Álfsnes - Víðinesvegur

Nýr vegur frá tengivegi Björgunar við Víðinesveg er undirbúinn. Áætlun verksins gerir ráð fyrir nýjum vegi sunnan við jarðgerðarstöðina. Vegurinn kemur í svæði sem búið er að afmarka fyrir hugsanlega legu Sundabrautar. Gert er ráð fyrir vegi sem er með 7 metra breiðu slitlagi og 1 metra öxlum beggja megin.
Desember 2023
Undirbúningur
Hafið
Lokið

Álfsnes

Hvað verður gert?

2023 - Nýr vegur frá tengivegi Björgunar við Viðinesveg. Áætlun verksins gerir ráð fyrir nýjum vegi sunnan við jarðgerðarstöðina. Vegurinn kemur í svæði sem búið er  að afmarka fyrir hugsanlega legu Sundabrautar. Gert er ráð fyrir vegi sem er með 7 metra breiðu slitlagi og 1 metra öxlum beggja megin. Nokkur óvissa fylgir þessum hluta verksins má þar nefna t.d.:

  • Rif mannvirkja, hús mögulega í vegstæðinu.
  • Núverandi jarðvegur, dýpi á klöpp og/eða mýri, verulega óvissa varðandi jarðvegsskipti og uppbyggingu vegar.  

2024 - Áætluð er styrking / viðhald núverandi Víðinesvegar frá Vesturlandsvegi að jarðgerðarstöð Sorpu. Breikkun, styrking og malbikun slitlags 7,0 m á breidd á núverandi Víðinesvegi frá Vesturlandsvegi að jarðgerðarstöð Sorpu. 2.500 m

Hver koma að verkinu?

Verkkaupi

Reykjavíkurborg og Veitur ohf.

Verkefnisstjóri

Ásgeir Marinó Rudolfsson

Eftirlit framkvæmda

Baldvin Jónbjarnarson - Efla Verkfræðistofa
Síðast uppfært 12.03.2024