Borgarstjórn - Borgarstjórn 17.11.2026

Borgarstjórn

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, sbr. 1. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember 2026:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að endurskoða aðalskipulag Reykjavíkur 2040 með vísan til 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í endurskoðuninni skal m.a. endurmeta framtíðarsýn fyrir Reykjavíkurborg, lengja skipulagstímabilið og endurskoða stefnuákvæði fyrir valin svæði og málaflokka. Umhverfis- og skipulagsráði er jafnframt falið að annast endurskoðunina og hefja þegar vinnu við gerð skipulagslýsingar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. USK26100475

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Aðalskipulag Reykjavíkur leggur grunninn að þróun borgarinnar og lífsgæðum borgarbúa til næstu áratuga. Meirihlutinn lítur á endurskoðun þess sem sameiginlegt verkefni allrar borgarstjórnar og tækifæri til að móta framtíðarsýn sem nær lengra en eitt kjörtímabil. Tryggja þarf aðkomu allra flokka frá upphafi og leita sem víðtækastrar sáttar um framtíð borgarinnar. Vinnan þarf að byggjast á fagmennsku, vönduðum greiningum og raunverulegu samráði við íbúa, atvinnulíf og nágrannasveitarfélög. Sérstök áhersla verði lögð á búsetuóskir og húsnæðisþarfir fólks á öllum æviskeiðum, nægt framboð fjölbreytts húsnæðis og að samgöngur, innviðir og þjónusta fylgi uppbyggingu. Meta þarf bæði tækifæri innan núverandi byggðar og möguleg ný byggingarsvæði, með gæði hverfa og ábyrga landnýtingu að leiðarljósi. Horfa þarf jafnvel lengra en til ársins 2050 og taka mið af fólksfjölgun, breyttri aldurssamsetningu og fjölgun smærri heimila. Tækniframfarir, orkuskipti og breytt atvinnulíf, verslun og ferðavenjur kalla jafnframt á sveigjanlegt skipulag sem getur mætt nýjum þörfum og tækifærum. Sjálfbærni, loftslagsmál, vernd grænna svæða og líffræðilegrar fjölbreytni verði mikilvæg viðfangsefni. Endurskoðunin á jafnframt að styðja áframhaldandi uppbyggingu meðan unnið er að langtímasýn. Markmiðið er fjölbreytt, aðlaðandi og heilnæm borg fyrir núverandi og komandi kynslóðir.

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Aðalskipulag Reykjavíkur leggur fram með hvað skýrustum hætti hver framtíðarsýn borgarinnar er hverju sinni. Núgildandi Aðalskipulag Reykjavíkur markaði á sínum tíma vatnaskil um þróun borgarinnar þar sem áratugaútþensla var loks stöðvuð. Í staðinn var sett fram stefna um að efla borgina inn á við og gera fjölbreyttum ferðamátum hátt undir höfði. Voru þar markmið um betri og mannvænni borg, aukna þjónustu og bætt loft- og hljóðgæði í eldri hverfum borgarinnar höfð að leiðarljósi, auk áherslna í stóra samhenginu um kolefnishlutleysi borgarinnar. Nú liggja fyrir stór verkefni sem borgin þarf að taka til skoðunar og skilgreina hvernig þau styðja sem best við vöxt borgarinnar. Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja að undirbúningur á endurskoðun aðalskipulags borgarinnar hefjist en leggja áherslu á að hún styrki þá stefnu sem mörkuð var um vöxt innan núverandi vaxtarmarka, uppbyggingu Borgarlínu, fjölbreytt húsnæði fyrir alla tekjuhópa, auknar kröfur um gróðursvæði og sólrík dvalarsvæði, Miklubrautargöng, Sæbrautarstokk og mat á kolefnisspori nýrra uppbyggingarsvæða. Endurskoðunin má ekki leiða aftur til ótakmarkaðrar útþenslu byggðar sem kostar borgarbúa meira í innviðum, tíma, losun og það sem verst er, vonds borgarumhverfis.

    Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Miðflokkurinn styður tillögu um endurskoðun aðalskipulags sem er spennandi og mikilvægt verkefni og margt jákvætt sem kemur fram í kynningu á þeim áformum. Samkvæmt greinargerð skal meðal annars meta sérstaklega hvernig nýtt aðalskipulag geti stutt við öflugar almenningssamgöngur og samgöngusáttmála. Þar blasir reyndar við að kostnaður við yfirstandandi og fyrirhugaðar framkvæmdir Borgarlínu er miklu hærri en markmið um bættar almenningssamgöngur krefjast. Þá liggur fyrir að fjármögnun Borgarlínu og samgöngusáttmála er í lausu lofti þar sem ákvarðanir Alþingis skortir um fjárveitingar og mögulega skattheimtu til að standa undir þeim, þótt skuldum sé leyft að hrannast upp hjá Betri samgöngum. Algert ábyrgðarleysi er að það eigi að koma í bakið á skattgreiðendum síðar. Því er áréttað að brýn þörf er á að endurmeta áform um Borgarlínu áður en lengra er haldið og frekari hönnun á mannvirkjum og jafnvel framkvæmdum eru boðnar út.

    Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Vinstrið er tilbúið í þá miklu og mikilvægu vinnu sem endurskoðun Aðalskipulags Reykjavíkur er. Eins bindur það vonir við að vinnan verði á breiðum lýðræðislegum grunni, í skipulegu samráði og nánu samtali við borgarbúa á öllum aldri og fjölbreytta hópa hagsmunaaðila. Aðalskipulag er ein mikilvægasta framtíðaráætlun borgarinnar og því skiptir höfuðmáli að íbúar fái raunveruleg tækifæri til að móta framtíðarsýnina frá upphafi. Til þess þarf að huga að vettvangi fyrir opið samtal og vinnu, meðal annars í hverfum borgarinnar, og tryggja að sjónarmið fjölbreyttra hópa fái vægi. Sérstaklega þarf að huga að röddum barna og ungmenna í vinnunni og flétta inn í hana marghátta víddir samfélagsins, femínískar og félagslegar, svo eitthvað sé nefnt. Þá verður endurskoðunin að byggja á skýrri samfélagslegri sýn um húsnæði og hafa loftslags- og umhverfismál, líffræðilega fjölbreytni og græn svæði í forgrunni sem og öflugar almenningssamgöngur og virka ferðmáta. Mikilvægt er að byggja á tölulegum gögnum, spám og því sem best hefur virkað í öðrum borgum. Eins þarf að draga upp skýra og raunsanna mynd í vinnunni af því hvernig best er að hrinda í framkvæmd hugmyndinni um fjölbreytt, lifandi og sjálfbær hverfi þar sem íbúar hafa greiðan aðgang að grunnþjónustu, verslun, mannlífi og grænum svæðum í göngufæri.

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands fagnar því að vilji sé til að vinna að endurskoðun aðalskipulagsins í þverpólitískri sátt. Forsenda slíkrar sáttar er víðtækt samráð við borgarbúa. Borgarhönnunarstefnan var langþráð skref fyrir íbúa og nú þarf að skerpa ákvæði hennar og festa bindandi kröfur um gæði byggðar og almenningsrýma í aðalskipulagi. Borgin þarf að mæta húsnæðisþörfum almennings en tekjulágir einstaklingar, aldraðir, og ungt fólk hafa orðið útundan. Það húsnæði sem byggt hefur verið er í litlu samræmi við þarfir þeirra sem þurfa mest á því að halda og húsnæðishringrásin hefur þannig stíflast. Því er ánægjulegt að áhersla verði lögð á ítarlegar kannanir á búsetuóskum og þörfum Reykvíkinga. Þeim þarf að fylgja raunverulegur pólitískur vilji til framkvæmda á fjölbreyttum búsetuúrræðum, þar með talið styrkingu óhagnaðardrifins húsnæðis. En byggja þarf áform um nýja íbúðarbyggð líkt og á Örfirisey og Geldinganesi á staðbundnu áhættumati vegna hækkun sjávar ásamt kostnaði við mögulegar varnir. Stórar samgönguframkvæmdir á borð við Sundabraut, Borgarlínu, og Miklubrautargöng kalla jafnframt á skýra sýn borgaryfirvalda á tengingu allra borgarhluta. Útvíkkun vaxtarmarka áður en tekist hefur að byggja upp þessa samgönguinnviði mun einungis setja enn frekara álag á samgöngukerfið og grafa undan samtengdri byggð.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar:

