Röskun á rafrænni þjónustu vegna netárásar
Rafræn þjónustukerfi Reykjavíkurborgar liggja enn niðri af öryggisástæðum eftir alvarlega netárás sem gerð var á hluta tölvukerfa borgarinnar í gær. Gripið var til þessara ráðstafana til að verja kerfi og gögn borgarinnar.
Starfsfólk borgarinnar vinnur nú með sérfræðingum Syndis og CERT-IS að því að meta umfang árásarinnar, tryggja öryggi kerfanna og koma þjónustunni í eðlilegt horf eins fljótt og unnt er.
Gera má ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga. Sum þjónustukerfi kunna að vera óaðgengileg, að öllu leyti eða að hluta, meðan unnið er að því að tryggja öryggi þeirra og virkni. Vinna við að koma kerfunum aftur í gagnið stendur yfir og vonast er til að hægt verði að opna fyrir aðgang að einstökum kerfum síðar í kvöld eða í fyrramálið. Ekki liggur þó fyrir hvenær öll kerfi verða að fullu komin í lag.
Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem fram vindur.