Skóla- og frístundaráð
Ár 2026, 23. nóvember, var haldinn 323. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 9.45.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Bjarni Fritzson formaður (D), Hafrún Kristjánsdóttir (D), Hlédís Maren Guðmundsdóttir (M), Sanna Magdalena Mörtudóttir (A), Stein Olav Romslo (S) og Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Alma Guðmundsdóttir, Samtök sjálfstæðra skóla, Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum; Hafdís Oddgeirsdóttir, stjórnendur frístundaheimila og félagsmiðstöðva og Ragnheiður Andrésdóttir, Reykjavíkurráð ungmenna. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Kaldal, Guðrún Sigtryggsdóttir og Ragnheiður E. Stefánsdóttir. Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagðar fram og kynntar niðurstöður úr könnun til foreldra barna í félagsmiðstöðvum í Reykjavík í mars 2026. SFS26110060
Guðrún Mjöll Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kl. 9.51 tekur Kristín Björnsdóttir sæti á fundinum.
Kl. 9.55 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn fagnar góðum niðurstöðum foreldrakönnunar félagsmiðstöðva og þeirri miklu ánægju sem þar kemur fram með starf þeirra. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá hversu jákvætt foreldrar meta félagsleg áhrif þátttökunnar og áhuga og umhyggju starfsfólks gagnvart börnum og ungmennum. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægt hlutverk félagsmiðstöðvanna í lífi barna og ungmenna í borginni. Mikilvægt er að gögnin séu greind eftir bakgrunnsbreytum svo mögulegt sé að fara í markvissar aðgerðir til að bæta gott starf enn frekar og stuðla að því að öll börn og ungmenni þekki starf félagsmiðstöðva og upplifi sig velkomin í félagsmiðstöðvar borgarinnar.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir greinargóða kynningu á niðurstöðum úr könnun til foreldra barna í félagsmiðstöðvum borgarinnar. Það er gott að sjá að foreldrar eru almennt ánægðir með starf félagsmiðstöðvanna og að niðurstöðurnar bera vott um metnaðarfullt og vandað starf. Niðurstöðurnar gefa mikilvæga innsýn í upplifun foreldra af frístundastarfi og nýtast vonandi vel í áframhaldandi þróun starfsins í bland við önnur gögn.
Fylgigögn
-
Lagðar fram og kynntar niðurstöður úr könnun til foreldra barna í frístundaheimilum í Reykjavík í mars 2026. SFS26110059
Guðrún Mjöll Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn fagnar góðum niðurstöðum foreldrakönnunarinnar og þeirri ánægju sem þar kemur fram með starf frístundaheimila borgarinnar. Niðurstöðurnar endurspegla mikilvægt og metnaðarfullt starf starfsfólks, sem á stóran þátt í að skapa börnum öruggt, fjölbreytt og ánægjulegt frístundastarf. Mikilvægt er að gögnin séu greind eftir bakgrunnsbreytum svo mögulegt sé að fara í markvissar aðgerðir til að bæta gott starf enn frekar. Huga þarf sérstaklega að þekkingu foreldra af erlendum uppruna á starfi frístundaheimila.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir greinargóða kynningu á niðurstöðum úr könnun til foreldra barna í frístundaheimilum borgarinnar. Það er gott að sjá að foreldrar eru almennt ánægðir og að niðurstöðurnar bera vott um metnaðarfullt og vandað starf. Athygli vekur hvað niðurstöðurnar eru almennt góðar. Mat foreldra á því hvort unnið sé að félagsþroska barna er eini þátturinn sem lækkar milli kannana. Því er mikilvægt að frístundaheimilin vinni markvisst að félagsþroska barna og að það endurspeglist í starfsáætlunum þeirra. Niðurstöðurnar gefa mikilvæga innsýn í upplifun foreldra af frístundastarfi og nýtast vonandi vel í áframhaldandi þróun starfsins í bland við önnur gögn.
Áheyrnarfulltrúi stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi forstöðumanna félagsmiðstöðva og frístundaheimila þakkar fyrir góða kynningu um starf félagsmiðstöðva og frístundaheimila. Að taka þátt í skipulögðu frístundastarfi er mikilvægur hluti af menntun barna og unglinga. Niðurstöður gefa til kynna að foreldrar eru ánægðir með starfið og finnst barnið sitt fá umhyggju og uppbyggilegt starf. Foreldrar lýsa starfsfólki sem hlýju, metnaðarfullu og traustu. Rýna þarf aðstöðu og húsnæði frístundaheimila og félagsmiðstöðva í samvinnu við forstöðumenn og leggja til umbætur þar sem aðstaðan er verst.