    Borgarstjórn samþykkir að beina því til Alþingis að við vinnu á endurskoðun sveitastjórnarlaga nr. 138/2021 verði hugað að eftirfarandi breytingu, með það að markmiði að tryggja vernd almannaeigna. Lögfest verði skilyrði um aukinn meirihluta atkvæða í sveitarstjórn, svo sem tvo þriðju hluta (2/3) atkvæða, þegar tekin er bindandi ákvörðun um sölu eða ráðstöfun á meirihlutaeign í mikilvægum innviðafyrirtækjum í eigu sveitarfélaga, s.s. veitufyrirtækjum, orkufyrirtækjum, höfnum og fjarskiptafyrirtækjum sem ráða yfir grunninnviðum.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Tillagan er felld með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands. MSS26110057

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samfylkingin leggur til við Alþingi að sveitarstjórnarlögum verði breytt til að tryggja vernd mikilvægra almannaeigna. Mikilvægir innviðir í eigu sveitarfélaga eru sameiginlegar eignir íbúa, sem oft hafa verið byggðar upp með fjárfestingum margra kynslóða. Lögfest verði að aukinn meirihluta, eða ⅔ hluta, atkvæða þurfi til að selja mikilvæg innviðafélög. Á bak við það liggur sú grunnstefna okkar jafnaðarmanna að okkur beri skylda til að verja mikilvæga almannahagsmuni og standa gegn vanhugsuðum tillögum um eignasölu sem rýra eða sólunda verðmætum eignum almennings til lengri tíma. Spor fortíðarinnar hræða, einkavæðing bankanna sem leiddi til bankahrunsins, salan á Símanum með grunninnviðum sem fóru í hendur einkaaðila og sala á eignarhlut borgarinnar í Landsvirkjun á hrakvirði, þar sem borgin samdi af sér og missti af arðgreiðslum sem hefðu numið rúmlega 72 milljörðum króna á sl. 20 árum þar af tæpum 50 milljörðum undanfarin fimm ár. Allar þessar eignasölur áttu sér stað í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Nú vill hægri meirihluti þessara flokka ásamt Viðreisn selja Ljósleiðarann, mikilvægt innviðafélag sem verndar mikilvæga almannahagsmuni, um þjóðaröryggi, baráttu gegn fjölþáttaógnum, varnir gegn náttúruvá og heilbrigða samkeppni á fjarskiptamarkaði. Samfylkingin hafnar áformum um sölu Ljósleiðarans og mun hvergi hvika í baráttunni gegn einkavæðingarstefnu hægri meirihlutans í Reykjavík.

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggst gegn tillögu Samfylkingarinnar um að aukinn meirihluta þurfi til að selja mikilvæg innviðafélög í eigu sveitarfélaga. Tillagan gerir ekki nauðsynlegan greinarmun á einkaleyfisstarfsemi veitna og rekstri fyrirtækja á samkeppnismarkaði. Til að mynda starfar Ljósleiðarinn í samkeppni við Mílu og önnur fjarskiptafyrirtæki. Mikilvægi fjarskiptainnviða leiðir ekki sjálfkrafa til þess að þeir þurfi að vera í eigu sveitarfélaga. Almannahagsmuni ber að tryggja með skýrum öryggiskröfum, virku samkeppniseftirliti og jafnræði við aðgang að þjónustu. Kjörinn meirihluti ber ábyrgð á fjárhag sveitarfélagsins og verður að hafa svigrúm til að meta eignarhald fyrirtækja út frá hagsmunum íbúa, fjárfestingarþörf og rekstraráhættu. Tillagan myndi veita minnihluta vald til að stöðva sölu án þess að sambærilegar kröfur giltu um kaup, fjárfestingar eða áframhaldandi áhættutöku. Ákvarðanir um sölu eigna borgarinnar þurfa að byggjast á vönduðu mati, gagnsæju ferli og vernd samkeppni og almannaöryggis. Markmiðið á að vera traust þjónusta og ábyrg meðferð fjármuna borgarbúa.

    Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Skaðsemi einkavæðingarhyggju á sér langa hörmungarsögu þar sem einkaaðilar hafa hagnast á kostnað almennings en þjónusta rýrnað. Víða hafa stórfyrirtæki nýtt sér þrengingar hins opinbera til að sölsa undir sig lykilkerfi á borð við vatnsveitur og rafveitur. Vinstrið vill að borgarstjórn standi vörð um eigur almennings og leggst alfarið gegn sölu almannainnviða í eigu Reykvíkinga. Hægri meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar horfir til skammvinnra gróðasjónarmiða með sölu opinberra innviða og hunsar mikilvægi þessara félaga fyrir samfélagið til framtíðar. Athyglisvert er að niðurfelling borgarstjórnarfunda nýtur ríkari lýðræðislegrar verndar en sala á félögum í eigu Reykjavíkur. Til að fella niður fund borgarstjórnar þarf slíkt að vera samþykkt mótatkvæðalaust. Til að selja dýrmæta innviði í eigu almennings þarf einfaldan meirihluta. Slíkt er hvorki eðlilegt né skynsamlegt. Vinstrið styður tillöguna um að fleiri en tólf borgarfulltrúa þurfi til að samþykkja sölu innviðafélaga enda er um að ræða veigamiklar og óafturkræfar ákvarðanir um sameiginlegar eigur okkar allra.

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands styður heilshugar herta skilmála þegar kemur að sölu innviðafélaga í eigu sveitarfélaga. Fyrirtæki í eigu sveitarfélaga eru eignir almennings og hafa verið byggð upp af margra áratuga fjárfestingu almennings í þágu almennings. Þjónustan sem fyrirtækin veita tryggja aðgengi almennings að nauðsynjum á borð við rafmagn, vatn og fjarskipti á hagstæðu verði. Allur hagnaður fyrirtækjanna renna aftur til sveitarfélaganna og stuðla að því að sveitarfélög geti fjárfest í samfélaginu. Fulltrúi Sósíalistaflokksins leggst alfarið gegn sölu á slíkum fyrirtækjum. Kjörnir fulltrúar bera ábyrgð á að gæta almannahagsmuna og ekki fæst séð hvernig sala slíkra innviða sé ábyrg hagsmunagæsla. Það kemur ekki á óvart að tillögunni hafi verið  hafnað af meirihlutanum auk Miðflokksins og hvetur fulltrúinn því Samfylkinguna til að tala við sína flokksmenn á þingi til að ná breytingunni fram.

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um skóla- og frístundastarf í fremstu röð. MSS26090053

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Menntamál eru eitt mikilvægasta verkefni samfélagsins og þar gegnir Reykjavík lykilhlutverki. Hér eru flestir nemendur og borgin er stærsti vinnuveitandi kennara á Íslandi. Sterkt menntakerfi er grunnur að farsælli framtíð næstu kynslóða og samfélagsins alls. Markmið meirihlutans í borgarstjórn er að skóla- og frístundastarf í Reykjavík sé í fremstu röð og að börn og ungmenni fái notið sín, þroskist og öðlist þar þekkingu og færni til framtíðar. Áherslurnar þurfa að vera skýrar: að efla grunnfærni í læsi, stærðfræði og vísindum, bæta námsárangur, styrkja stoðþjónustu, efla íslenskukunnáttu og tryggja gott starfsumhverfi þannig að störfin séu eftirsóknarverð. Jafnframt þarf að halda við skólabyggingum, efla samstarf milli skólastiga en líka milli foreldra, heimila og skóla. Niðurstaða fundar með starfsfólki og stjórnendum í leik- og grunnskólum, frístund, fulltrúum nemenda, foreldra og frá Kennarasambandinu verða grundvöllur í vinnu við sóknaráætlun í menntamálum í Reykjavík sem unnið er að.

