Arnarborg - viðhaldsframkvæmdir

Unnið að margvíslegum viðhalds- og endurbótaverkefnum í Borg - Arnarborg.
2026 - 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Hvað verður gert?

Unnið er að margvíslegum viðhalds- og endurbótaverkefnum í Borg - Arnarborg. Verkefnið samanstendur af:

  • Þakskiptum og útskiptum á þakglugga milli bygginga
  • Frárif léttra gólfa - einangrað og steypt þeirra í stað
  • Lagning gólfhita
  • Endurnýjun frárennslis- og neysluvatnslagna
  • Uppsetning loftræsikerfa
  • Annar tilfallandi frágangur

Áætlað er að framkvæmdir taki um 12 mánuði eftir að undirbúnings-, hönnunar- og útboðsvinnu er lokið.

Hvernig gengur?

September 2026

Hönnunarvinnu fyrir gólfhita, nýjum frárennslis- og neysluvatnslögnum og loftræsikerfi er lokið. Verið er að endurhanna þak og útfærslu á þakglugga. Útboðsferli hefst þegar allri hönnunarvinnu er lokið.

Júní 2026

Verið að teikna frárennslis- og neysluvatnslagnir og gólfhita.

Apríl 2026

Verið að rífa niður loftaplötur, rakasperru og einangrun í þaki. Búið er að mynda allar lagnir undir leikskólanum.

Unnið að útfærslu að nýrri þakuppbyggingu. 

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi.

Cowi

Hönnun og ráðgjöf.
Last updated 03.09.2026