Fylgigögn
-
Fylgigögn
- Minnisblað
- Félagsmiðstöðin 100og1
- Félagsmiðstöðin 105
- Félagsmiðstöðin 111
- Félagsmiðstöðin Askja
- Félagsmiðstöðin Ársel
- Félagsmiðstöðin Bakkinn
- Félagsmiðstöðin Buskinn
- Félagsmiðstöðin Bústaðir
- Félagsmiðstöðin Fellið
- Félagsmiðstöðin Fókus
- Félagsmiðstöðin Frosti
- Félagsmiðstöðin Gleðibankinn
- Félagsmiðstöðin Hekla
- Félagsmiðstöðin Hellirinn
- Félagsmiðstöðin Hofið
- Félagsmiðstöðin Holtið
- Félagsmiðstöðin Hólmasel
- Félagsmiðstöðin Höllin
- Félagsmiðstöðin Laugó
- Félagsmiðstöðin Plútó
- Félagsmiðstöðin Sigyn
- Félagsmiðstöðin Tónabær
- Félagsmiðstöðin Vígyn
- Félagsmiðstöðin Þróttheimar
- Frístundaheimilið Álfheimar
- Frístundaheimilið Álftabær
- Frístundaheimilið Bakkasel
- Frístundaheimilið Brosbær
- Frístundaheimilið Dalheimar
- Frístundaheimilið Eldflaugin
- Frístundaheimilið Fjósið
- Frístundaheimilið Frostheimar
- Frístundaheimilið Gulahlíð
- Frístundaheimilið Halastjarnan
- Frístundaheimilið Hraunheimar
- Frístundaheimilið Hvergiland
- Frístundaheimilið Kátakot
- Frístundaheimilið Krakkakot
- Frístundaheimilið Laugarsel
- Frístundaheimilið Neðstaland
- Frístundaheimilið Regnbogaland
- Frístundaheimilið Regnboginn
- Frístundaheimilið Selið
- Frístundaheimilið Simbað
- Frístundaheimilið Skólasel
- Frístundaheimilið Skýjaborgir
- Frístundaheimilið Stjörnuland
- Frístundaheimilið Tígrisbær
- Frístundaheimilið Töfrasel
- Frístundaheimilið Undraland
- Frístundaheimilið Úlfabyggð
- Frístundaheimilið Vinaheimar
- Frístundaheimilið Vinasel
- Frístundaheimilið Víðisel
- Frístundaheimilið Vogasel
-
Fram fer kynning og umræða um aðgerðir gegn rasisma í skóla- og frístundastarfi. Lagt fram verklag um viðbrögð við rasisma í skóla- og frístundastarfi. SFS26110061
Dagbjört Ásbjörnsdóttir og Saga Stephensen taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Hatursorðræða á aldrei að viðgangast í skóla- og frístundastarfi. Meirihluti skóla- og frístundaráðs þakkar fyrir kynningu á aðgerðaráætlun gegn rasisma og fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið á þessu sviði í skóla- og frístundastarfi borgarinnar. Öll börn og ungmenni eiga að finna að þau séu velkomin í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar, óháð uppruna, stöðu eða stétt. Mikilvægt er að starfsfólk búi yfir þekkingu og fái þann stuðning sem það þarf til að bregðast við rasisma og hatursorðræðu, hvort sem slíkt beinist að börnum, ungmennum eða starfsfólki. Verklag við slíkum tilvikum þarf að vera skýrt og því skal ávallt fylgt. Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að unnið sé markvisst að forvörnum gegn fordómum, rasisma og hatursorðræðu í skóla- og frístundastarfi borgarinnar og árangur sé metinn af aðgerðaráætluninni.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir góða kynningu um aðgerðir gegn rasisma í skóla- og frístundastarfi. Mikilvægt er að valdefla starfsfólk til að bregðast við þegar atvik koma upp, til dæmis með örfræðslu sem gefur dæmi um viðbrögð við ákveðnum rasískum ummælum og atvikum. Skýrir verkferlar skipta öllu máli. Fulltrúinn vill líka nýta tækifærið til að bóka að rasismi og hatursorðræða á ekki að liðast í Reykjavík.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins leggur áherslu á að öll börn eigi rétt á öruggu skólaumhverfi þar sem þau njóta virðingar óháð uppruna, tungumáli og litarhafti. Í kynningu á aðgerðaáætlun gegn rasisma voru ítrekað settar fram fullyrðingar um að rasismi og notkun tiltekinna orða fælu í sér brot á alþjóðalögum. Slíkar fullyrðingar kalla á mun nákvæmari lagalega afmörkun. Nauðsynlegt er að greina á milli fordóma, óviðeigandi orðnotkunar, mismununar og háttsemi sem telst ólögmæt samkvæmt tilteknum lagaákvæðum. Fulltrúinn telur mikilvægt að viðbrögð við hegðun barna byggist á faglegu mati á aldri, þroska, ásetningi og aðstæðum og samhengi hverju sinni. Skólum ber að leiðbeina börnum og stuðla að gagnkvæmri virðingu. Gæta þarf meðalhófs og forðast ber að setja vanhugsuð ummæli sjálfkrafa í samhengi við lögbrot. Þá er ekki útséð að ofuráhersla á kynþátt geti ekki stuðlað að því sem átakinu er ætlað að leysa. Stefnumótun verður að haldast í hendur við mælanlegan árangur. Í ljósi þess er kallað eftir skýrari upplýsingum um umfang vandans, forsendur aðgerðaáætlunarinnar og hvernig árangur hennar verður metinn.