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar þakka öllum sem komu að fundinum um menntamál í Tjarnarsal Ráðhússins í gær, fyrir góðar umræður um menntamál í borginni. Þá viljum við vekja athygli á því að meirihlutinn setur skólamál á dagskrá borgarstjórnar með greinargerð sem segir það eitt að haldinn hafi verið fundur undir yfirskriftinni „Skóla- og frístundastarf í fremstu röð“. Helsta framlag nýs meirihluta í menntamálum til þessa er slagorðið „Stórsókn í menntamálum“ á sama tíma og boðaður er 2,2 milljarða króna niðurskurður á skóla- og frístundasviði á næsta ári, þar af 960 milljónir sem enn á eftir að útfæra, auk þess sem viðhald skólahúsnæðis er skorið niður um milljarð og uppbygging leikskóla um 1,6 milljarða. Starf í fremstu röð verður ekki til á fundum heldur í skólastofunni, þar sem kennarar kalla eftir nýjum námsgögnum og gagnreyndum kennsluaðferðum, ekki síst á yngsta stigi grunnskólans. Börn af erlendum uppruna þurfa öfluga íslenskukennslu en enn er óljóst hvort 749 milljóna króna framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga bætist við fjármagn borgarinnar eða komi í stað þess. Það sama gildir um frístundina sem verður fyrir niðurskurði eins og annað skólastarf. Það er áhyggjuefni að lýst sé yfir stórsókn en að helstu aðgerðirnar sem kynntar eru séu niðurskurður.

    Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Miðflokksins fagna umræðu um skóla- og frístundastarf og að stefnan sé sett á að grunnskólar Reykjavíkurborgar eigi að vera í fremstu röð. Ef skoða á umræður og verkefnalista meirihlutans í málefninu má sjá margt gott. En betur má ef duga skal. Borgarfulltrúar Miðflokksins telja að markmiðinu með skóla í fremstu röð muni seint nást nema kafað sé töluvert meira á dýptina. Endurskoða þarf stefnu um skóla án aðgreiningar, slaufa gæluverkefnum og setja meira púður í grunnfögin. Móttökudeildir, fleiri sérskólar, sérdeildir, rými fyrir afburðanemendur til þess að skara fram úr og svo framvegis.

    Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar er gjarn á að segja eitt en gera annað. Á meðan talað er um að koma skóla- og frístundastarfi Reykjavíkur í fremstu röð er niðurskurðarkrafa sett á þá starfsemi. Ofan á uppsagnir sem hafa verið framkvæmdar í tíð þessa hægri meirihluta er enn óútfærð 960 milljóna hagræðing á skóla- og frístundasviði  fyrir næsta ár. Erfitt er að sjá fyrir sér hvernig hægt sé að ná um milljarði úr skóla- og frístundastarfi en fara á sama tíma fram á eflingu starfsins.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins:

    Borgarstjórn samþykkir að láta framkvæma úttekt á því hvernig til hafi tekist með ákvæði tíundu greinar málsmeðferðarreglna borgarráðs um veitinga- og gististaði.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar borgarráðs. MSS25090023

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundasviði að vinna tillögur að því hvernig tryggja megi aukinn og markvissan undirbúningstíma í leikskólum borgarinnar, með það að markmiði að jafna aðstæður til faglegs leikskólastarfs, óháð samsetningu starfsfólks á einstökum deildum. Í vinnunni skal skoða hvernig tryggja megi leikskólaleiðbeinendum og öðrum starfsmönnum, sem hafa takmarkaðan undirbúningstíma samkvæmt kjarasamningum, aukið svigrúm til faglegs undirbúnings í samræmi við þau verkefni sem þeim eru falin. Skilgreina skal viðbótarundirbúningstíma sem einstaklingsbundinn tími þeirra starfsmanna sem fá slíkum tíma úthlutað. Við útfærsluna verði tryggt að viðbótarundirbúningstími sé skipulagður, skráður og varinn gegn því að falla niður vegna manneklu eða annarra rekstraraðstæðna. Meta skal þörf fyrir afleysingu vegna undirbúningstíma. Tillögurnar skulu lagðar fram í leikskóla- og daggæsluráð eigi síðar en í lok mars 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til meðferðar leikskóla- og daggæsluráðs. MSS26110058

