Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 367

Endurskoðunarnefnd

Ár 2026, þriðjudaginn 24. nóvember var haldinn 367. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 10:01. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Einar Sveinn Hálfdánarson, Björn Snær Atlason, Kristín Baldursdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir. Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að árshlutareikningi samstæðu Orkuveitunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2026. 

    Snorri Hafsteinn Þorkelsson, Bryndís María Leifsdóttir og Gréta Guðnadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar: 

    Endurskoðunarnefnd hefur fengið kynningu á árshlutareikningi samstæðu Orkuveitunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2026. Nefndin þakkar greinargóða kynningu og telur að árshlutareikningurinn sé tilbúinn til framlagningar í stjórn Orkuveitunnar.

  2. Fram fer kynning á vinnu við stefnumótun Innri endurskoðunar og ráðgjafar Reykjavíkurborgar (IER) og lögð fram stefna IER fyrir tímabilið 2026-2030, dags. 5. nóvember 2026. 

    Ingunn Ólafsdóttir og Arnheiður Elísa Ingjaldsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um breytingar á samþykkt endurskoðunarnefndar.

Fundi slitið kl. 11:38

Einar S. Hálfdánarson Björn Snær Atlason

Kristín Baldursdóttir Sunna Jóhannsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð enduskoðunarnefndar frá 24.112026