Borgarráð - Fundur nr. 5847

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 19. nóvember, var haldinn 5847. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru: Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson, Helga Lára Haarde og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 19. nóvember 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 1.665 m.kr. í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 44 1 á ávöxtunarkröfunni 3,76% en það eru um 1.680 m.kr. að markaðsvirði og samþykki tilboð að nafnverði 3.270 m.kr. í óverðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVKN 35 1 á ávöxtunarkröfunni 7,90% en það eru um 1.355 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 18. nóvember 2026.

    -    Kl. 9:05 tekur Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir sæti á fundinum
    -    Kl. 9:06 tekur borgarstjóri sæti á fundinum.

    Samþykkt.

    Bjarki Rafn Eiríksson og Halldóra Káradóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010004

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags, 16. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili framlengingu á lóðarvilyrði til ÞR Lágmúli 2 ehf., á lóðinni Lágmúli 2 um tvö ár, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26110196

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Uppbyggingaráform á umhverfisvænni byggingu á lóð við Lágmúla 2 eru bæði metnaðarfull og spennandi og gefa góð fyrirheit um framtíð þessa lykilsvæðis í Reykjavík. Tillagan er hluti af verkefninu RE-Inventing Cities á vegum C40, samtaka 90 stórborga sem vinna saman í baráttu gegn loftslagsbreytingum. Nú standa yfir framkvæmdir á vegum Veitna á svæðinu við að færa stofnlagnir og því er lóðavilyrði framlengt þar til lóðin telst byggingarhæf.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram að nýju bréf umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 16. september 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 16. september 2026 á tillögu að fegrunarviðurkenningum Reykjavíkurborgar fyrir árið 2026, ásamt fylgiskjölum, sem samþykkt var á fundi borgarráðs sbr. 12 .lið fundargerðar ráðsins borgarráðs frá 17. september 2026.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26050242

  4. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili þjónustu- og nýsköpunarsviði að hefja hönnun, þróun og innleiðingu á sameiginlegri skilaboðalausn á Mínum síðum, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    -    Kl. 9:15 tekur Ebba Schram sæti á fundinum.

    Samþykkt.

    Óskar Sandholt og Óskar Þór Þráinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26110006

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki meðfylgjandi tilmæli um notkun undirritana í starfsemi Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.

    Óskar Sandholt og Óskar Þór Þráinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26080022

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 6. nóvember 2026, varðandi eftirlitskönnun Þjóðskjalasafns Íslands og fyrirhugaða afgreiðslu hennar, ásamt fylgiskjölum.

    Óskar Sandholt og Óskar Þór Þráinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26110001

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar ítreka mikilvægi þess að vandað verði til verka í hvívetna. Hér er um að ræða ómetanlegar sögulegar heimildir sem hafa varðveist í áratugi og aldir og skipta miklu máli fyrir sögu Reykjavíkur, rannsóknir og réttindi borgarbúa. Ábyrgð okkar er mikil. Tryggja verður að skráningu og frágangi þeirra gagna sem enn eru í vinnslu verði lokið með faglegum hætti, að nauðsynleg þekking og mannafli séu til staðar og að engin verðmæti glatist í ferlinu. Ekki síður er mikilvægt að tryggja áfram gott aðgengi fræðafólks, rannsakenda og almennings að þessum gögnum. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að borgarráð fái skýra tíma- og verkáætlun um þann frágang sem eftir stendur, ásamt upplýsingum um hvernig aðgengi að safnkostinum verði tryggt til framtíðar.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 10. nóvember 2026, sbr. samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs frá 9. nóvember 2026 á tillögu um samning vegna innleiðingar Réttindaskóla UNICEF á leikskólastigi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhansson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26090228

