Hverjar verða fallegustu jólaskreytingarnar í miðborginni?

Cafe Babalú
Skreyting 2025

Borgin vill vekja athygli á því mikilvæga hlutverki sem jóla- og aðventuskreytingar gegna í að skapa notalegt borgarumhverfi yfir vetrartímann.

Skreytingar fyrirtækja og verslana auka lífsgæði, draga fólk að miðborginni og gleðja bæði íbúa og gesti.
 
Borgin veitir viðurkenningar fyrir metnaðarfullar skreytingar og hvetur því rekstraraðila til að skreyta glugga sína og verslanir, og skapa með því hlýlega, bjarta og hátíðlega stemningu í borginni.