Markaðskönnun fyrir byggingu leikskóla og skólahúsnæðis á lóðum borgarinnar
Reykjavíkurborg óskar eftir viðræðum við uppbyggingaraðila vegna hönnunar og uppbyggingar leikskóla á leigulóðum að Njálsgötu 70, Njálsgötu 89, Dyngjuveg 18, Leirulæk 6 og Kvistalandi 26.
Að auki er óskað eftir viðræðum við uppbyggingaraðila vegna hönnunar og uppbyggingar skólahúsnæðis fyrir unglingadeild Vogaskóla að Sólheimum 29-35.
Með uppbyggingu leikskóla og skólahúsnæðis fyrir unglingadeild Vogaskóla verða stigin mikilvægt skref í átt að því að mæta aukinni þörf fyrir skóla- og leikskólapláss í borginni og tryggja börnum öruggt og vel búið umhverfi til leikskóladvalar og náms. Um er að ræða lóðir á mismunandi stöðum í borginni þar sem fyrir liggja ólíkar forsendur hvað varðar lóðarstærð, heimilt byggingarmagn og hvort að á lóðinni sé húsnæði sem þurfi að rífa. Sjá nánar útlistað hér fyrir neðan um hverja lóð. Bjóðendur munu sjá um hönnun og framkvæmdir. Teikningar og efnisval þarf að vera samþykkt af Reykjavíkurborg til að tryggja að það sé í samræmi við þarfir skólastarfs.
Skilyrði fyrir uppbyggingu er að uppbyggingaraðili útbúi á lóðunum leikskóla fyrir börn, að undanskilinni lóð Sólheima 29-35, þar sem fyrirhugað er að byggja unglingadeild fyrir Vogaskóla.
Gott aðgengi skal vera fyrir alla, þar með talið fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og hæfilegur fjöldi bílastæða miðað við staðsetningu fyrir starfsfólk og foreldra að fara með börn í leikskóla.
Húsnæðið þarf að vera hentugt, bjart, með vinnuumhverfi sem er hvetjandi, tekur vel á móti starfsfólki, börnum og foreldrum og endurspeglar góðan vinnuanda.
Stefnt er að því að gera lóðarleigusamning og eftir atvikum að þinglýsa kvöð um rekstur viðkomandi starfsemi, forkaupsrétt Reykjavíkurborgar og öðrum kvöðum sem nauðsynlegar þykja til að tryggja markmið verkefnisins.
Njálsgata 70
Á lóðinni við Njálsgötu 70 stendur 298m2 bygging frá árinu 1949. Samkvæmt fasteignaskrá er stærð lóðarinnar 1.215m2. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið og því liggur ekki fyrir heimild fyrir uppbyggingu og breytingu á húsum á lóðinni.
Ef áhugi er á því að gera breytingar á lóðinni skal nýtt deiliskipulag unnið í samráði við Reykjavíkurborg. Hafi uppbyggingaraðili hug á því að rífa húsnæðið sem á lóðinni stendur þarf að færa sterk rök fyrir niðurrifi og huga að nálægðri byggð hvað varðar uppbyggingu á lóðinni.
Reykjavíkurborg telur ástæðu til að nefna að lóðin er lítil og því heppilegri til reksturs ungbarnaleikskóla fremur en hefðbundins leikskóla, þar sem leiksvæðisþörf er minni við slíkan leikskóla. Að öðrum kosti er bent á að skoða samnýtingu við Njálsgötu 89.
Njálsgata 89
Um er að ræða óbyggða lóð að stærð 2.212m2. Í gildi er deiliskipulag frá árinu 2019 þar sem fram kemur að heimilt byggingarmagn á lóðinni sé 1.650m2. Samkvæmt skipulagi liggur fyrir heimild til nýbyggingar. Er því hægt að byggja leikskóla á lóðinni á grundvelli gildandi skipulags án þess að gera breytingar þar á.
Með vísan til auglýsingar fyrir Njálsgötu 70 er uppbyggingaraðili hvattur til að skoða samnýtingu lóðanna.
Dyngjuvegur 18 (Sunnuás)
Um er að ræða 5.943m2 lóð við Dyngjuveg 18. Á lóðinni stendur annars vegar tveggja hæða leikskólabygging frá árinu 1961, sem er 1.270m2 að stærð og hins vegar tímabundin leikskólabygging frá árinu 2023 á einni hæð, 847m2 að stærð.
Í gildi er deiliskipulag frá árinu 2005, en þann 1. október 2026 samþykkti borgarráð afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sunda sem heimilar niðurrif á núverandi mannvirkjum á lóð auk rúmra heimilda til uppbyggingar. Deiliskipulagsbreytingin hefur ekki tekið gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Leirulækur 4 og 6 (Laugasól)
Um er að ræða tvær lóðir sem samkvæmt breytingu á deiliskipulagi frá árinu 2025 skal sameina í eina lóð og reisa 10 deilda leikskóla að hámarki 2.600m2 að stærð með 200 nemendum og 60 starfsmönnum. Heildarstærð sameinaðra lóða er 8.467m2.