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að áfram sé unnið að innleiðingu Réttindaleikskóla UNICEF í Reykjavík og að fimm leikskólar til viðbótar bætist nú í hópinn. Verkefnið byggir á þeirri stefnu að réttindi barna, jafnrétti og lýðræðisleg þátttaka séu grundvallarþættir í skólastarfi borgarinnar. Það er mikilvægt að börn læri snemma að þau eigi sér rödd, hafi réttindi og geti haft áhrif á umhverfi sitt. Verkefnið snýst um að innleiða þessi viðhorf og menningu í daglegt starf leikskólana. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að þessari metnaðarfullu vegferð verði haldið áfram með það að markmiði að allir leikskólar borgarinnar verði Réttindaleikskólar UNICEF.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 10. nóvember 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 9. nóvember 2026 á tillögu um breytingar á verklagi um meðferð umsókna og framlag vegna skólavistar nemenda í Arnarskóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhansson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS23040076

    Fylgigögn

  9. Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar, dags. 17. nóvember 2026, um drög að frumvarpi um sanngirnisbætur, mál nr. S-226/2026. MSS26110060

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar, Framsóknar og Miðflokks telja afar brýnt að hlustað sé á raddir þeirra sem telja að hið opinbera hafi brotið á rétti þeirra. Borgarfulltrúarnir taka því undir umsögn Reykjavíkurborgar um frumvarp til laga um sanngirnisbætur. Það er mikilvægt réttlætismál að einstaklingar sem sættu illri meðferð eða ofbeldi í vistun á vegum hins opinbera fái sanngirnisbætur. Athugasemdir borgarinnar lúta ekki að tilgangi frumvarpsins heldur ábyrgðarskiptingu og fjármögnun. Reykjavíkurborg leggur áherslu á að ríkið tryggi fjármögnun sanngirnisbótasjóðsins en velti henni ekki yfir á sveitarfélög. Sveitarfélög standa straum af kostnaði við rannsóknir mála og eðlilegt er að ríkið standi straum af sanngirnisbótum. Ef sveitarfélög þurfa bæði að bera kostnað af rannsókn eldri mála og greiða sanngirnisbætur er augljóst að mjög dregur úr hvata sveitarfélaganna til þess að ráðast í slíkar rannsóknir. Það dregur úr líkum á að hið opinbera horfist í augu við mistök fyrri ára.  Reykjavíkurborg hefur þegar lagt í umtalsverðan kostnað vegna sjálfstæðra rannsókna, gagnaöflunar og stuðnings við fyrrverandi vistbörn á vöggustofum. Einnig þarf að tryggja að sveitarfélög beri ekki ófyrirséðan kostnað vegna gagnaöflunar og að ríkið beri ábyrgð á viðbótarfjármögnun ef sjóðurinn tæmist. Mikilvægt er að heildstætt mat á fjárhagslegum áhrifum liggi fyrir áður en frumvarpið verður að lögum. Því framkvæmd sanngirnisbótanna verður jafnframt að byggjast á skýrri ábyrgð, lögbundinni kostnaðarskiptingu og tryggri fjármögnun.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að loksins sé komið fram frumvarp um sanngirnisbætur fyrir fólk sem sætti illri meðferð eða vanrækslu á stofnunum á vegum hins opinbera. Mikilvægt er að skýr og sanngjörn niðurstaða náist um fjármögnun og kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Umfram allt verður þó að tryggja að ágreiningur um fjármögnun tefji ekki enn frekar fyrir réttlátri úrlausn mála þeirra sem hafa beðið áratugum saman eftir viðurkenningu og bótum. Réttlætið má ekki bíða endalaust.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að ríkisstjórnin og hið opinbera hlusti á raddir þeirra sem hafa sætt illri meðferð í vistun utan heimilis á ábyrgð eða með eftirliti hins opinbera. Það er afar mikilvægt að þeir sem hafa orðið fyrir alvarlegu tjóni fái viðurkenningu, bætur og sálrænan stuðning.

