Heilbrigðisnefnd - Fundur nr. 178

Heilbrigðisnefnd

Árið 2026, fimmtudaginn 19. nóvember kl. 10:04, var haldinn 178. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Harpa Sif Eyjólfsdóttir og fulltrúi frá Samtökum atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Guðjón Ingi Eggertsson, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Svava Svanborg Steinarsdóttir og Sigurjóna Guðnadóttir. Fundarritari var Jóhanna Kristrún Birgisdóttir.
 

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram í trúnaði, árshlutauppgjör Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur janúar - september 2026. HER26010001

    -    Kl. 10:08 tekur Daníel Hjörvar Guðmundsson sæti á fundinum.

    Kristján Ólafur Smith og Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
     

  2. Fram fer umræða í trúnaði um málefni Reykjavíkurflugvallar, starfsleyfi í auglýsingu. HER26010001

  3. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 4. nóvember 2026 vegna kæru nr. UUA2609003, vegna óhæfilegs dráttar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á afgreiðslu erinda vegna kvartana um hávaða frá atvinnustarfsemi Tjarnarbíós að Tjarnargötu 12. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að leggja fyrir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að taka erindi kæranda um beitingu þvingunarúrræða til afgreiðslu án frekari tafa. HER26010001
     

    Fylgigögn

  4. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 21. október 2026 vegna kæru nr. UUA2608008, kæra á ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í bréfi frá 6. ágúst 2026 um starfsleyfisskyldu starfsemi Sánagús ehf. í Sækoti. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í bréfi frá 6. ágúst 2026 um starfsleyfisskyldu starfsemi Sánagús ehf. í Sækoti. HER26010001
     

    Fylgigögn

  5. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 30. október 2026 vegna kæra Skotreynar nr. UUA2609021, UUA2609028 og UUA2610001 þar sem kærð er ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 28. ágúst 2026 um útgáfu starfsleyfis fyrir skotvöll Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis í Álfsnesi. HER26010001
     

    Fylgigögn

  6. Lagðar fram kærur frá Skotfélagi Reykjavíkur nr. UUA26110006, UUA26110007 og UUA26110009 þar sem kærð er ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um útgáfu á bráðabirgðarstarfsleyfis til Skotfélags Reykjavíkur á skotsvæði á Álfsnesi. HER26010001
     

    Fylgigögn

  7. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 16. nóvember 2026 um miðstöð um öryggisráðstafanir á Hólmsheiði, sbr. mál nr. 1288/2026 í skipulagsgátt. HER26010001
     

    Fylgigögn

  8. Fram fer umræða um breytingar á heilbrigðiseftirliti þegar heilbrigðiseftirlit færist frá sveitarfélögum til ríkisins um næstu áramót. HER26010001
     

  9. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 15. október 2026, 22. október 2026, 29. október 2026, aukafundur 29. október 2026, 30. október 2026, 4. nóvember 2026, 5. nóvember 2026 og 12. nóvember 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:29

Margrét Rós Sigurjónsdóttir Daníel Hjörvar Guðmundsson

Friðjón R. Friðjónsson Harpa Sif Eyjólfsdóttir

Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Ólafur Hvanndal Jónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 19. nóvember 2026