Samkvæmt skipulagi eru byggingar á lóð hverfandi fyrir nýjum leikskóla. Á lóð númer 4, sem er 3.199m2 að stærð stendur nú leikskólabygging sem er 321m2 að stærð. Á lóð númer 6, sem er 5.076m2 að stærð stendur nú leikskólabygging sem er 1.160m2 að stærð, útiskýli 65m2 að stærð og 63m2 færanleg kennslustofa.
Nýbygging, sem kemur í stað núverandi byggingar Laugaborgar á lóð númer 6, má vera allt að tveimur hæðum auk kjallara. Heimilt er að rífa Lækjarborg á lóð númer 4 að hluta eða í heild. Byggingarreitur fyrir færanlegar kennslustofur og útiskýli, þar með talið vegna sorpíláta, hjólageymsla og leiktækja, eru skilgreindur á uppdrætti. Heildarendurskoðun á lóðarhönnun, þar með talið leiksvæða, verður gerð í tengslum við nýja uppbyggingu á lóðinni.
Kvistaland 26
Um er að ræða 5.416 m2 lóð þar sem samkvæmt deiliskipulagi frá árinu 2022 heimilt byggingarmagn er 1.150 m2. Samkvæmt skipulaginu er niðurrif núverandi bygginga að hluta til, það er þökum fyrir utan viðbygginguna, léttum langhliðum á öllum húsum, þetta á þó ekki við um viðbygginguna, inngangi milli eldra og nýrra húss á norðanhlið og núverandi útigeymslu samtengd húsinu. Fyrir frekari upplýsingar vísast til skipulagsbreytinga samþykkt í borgarráði 13. október 2022, sem tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 8. nóvember sama ár.
Engin starfsemi er nú í húsnæði leikskólans þar sem niðurstöður ástands- og burðarþolsúttektar gáfu skýrt til kynna að best færi á því að fjarlægja undirstöður hússins í heild sinni. Frístundastarfsemi fer fram í viðbyggingu. Starfsemi leikskólans fer því fram í færanlegum kennslustofum á lóð leikskólans og við Fossvogsskóla, sem eru víkjandi þegar endurbótum lýkur.
Sólheimar 29-35
Um er að ræða 2.437 m2 lóð sem fyrirhugað er að nýta fyrir uppbyggingu skólahúsnæðis fyrir unglingadeild Vogaskóla. Að neðan má sjá hugmynd að skipulagi skólahúsnæðis á tveimur hæðum.
Á lóð númer 29-33 stendur í dag 420m2 húsnæði á einni hæð, auk kjallara, frá árinu 1961. Á lóð númer 35 stendur í dag 700m2 húsnæði á tveimur hæðum, auk kjallara og riss, frá árinu 1960.
Reykjavíkurborg hefur látið vinna ástandsskoðun fyrir byggingarnar. Fyrirliggjandi ástandsskoðun, dagsett 9. október 2026, bendir til þess að byggingarnar séu í slæmu ástandi og kunni að krefjast verulegra endurbóta, en frekari rannsóknir eru nauðsynlegar til að leggja mat á umfang skemmda og hagkvæmni endurbóta samanborið við niðurrif og nýbyggingu með tilliti til framtíðarnýtingar húsnæðisins.
Í gildi er deiliskipulag samþykkt árið 1956 en breyta þarf deiliskipulagi áður en uppbygging hefst að nýju á lóðinni.
Markaðskönnun
Um er að ræða markaðskönnun þar sem kannaður er áhugi, geta og sjónarmið markaðarins vegna fyrirhugaðrar fjölgunar leikskólaplássa í borginni. Markaðskönnunin er liður í upplýsingaöflun Reykjavíkurborgar og felur hún ekki í sér loforð um viðskipti, heldur er henni ætlað að styðja við áframhaldandi mótun verkefnisins og ákvarðanatöku um næstu skref.
Áhugasamir eru hvattir til að leggja fram upplýsingar um reynslu sína af sambærilegum verkefnum, fjárhagslega og tæknilega getu til framkvæmda verkefnisins, ásamt tillögum og sjónarmiðum um mögulega uppbyggingu, og niðurrif ef við á.
Svör við markaðskönnuninni verða nýtt sem innra greiningar- og stefnumótunarverkfæri fyrir kaupanda.
Allar umsagnir verða skoðaðar. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að eiga í frekari samtali við aðila séu svör óljós eða ef þörf er á nánari skýringum eða upplýsingum. Óskað er eftir að aðilar skili inn gögnum og/eða lýsi yfir áhuga sínum til að gefa frekari upplýsingar með tilkynningu til Reykjavíkurborgar eigi síðar en 15. janúar 2027 á netfangið lodir@reykjavik.is.