    Fylgigögn

  10. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3867/2017. MSS22080190

  11. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um endurskoðun samgöngusáttmálans, sbr. 29. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. ágúst 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara dags. 16. nóvember 2026. MSS26080071

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn leggur áherslu á að endurmat á forsendum samgöngusáttmálans snýst um að tryggja framgang mikilvægra samgönguframkvæmda, raunhæfa fjármögnun og skynsamlega forgangsröðun, en ekki að stöðva eða tefja framkvæmdir. Þvert á móti hefur meirihlutinn lagt áherslu á að flýta Miklubrautargöngum, tryggja að framkvæmdir við gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar hefjist á kjörtímabilinu, finna hagkvæmar leiðir til að efla almenningssamgöngur og Samgöngusáttmálann og vinna eftir Samgöngusáttmálanum í áætlunum borgarinnar. Jafnframt er mikilvægt að ríkið standi við fjármögnun sáttmálans án þess að leggja ný veggjöld á borgarbúa. Sérstaklega vekur athygli að ríkisstjórnin hafi skert fyrirhuguð framlög til Samgöngusáttmálans um 25% árið 2027. Slík skerðing getur haft raunveruleg áhrif á framkvæmdahraða og tafið nauðsynlegar samgöngubætur. Rétt er að halda því til haga að samkvæmt upplýsingum frá Betri samgöngum er áfram unnið eftir þeirri tímalínu og forgangsröðun sem samningsaðilar samþykktu í ágúst 2024. Samtal um endurmat á forsendum hefur því ekki breytt þeirri framkvæmdaráætlun. Það er ekki ávísun á tafir að endurskoða forsendur samgöngusáttmálans. Hitt væri ábyrgðarlaust að horfa fram hjá breyttum fjárhagsforsendum og hættu á að nauðsynlegar framkvæmdir dragist vegna ótryggrar fjármögnunar

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lýsa áhyggjum af þeirri óvissu sem nýr meirihluti hefur skapað um framtíð Samgöngusáttmálans. Sáttmálinn var endurskoðaður árið 2024 og þar var samið um framkvæmdir, tímasetningar og fjármögnun. Nú vill meirihlutinn taka hann upp að nýju, flýta tilteknum vegaframkvæmdum og leita „hagkvæmari leiða“ við uppbyggingu almenningssamgangna. Það vekur áhyggjur af því að draga eigi úr metnaði við uppbyggingu Borgarlínu. Ekkert mat liggur fyrir á áhrifum mögulegra breytinga á fjármögnun, framkvæmdahraða eða heildarmarkmið sáttmálans. Frekari tafir á samgönguúrbótum þýða meiri umferð, meiri mengun og áframhaldandi tímaeyðslu borgarbúa. Óvissan getur jafnframt tafið uppbyggingu meðfram fyrirhuguðum Borgarlínuásum. Samfylkingin leggur áherslu á að staðið verði við Samgöngusáttmálann og byggðar upp öflugar og fjölbreyttar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram svar við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um Ártúnshöfða, sbr. 24. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. október 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 16. nóvember 2026. MSS26100078

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Uppbygging Ártúnshöfða er eitt umfangsmesta þróunarverkefni Reykjavíkurborgar á næstu árum og felur í sér mikla möguleika fyrir framtíðaruppbyggingu borgarinnar. Jafnframt er ljóst að breytingarnar hafa veruleg áhrif á þá atvinnurekendur og lóðarhafa sem þar hafa byggt upp starfsemi sína. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að vandað verði til verka og að breytingarnar verði unnar í opnu og uppbyggilegu samtali við hagsmunaaðila. Sérstaklega er mikilvægt að leita lausna með þeim lóðarhöfum sem standa frammi fyrir útrunnum lóðarleigusamningum án uppkaupsákvæða, enda er slíkt sérstaklega tilgreint í verkefnalista meirihlutans. Rétt er þó að árétta, eins og fram kemur í svari borgarritara, að engin fyrirheit eða skuldbindingar hafa verið gefin um tilteknar bætur, uppkaup eða framtíðarstaðsetningar einstakra fyrirtækja. Það að borgin leiti lausna í samtali við atvinnurekendur jafngildir ekki fjárhagslegri skuldbindingu. Slíkar ákvarðanir verða ávallt að byggjast á faglegu mati, skýrum forsendum og þeim lagalega ramma sem gildir. Meirihlutinn vill að uppbygging Ártúnshöfða gangi áfram, en jafnframt að réttmætir hagsmunir þeirra sem þar starfa verði teknir alvarlega. Þróun borgarinnar og sanngjörn málsmeðferð gagnvart atvinnulífinu eiga að fara saman.

