Tímabundin þrenging í Borgartúni 1-3
Akstur um Borgartún til og frá Snorrabraut að Þórunnartúni verður á einni akrein næstu vikur. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur veitt Eykt ehf leyfi til að nota aðra akgreinina til að fylla upp í skurð og ganga frá svæðinu en verið er að reisa hótel á þessum stað. Búast má við umferðartöflum þar á annatímum kvölds og morgna.
Veitt er leyfi til 21. desember fyrir afnotum af borgarlandi vegna vinnusvæðagirðinga og athafnasvæðis verktaka vegna vinnu við jarðvegsfyllingu meðfram nýbyggingu við Borgartún 1-3 þar sem nú er um 1,5 m breiður, nær lóðréttur uppgröftur.
Jafnframt þessu þarf að ganga frá óvörðum 132 kW rafmagnsstreng meðfram húsinu í samstarfi við Veitur, þar sem sérstakar öryggiskröfur gilda. Framkvæmdasvæði verður girt af og einni akrein Borgartúns lokað á milli Þórunnartúns og Guðrúnartúns.
Tímastýrð umferðaljós munu stýra umferð úr gagnstæðum áttum framhjá framkvæmdasvæðinu og aðgengi að bílastæðum við Borgartún milli umferðaljósanna lokað. Vinstri beygja frá Guðrúnartúni og Þórunnartúni inn á Borgartún verður óheimil. Hjáleið er fyrir gangandi vegfarendur.