Arnarborg - Endurgerð lóðar 1.áfangi 2024

Verkið snýr að endurgerð á lóð leikskólans Borg/Arnarborga við Maríubakka 1, 109 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á vesturhluta leikskólalóðar en það svæði er u.þ.b 2070 m² að stærð. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Júní 2024 - Mars 2025
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Framkvæmdir við lóð Arnarborgar - Myndir

Hvað verður gert?

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki. Lýsing bætt og drenað í kringum byggingu.

Hvernig gengur?

Júní

Upprif á nyrðri hluta lóðar vestan megin.

Hver koma að verkinu?

Garðaþjónusta Reykjavíkur

Verktaki í verki. Verkstjóri á verkstað er Hjörleifur Björnsson.

Fannar Geirsson

Eftirlitsmaður í verki

Andri Þór Andrésson

Verkefnastjóri í verki.
Síðast uppfært 19.11.2024