    Fylgigögn

  13. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um aðkomu Reykjavíkurborgar að rekstri Jafnlaunastofu, sbr. 33. liður fundargerðar borgarráðs frá 22. október 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 16. nóvember 2026. MSS26100097

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um endurráðningar, sbr. 34. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. september 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgaritara, dags. 16. nóvember 2026. MSS26090068

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Eftir uppsagnir hefur starfsmönnum verið boðið starf sem ekki hafði verið ráðgert að gera. Ljóst er að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar vandaði ekki til verka við uppsagnirnar.

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um endurráðningar eftir uppsagnir, sbr. 23. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. október 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgaritara, dags. 16. nóvember 2026. MSS26100077

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Miður er að sjá að í kjölfar skipulagsbreytinga og uppsagna á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, skrifstofu samskipta og viðburða og mannréttindaskrifstofu sem samþykktar voru af meirihluta í borgarráði 25. júní sl. hafi einn stjórnandi samhliða uppsögn fengið boð um ótímabundið nýtt starf verkefnastjóra þar sem breyting var á launakjörum til lækkunar. Athygli vekur að ekki hefur öllum beiðnum stéttarfélaga um rökstuðning verið svarað þrátt fyrir að talsverður tími sé liðinn.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn telur mikilvægt að halda staðreyndum til haga í umræðu um endurráðningar í kjölfar skipulagsbreytinga og hagræðingaraðgerða Reykjavíkurborgar. Í fyrsta lagi er grundvallarmunur á því að endurráða fólk í störf sem lögð hafa verið niður og því að bjóða starfsfólki önnur störf innan borgarinnar. Samkvæmt fyrirliggjandi svörum hefur enginn starfsmaður verið endurráðinn í sitt fyrra starf vegna hagræðingaraðgerðanna. Í öðru lagi ber Reykjavíkurborg, samkvæmt meðalhófsreglu, að kanna hvort unnt sé að bjóða starfsfólki önnur störf í stað uppsagnar. Það er ekki mótsögn við hagræðingu heldur hluti af ábyrgri framkvæmd hennar. Að sjálfsögðu er æskilegra að nýta reynslu og þekkingu starfsfólks áfram þegar þess er kostur. Í þriðja lagi þarf að greina sérstaklega frá samræmdri móttöku flóttafólks. Þar er um tímabundið verkefni að ræða sem ríkið fjármagnar. Óvissa um framlengingu samningsins kallaði á uppsagnir, en eftir að ríkið samþykkti áframhaldandi samstarf skapast grundvöllur fyrir endurráðningum. Sú þjónusta var aldrei hluti af hagræðingaraðgerðunum. Meirihlutinn stendur við nauðsynlegar breytingar á rekstri borgarinnar en leggur jafnframt áherslu á að þær séu framkvæmdar af ábyrgð og sanngirni gagnvart starfsfólki. Hagræðing snýst um varanlegar breytingar á rekstri, ekki að segja upp fólki sem hægt er að bjóða önnur störf.