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands lýsir yfir mikilli ánægju með að tillagan fer í áframhaldandi umræðu innan fagráðsins. Skólastarf í borginni á ávallt að taka mið að því hvað sé best fyrir börnin. Öll börn eiga skilið að vera í faglegu, skipulögðu og uppbyggjandi leikskólastarfi og er því jafnræði hvað varðar undirbúning gífurlega mikilvægt. Á meðan unnið er að því að fjölga kennurum er nauðsynlegt að finna leiðir til að efla starfið eins og það er í núverandi mynd. Viðbótarundirbúningstími fyrir ófaglærða þar sem skortur er á kennurum getur stuðlar að bættu skólastarfi, minnkuðu álagi, valdeflingu starfsfólks og getur jafnvel aukið áhuga ófaglærða starfsmanna að fara í kennaranám.

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar styðja markmið tillögunnar og að henni verði vísað til meðferðar skóla- og frístundasviðs og síðan leikskóla- og daggæsluráðs. Samfylkingin var í fararbroddi í að fjölga undirbúningstímum í leikskólum árið 2018 sem fór síðan inn í kjarasamning leikskólakennara. Leikskólastjórar lýsa því að við forföll starfsfólks falli undirbúningstími ófaglærðs starfsfólks fyrst niður þegar forgangsraða þarf í leikskólastarfinu. Ef afleysingin sem leikskólunum er úthlutað dugar ekki fyrir raunverulegar fjarvistir þá þurfum við að byrja þar. Annars getum við skrifað eins marga tíma og við viljum inn í reglur. Þeir verða samt ekki til. Leikskólastjórar eru í bestu stöðu til að segja til um hvernig undirbúningstíminn nýtist í þeirra skóla og vonum við að þeir verði með í ráðum.

    Fylgigögn

  6. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 5. og 12. nóvember.
    2. liður fundargerðar borgarráðs frá 5. nóvember, viðauki við fjárhagsáætlun 2026, er samþykktur.
    9. liður fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember, framlenging samnings um samræmda móttöku flóttafólks, er samþykktur með 20 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Vinstrisins, Framsóknarflokksins og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Miðflokksins. MSS26010002

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun undir 9. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að samningur um samræmda móttöku flóttafólks verði framlengdur og að Reykjavíkurborg muni áfram sinna þessu mikilvæga verkefni. Samræmd móttaka er gríðarlega mikilvægt inngildingarverkefni þar sem fólk sem hefur leitað hér skjóls fær stuðning við að fóta sig í nýju samfélagi, meðal annars við að finna húsnæði, koma börnum í skóla og fá aðgang að þeirri þjónustu sem það þarf. Markmiðið er að fólk geti búið sér gott líf og orðið virkir þátttakendur í samfélaginu. Þá er sérstaklega ánægjulegt að flest starfsfólk alþjóðateymis borgarinnar sem áður hafði fengið uppsögn fái nú tækifæri til að halda áfram störfum við verkefnið. Þar býr mikilvæg þekking og reynsla sem skiptir máli fyrir gæði þjónustunnar og samfellu í stuðningi við flóttafólk.

    Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun við 9. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember:

    Alúðleg og vel skipulögð móttaka flóttafólks eru hagsmunir alls samfélagsins. Það er jákvætt að ríkið hafi ákveðið að endurnýja samninga um þetta mikilvæga verkefni við Reykjavíkurborg. Vinstrið leggur áherslu á að aukið samtal og fyrirsjáanleiki verði að einkenna þennan málaflokk í framtíðinni enda krefst þessi málaflokkur að vel sé að honum staðið í hvívetna.

    Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun við 15. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember:

    Eftir að hjólabúar höfðu lengi búið við óviðunandi aðstæður á Sævarhöfða var gerður samningur um afnot á svæði í Gufunesi. Í samningnum var skýrt kveðið á um leigugjald og að leigutaki myndi bera allan kostnað vegna nýtingar, reksturs og viðhalds hins leigða, þar með talið, allan kostnað sem kynni að falla til vegna starfsemi og aðstöðu leigutaka á svæðinu. Neikvætt er að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar hafi rift samningi við þau. Ekki nóg með það þá hefur verið gengið fram með harkalegum hætti bæði í málflutningi um stöðu hjólabúa sem og í viðbrögðum líkt og með því að loka fyrir rafmagn og aðgang að vatni. Riftun samnings hefur skapað mjög mikla óvissu fyrir hjólabúa.

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi gagnbókun:

    Velferðarsvið fylgist náið með stöðu fólks sem hefur búið í hjólhýsum á Sævarhöfða og býður fram einstaklingsbundna ráðgjöf. Ef fólk er í neyð vegna kulda er hægt að komast í hlýju í neyðarskýlum borgarinnar. Leigutökum á Sævarhöfða var í júlí gert viðvart um að til stæði að segja upp leigusamningi á Sævarhöfða vegna óviðunandi ástands brunavarna. Hjólabúum sem hafa haft aðstöðu á lóð leigutaka var einnig gert viðvart á sama tíma um þessa ákvörðun. Leigutökum var gert að yfirgefa húsnæðið og Hjólabúum var gert að fjarlægja hjólhýsi og allan búnað af lóðinni fyrir 1. nóvember. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins krefst umfangsmikilla aðgerða til þess að bæta úr ástandi brunvarna á svæðinu og afstaða borgarinnar er sú að slík fjárfesting sé óforsvaranleg í ljósi þess að svæðið er að fara í umbreytingu og uppbygging fyrirhuguð. Vert er að benda á að lög heimila ekki langtímabúsetu í hjólhýsum.

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun við 9. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands fagnar því að samkomulag um framlengingu samnings um samræmda móttöku flóttafólks hafi náðst milli Reykjavíkur og ríkis. Ánægjulegt er að starfsfólki í Alþjóðateyminu sem var sagt upp fyrr í sumar fái tækifæri til að halda áfram að sinna þessari mikilvægu þjónustu og að Reykjavík heldur í starfsfólk með mikla sérþekkingu og reynslu í málaflokknum. Samræmd móttaka flóttafólks stuðlar að aukinni inngildingu í samfélaginu og tryggir samfellu í þjónustu við flóttafólk. Starfsfólk leiðbeinir flóttafólki að fóta sig í íslensku samfélagi meðal annars með félagslegri ráðgjöf, aðstoð við að koma börnum í leik- og grunnskóla og aðstoð við húsnæðisleit. Móttakan stuðlar einnig að virkni þar sem boðið er upp á íslenskunám, samfélagsfræðslu og starfsþjálfun til undirbúnings þátttöku á vinnumarkaði. Það að taka vel utan um flóttafólk fyrstu árin og styðja þau að verða virkir þátttakendur í samfélaginu er öllum til hagsbóta. 

    Fylgigögn

  7. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 13. nóvember, umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. og 11. nóvember, leikskóla- og daggæsluráðs frá 9. nóvember, skóla- og frístundaráðs frá 9. nóvember og velferðarráðs frá 4. nóvember.
    2. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 13. nóvember, síðari umræða um breytingu á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar er samþykktur.
    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26010022

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar eru alfarið á móti því að leggja niður mannréttindaráð Reykjavíkurborgar og sitja því hjá við afgreiðslu þessara breytinga á samþykkt um stjórn borgarinnar. Mannréttindi og ofbeldisvarnir eiga heima í pólitískri umræðu kjörinna fulltrúa en með tillögunni hverfur sá vettvangur.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 18:39

Björg Magnúsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Silja Sóley Birgisdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar frá 17. nóvember 2026 - prentvæn útgáfa