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Mikilvægt er að skýr aðgerðaáætlun gegn rasisma í skóla- og frístundastarfi sé til staðar þannig að ábyrgðin á viðbrögðum við kynþáttafordómum og kynþáttahyggju í skóla- og frístundastarfi falli ekki á börn eða foreldra þeirra. Aðdraganda þess verklags sem nú hefur verið mótað má rekja til loka árs 2021 þegar undirritaður borgarfulltrúi lagði fram tillögu um að skóla- og frístundasviði yrði falið að útbúa aðgerðaáætlun gegn rasisma í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar. Markmiðið með aðgerðaáætluninni er að skýrir verkferlar séu til staðar um hvernig skuli bregðast við rasískum atvikum í skóla- og frístundastarfi þannig að skólasamfélagið bregðist skjótt og vel við í stað þess að ábyrgðin á því að eiga við slíkt falli á börn sem verða fyrir kynþáttafordómum eða foreldra þeirra. Mikilvægt er að skýrir verkferlar séu til staðar í öllu skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar og að þeim sé framfylgt.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins, sbr. 5. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 20. október 2026, um eflingu skólahljómsveita sem vísað var til meðferðar skóla- og frístundaráðs:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fjölga nemendum í skólahljómsveitum Reykjavíkur og vísi tillögunni til skóla- og frístundasviðs þar sem hún verði útfærð og kostnaðarmetin í samstarfi við skólastjórnendur skólahljómsveitanna. Fyrirkomulag fjölgunar verði í höndum skólastjórnenda skólahljómsveita og skóla- og frístundasviðs og að lokum verði tillagan kynnt í skóla- og frístundaráði og borgarráði. Gert er ráð fyrir að fjölgun nemenda í skólahljómsveitum taki gildi árið 2027.
Skóla- og frístundaráð leggur fram svohljóðandi málsmeðferðartillögu:
Lagt er til að tillögunni verði vísað til skóla- og frístundasviðs þar sem skoðaðar verði útfærslur á fjölgun nemenda í skólahljómsveitum í samstarfi við stjórnendur skólahljómsveita og þær kostnaðarmetnar.
Samþykkt. MSS26100075
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti skóla- og frístundaráðs tekur undir mikilvægi þess að efla skólahljómsveitir borgarinnar og bæta aðgengi barna að tónlistarnámi. Mikil eftirspurn eftir náminu sýnir glöggt mikilvægi starfsins. Meirihlutinn vill skoða með opnum hug hvernig hægt er að fjölga nemendum og telur rétt að mögulegar útfærslur verði unnar í samstarfi við stjórnendur skólahljómsveitanna og kostnaðarmetnar áður en ákvörðun er tekin um framkvæmd.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS26070077
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Er haldið utan um fjölda atvika sem flokkast sem rasísk í skóla- og frístundastarfi? Ef svo er þá er óskað eftir upplýsingum um tíðni þeirra atvika.
SFS26110119
-
Áheyrnarfulltrúi kennara í grunnskólum leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Haustið 2024 hófst þriggja ára tilraunaverkefni í Reykjavík þar sem upphafi skóladags unglinga í 8.-10. bekk var seinkað úr kl. 8.20 í 8.50. Hefur farið fram mat á því hversu vel breytingin hefur gefist og verður verkefninu framhaldið á árinu 2027? Mjög áhugavert væri að sjá samantekt á því hvort seinkomum og fjarvistum unglinga hafi fækkað eða fjölgað á tímabilinu samanborið við það sem áður var. Einnig hvert mat kennara, nemenda og foreldra sé á breytingunni.
SFS26110118
Fundi slitið kl. 11.45
Bjarni Fritzson Hafrún Kristjánsdóttir
Hlédís Maren Guðmundsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir
Sanna Magdalena Mörtudottir Stein Olav Romslo
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 23. nóvember 2026