Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 200

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 19. nóvember, var haldinn 200. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:06. Viðstödd voru Friðjón R. Friðjónsson, Björn Gíslason, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Safa Jemai. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Hildur Helga Kristinsdóttir starfsmaður borgarlögmanns. Hallgrímur Tómasson og Guðrún P. Ólafsdóttir frá skrifstofu fjármálaþjónustu og innkaupa sátu einnig fundinn. Fundarritari var Helena Rós Sigmarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram erindi fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags 13. nóvember 2026 varðandi EES 16286 - Rammasamningur um bifreiðar fyrir Reykjavíkurborg, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að samið verði við alla fjórtán bjóðendur í þeim hluta eða hlutum sem tilboð þeirra ná til.

    Samþykkt.

    Lilja Ástudóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26030028

    Fylgigögn

  2. Lagt er fram erindi fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags 16. nóvember 2026 varðandi EES útboð nr. 16348 - Rammasamningur um grænmeti og ávexti, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði til rammasamninga við alla bjóðendur sem uppfylla hæfiskröfur og aðrar kröfur útboðsgagna.

    Samþykkt.

    Lilja Ástudóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26090010

    Fylgigögn

  3. Lagt fram erindi mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 2. nóvember 2026, varðandi yfirlit innkaupa yfir 10. m.kr. á tímabilinu júlí 2025 – júlí 2026 hjá mannauðs- og starfsumhverfissviði.

    Lóa Birna Birgisdóttir og Ásta Bjarnadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS24010025

    Fylgigögn

  4. Lagt fram erindi skóla- og frístundasviðs, dags. 12. nóvember 2026, varðandi yfirlit innkaupa yfir 10. m.kr. á tímabilinu júlí 2025 – júlí 2026 hjá skóla- og frístundasviði.

    Bryndís Eva Sverrisdóttir og Frans Páll Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS24010025

    Fylgigögn

  5. Lagðir eru fram úrskurðir Kærunefndar útboðsmála í málum nr. 20/2026, 33/2026 og 45/2026.

    Hildur Helga Kristinsdóttir starfsmaður borgarlögmanns tekur sæti á fundinum undir þessum lið. FAS24010025

Fundi slitið kl. 14:05

Friðjón R. Friðjónsson Björn Gíslason

Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Safa Jemai

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 19. nóvember 2026 - Prentvæn útgáfa