    Fylgigögn

  16. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um starfslýsingar vegna fækkunar stöðugilda á velferðar og skóla- og frístundasviði, sbr. 26. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. september 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgaritara, dags. 16. nóvember 2026, ásamt fylgiskjali. MSS26080087

    Fylgigögn

  17. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um fækkun stöðugilda á velferðar- og skóla- og frístundasviði, sbr. 30. liður fundargerðar borgarráðs frá 3. september 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgaritara, dags. 16. nóvember 2026. MSS26080087

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Afleiðingar stjórnkerfisbreytinga og uppsagna vegna ákvörðunar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ná út fyrir þann hóp sem sagt var upp og hafa leitt til frekari starfsmannamissis. Vitað er um kennsluráðgjafa á miðlægri skrifstofu sem sagði upp þar sem fram kom að ástæða uppsagnar væri vegna stjórnkerfisbreytinganna.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn leggur áherslu á að þær skipulagsbreytingar sem ráðist hefur verið í miða að því að einfalda stjórnsýslu, draga úr umfangi millistjórnunar og stoðþjónustu og styrkja um leið faglega þjónustu við íbúa. Rétt er að halda staðreyndum til haga. Alls fengu 32 starfsmenn boð um ný störf samhliða uppsögnum, en ekki 23 eins og fram kemur í fyrirspurn Sósíalistaflokksins. Samkvæmt svarinu þáðu 28 þeirra boðin. Jafnframt hefur verið leitað leiða til að nýta þekkingu og reynslu starfsfólks áfram þar sem þörf er fyrir hana. Breytingar af þessari stærðargráðu hafa óhjákvæmilega áhrif á starfsfólk og kalla á vandaða innleiðingu. Meirihlutinn gerir ekki lítið úr þeirri óvissu sem þeim fylgir. Sérstaklega þarf að fylgjast með áhrifum starfsmannaveltu á sérfræðiþekkingu, samfellu og aðgengi að þjónustu. Hins vegar verður að greina á milli þess að fækka stöðugildum í stjórnsýslu og þess að draga úr þjónustu við íbúa. Fækkun stjórnunarstaða þarf ekki að jafngilda skerðingu þjónustu. Árangur breytinganna verður ekki eingöngu metinn í fjölda stöðugilda heldur því hvort stjórnsýslan verði einfaldari, fagfólk fái betra svigrúm og íbúar skilvirkari og samfelldari þjónustu.

    Fylgigögn

  18. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um úttekt á á skipulagi og þjónustu velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs, sbr. 38. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. september 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgaritara, dags. 16. nóvember 2026, ásamt trúnaðarmerktu fylgiskjali. MSS26090073

    Fylgigögn

  19. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Óskað er eftir upplýsingum um sjóðasókn Reykjavíkur og hver haldi utan um hana. Óskað er eftir tæmandi yfirliti yfir öll svið borgarinnar, hver sinni sjóðasókninni og hver verkefnin eru og hver beri fjárhagslega ábyrgð á framkvæmd þeirra. Eins er óskað eftir yfirliti yfir þau verkefni sem féllu niður eða var frestað vegna uppsagna starfsfólks sem sinnti þeim.

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. MSS26110062

    Fylgigögn

  20. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 18. nóvember 2026.
    7. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  21. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 12 mál (ÞON20060042, MSS26110038, MSS26110061, MSS26110049, MSS24100050, MSS26110036, MSS25010069, MSS26110045, MSS26100072, MSS26110046, MSS26110041, USK26080273). MSS26110001

