Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 366

Endurskoðunarnefnd

Ár 2026, þriðjudaginn 17. nóvember var haldinn 366. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 09:34. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Einar Sveinn Hálfdánarson, Björn Snær Atlason, Kristín Baldursdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir. Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að álitsgerð PwC um málefni Félagsbústaða, dags. 3. nóvember 2026, ásamt trúnaðarmerktri umsögn ytri endurskoðenda, Grant Thornton, um drög að álitsgerð PwC, dags. 13. nóvember 2026, og fram fer umræða.

    Davíð A. Einarsson og Sturla Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  2. Fram fer kynning á trúnaðarmerktum endurskoðunaráætlunum ytri endurskoðenda, Grant Thornton, vegna endurskoðunar ársreikninga B hluta Reykjavíkurborgar; Orkuveitu Reykjavíkur sef., Faxaflóahafna sf., Félagsbústaða hf., SORPU bs., Strætó bs., Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. og Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf., fyrir árið 2026.

    Bjarni Már Jóhannesson, Davíð Arnar Einarsson, Sif Jónsdóttir og Sturla Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  3. Lögð fram drög að umsögn endurskoðunarnefndar við erindi Strætó bs. til endurskoðunarnefndar dags. 29. október 2026 varðandi annars vegar þá ósk stjórnar að Deloitte haldi áfram sem innri endurskoðandi Strætó bs. út starfstíma félagsins og hins vegar ósk stjórnar um álit nefndarinnar á því hvað þurfi að hafa í huga við slit Strætó bs. Samþykkt.

    Fylgigögn

  4. Lagðar fram að nýju starfsskýrslur endurskoðunarnefndar fyrir starfsárið 2025-2026 fyrir A hluta Reykjavíkurborgar og samstæðu, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaði hf., Malbikunarstöðina Höfða hf., Orkuveituna, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Strætó bs. og SORPU bs. Samþykkt.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram uppfært svar velferðarsviðs, dags. 5. nóvember 2026, við fyrirspurn endurskoðunarnefndar, dags. 21. september 2026, um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar og fyrra bréf velferðarsviðs til endurskoðunarnefndar dags. 20. október 2026 með því afturkallað.

  6. Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að árshlutareikningi Félagsbústaða hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2026.

    Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Kristinn Karel Jóhannsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  7. Fram fer kynning á niðurstöðum síðari eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttektarverkefninu Stjórnunarkerfi upplýsingatækni hjá Ljósleiðaranum og lögð fram trúnaðarmerkt lokadrög eftirfylgniskýrslu dags. í dag, ásamt trúnaðarmerktu fylgibréfi innri endurskoðanda.
    Vísað til stjórnar.

    Stefán Viðar Grétarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  8. Fram fer kynning á niðurstöðum úttektar Innri endurskoðunar og ráðgjafar á stjórnun og framkvæmd eldvarnaeftirlits hjá Félagsbústöðum og lögð fram trúnaðarmerkt lokaskýrsla úttektarinnar dags. í dag ásamt fylgibréfi innri endurskoðanda, dags. 6. nóvember 2026. Arnheiður Elísa Ingjaldsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  9. Lagt fram yfirlit IER, dags. í dag, yfir fundi milli funda, alls tveir fundir (IER26020003, IER26090011).

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:36

Einar S. Hálfdánarson Björn Snær Atlason

Kristín Baldursdóttir Sunna Jóhannsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð enduskoðunarnefndar frá 17. nóvember 2026