Endurgerð á grenndarstöðvum í Reykjavík 2025
Hér fara fram endurbætur á fjórum grenndarstöðvum í Reykjavík, við Orrahóla, Dalshús, Streng og Seljabraut
Helstu verkliðir eru upptaka á núverandi yfirborði og yfirborðsefnum, jarðvinna, hellu- og kantsteinslögn, grasþakning og smíði timburskjólveggja.
Yfirlitsteikningar og myndir
Hvernig gengur?
september 2025
Fallið hefur verið frá framkvæmdum við Streng og leitað er að annarri staðsetningu fyrir grenndarstöðina.
september 2025
Framkvæmdum er að mestu lokið við Seljabraut en einhver bið er á framkvæmdum við Streng. Beðið er eftir leyfi til graftar nálægt lifandi lögnum.
ágúst 2025
Framkvæmdum er að mestu lokið við Dalhús og við Orrahóla er vinna langt komin. Í viku 34 eru framkvæmdir að fara af stað við Seljabraut og í framhaldinu verður byrjað á framkvæmdum við Streng.
júní 2025
Verkið er í byrjunarfasa og framkvæmdir eru að fara af stað .
júlí 2025
Framkvæmdir eru farnar af stað og er byrjað á grenndarstöð við Dalhús
Hver koma að verkinu?
Verkkaupi
Borgartún 12–14
105 Reykjavík
Verkefnastjóri verkaupa
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar