Leikskólinn Borg - Arnarborg - viðhaldsframkvæmdir

Unnið að margvíslegum viðhalds- og endurbótaverkefnum í Borg - Arnarborg.
2026 - 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Hvað verður gert?

Unnið er að margvíslegum viðhalds- og endurbótaverkefnum í Borg - Arnarborg. Verkefnið samanstendur af:

  • Þakskiptum og útskiptum á þakglugga milli bygginga
  • Frárif léttra gólfa - einangrað og steypt þeirra í stað
  • Lagning gólfhita
  • Endurnýjun frárennslis- og neysluvatnslagna
  • Uppsetning loftræsikerfa
  • Annar tilfallandi frágangur

Áætlað er að framkvæmdir taki um 12 mánuði eftir að undirbúnings-, hönnunar- og útboðsvinnu er lokið.

Hvernig gengur?

Október 2026

Framkvæmdir við þak hefjast á næstu dögum og hefst vinna við næstu verkliði svo í kjölfarið. Gert er ráð fyrir 12 mánuðum í framkvæmdatíma.

September 2026

Hönnunarvinnu fyrir gólfhita, nýjum frárennslis- og neysluvatnslögnum og loftræsikerfi er lokið. Verið er að endurhanna þak og útfærslu á þakglugga. Útboðsferli hefst þegar allri hönnunarvinnu er lokið.

Júní 2026

Verið að teikna frárennslis- og neysluvatnslagnir og gólfhita.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi.

Cowi

Hönnun og ráðgjöf.

K16

Verktaki
Síðast uppfært 29.10.2026