    Fylgigögn

  22. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26110002

    Fylgigögn

  23. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í tengslum við nýlegar skipulagsbreytingar á fjármála- og áhættustýringarsviði í kjölfar uppsagna kom fram að fyrirhugað væri að leggja niður grænt bókhald borgarinnar og draga úr öðrum verkefnum á sviði sjálfbærni. Jafnframt að fyrirhugað væri að segja upp samningi við Klappir um upplýsingakerfi fyrir grænt bókhald. Óskað er eftir eftirfarandi upplýsingum um fyrirhugaðar breytingar og áhrif þeirra: Grænt bókhald: 1.Hvaða breytingar verða á grænu bókhaldi Reykjavíkurborgar? a. Hvaða þáttum gagnasöfnunar, úrvinnslu og upplýsingagjafar verður hætt? b. Hvaða þáttum gagnasöfnunar, úrvinnslu og upplýsingagjafar verður haldið áfram og hvaða starfseiningar eða svið munu bera ábyrgð á þeim? 2. Hvaða kerfi og aðferðir verða notaðar til að halda utan um ný og eldri gögn eftir uppsögn á samningi við Klappir? 3. Verður áfram gefið út árlegt grænt bókhald borgarinnar? 4. Munu breytingarnar hafa áhrif á getu borgarinnar til að uppfylla skuldbindingar vegna þegar útgefinna grænna skuldabréfa eða vegna útgáfu nýrra grænna skuldabréfa? 5. Verði frumvarp til loftslagslaga (202. mál á 158. löggjafarþingi) að lögum, hvernig verður tryggt að borgin uppfylli þær skyldur sem þar eru lagðar á sveitarfélög um greiningu á losun frá eigin starfsemi og rekstri? MSS26110067

  24. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í tengslum við nýlegar skipulagsbreytingar á fjármála- og áhættustýringarsviði í kjölfar uppsagna kom fram að fyrirhugað væri að leggja niður grænt bókhald borgarinnar og draga úr öðrum verkefnum á sviði sjálfbærni. Jafnframt að fyrirhugað væri að segja upp samningi við Klappir um upplýsingakerfi fyrir grænt bókhald. Óskað er eftir eftirfarandi upplýsingum um fyrirhugaðar breytingar og áhrif þeirra: Sjálfbærniverkefni: Hvaða verkefni á sviði sjálfbærni sem áður voru unnin á fjármála- og áhættustýringarsviði: 1. Verða lögð niður? 2. Verður haldið áfram? 3. Verða færð til annarra starfseininga eða sviða? MSS26110068

  25. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í tilefni af tillögu um að hefja mögulegt söluferli á Ljósleiðaranum, dótturfélagi Orkuveitunnar óska fulltrúar Samfylkingarinnar eftir skriflegu mati borgarlögmanns á málinu áður en tillagan verður tekin til afgreiðslu, þar sem eftirfarandi liggi fyrir: 1. Greining á því hvort breyting á eignarhaldi Ljósleiðarans geti haft sérstök áhrif á fjárhagslega hagsmuni Sýnar og tengdra fjárfesta. 2. Upplýsingar um aðkomu og hlutverk Arion banka í ferlinu, eignatengsl hans við fyrirtæki á fjarskiptamarkaði, og hvernig hugsanlegir hagsmunaárekstrar verða meðhöndlaðir. 3. Núverandi borgarstjóri sagði sig úr stjórn Orkuveitunnar vegna mögulegs vanhæfis á síðasta kjörtímabili. Hefur hæfi borgarstjóra verið metið í tengslum við fyrirhugað söluferli Ljósleiðarans? MSS26110069

  26. Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvernig stendur á því að formaður borgarráðs vísar opinberlega til einhvers sem á ekki við rök að styðjast varðandi brunavarnir og athugasemdir Slökkviliðsins vegna Sævarhöfða þar sem hjólabúar hafa dvalið? MSS26110070

  27. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir upplýsingum um afskipti Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins af lóðinni við Sævarhöfða 31. Hvenær fór síðast fram úttekt eða skoðun á svæðinu og hver voru tilmæli slökkviliðsins? Hefur verið gerð krafa um úrbætur í brunavörnum og hvenær lágu þær kröfur fyrir? Ef kröfum var ekki mætt, hvaða sektir áttu þá að leggjast á borgina og hvenær áttu þær að taka gildi? Að lokum er spurt hvort slökkviliðið hafi á einhvern hátt hvatt til þess að svæðinu yrði lokað.

    Vísað til umsagnar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. MSS26110066

Fundi slitið kl. 10:33

Einar Þorsteinsson Ari Edwald

Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir

Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 19.11.2026