nýjum götum, leggja stofnlagnir í götustæði og stígstæði, ganga frá yfirborði með púkkmulningi undir eitt lag af malbiki sem verður neðra malbikslag við endanlegan frágang yfirborðs.

Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:

  • Rif og förgun á malbiki á hlutasvæðum.
  • Niðurtekt og enduruppsetning götuskilta og ljósastaura.
  • Uppgreftri fyrir götustæðum.
  • Fullnaðarfrágangur fyllinga undir nýjar götur, göngustíga og hjólastíga.
  • Fullnaðarfrágangur stofnlagna ofanvatns, skólps og vatns í götustæði.
  • Fullnaðarfrágangur stofnlagna hitaveitu, rafveitu, Mílu og Ljósleiðarans.
  • Fullnaðarfrágangur heimæða að aðliggjandi lóðum.
  • Fullnaðarfrágangur púkklags ofan á nýja fyllingu undir malbik.
  • Fullnaðarfrágangur á neðra malbikslagi ofan á púkkmulning í götustæðum.

Hvernig gengur?

Desember 2023

Í lok desember 2023 er framkvæmdum að mestu lokið. Lokafrágangur er áætlaður júní 2024.

Síðast uppfært 12.03.2024