Brotaþolar Skeggja Ásbjarnarsonar áttu fund með borgarstjóra

""

 

Þann 25. september síðastliðinn komu nokkrir af brotaþolum Skeggja Ásbjarnarsonar á fund borgarstjóra, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs og skólastjóra Laugarnesskóla ásamt fulltrúum Stígamóta sem hafa stutt við þann hóp um nokkurt skeið. Upplýst hefur verið um brot Skeggja gagnvart fjölmörgum börnum og hefur þeim verið gerð skil, bæði í bók Bjargar Guðrúnar Gísladóttur, „Hljóðin í nóttinni” og í umfjöllun Þorsteins J. Vilhjálmssonar á RÚV í þáttunum „Skeggi”. Þar var meðal annars varpað ljósi á alvarleg kynferðisbrot Skeggja gegn drengjum áratugum saman. 

Ljóst er að þessi hópur barna, sem ekki er með vissu vitað hversu stór er, mátti þola hluti sem aldrei ættu að koma fyrir nokkurt barn. Hópurinn hefur tekist á við alvarlegar afleiðingar ofbeldisins alla tíð sem hefur haft áhrif á líðan þeirra og heilsu. Hópurinn hefur lýst takmörkuðum viðbrögðum, þöggun og skorti á skilningi og stuðningi frá samfélaginu og viðeigandi yfirvöldum. Augljóst er að þeir aðilar og það kerfi sem átti að vernda börnin brást. Þolendum var ekki trúað, þeim var ekki mætt. En þeim er trúað núna. 

Borgarstjóri harmar mjög hlutskipti þeirra barna sem þurftu að ganga í gegnum þetta en dáist að sama skapi að hugrekki þeirra sem komu á fundinn reiðubúnir að segja sína sögu. Sú saga má aldrei falla í gleymsku, eins sársaukafull og skammarleg og hún er. 

Grunnskólar í borginni okkar eiga að vera griðastaður fyrir börnin okkar. Það er okkar sem tökum að okkur að stýra þeim að tryggja að svona hlutir endurtaki sig ekki, að verkferlar séu skýrir og úrræði séu til staðar þegar ofbeldi kemur upp. Öll börn, eiga að vera örugg í öllu skóla- og frístundastarfi og starfsfólki ber að hafa velferð og öryggi barna að leiðarljósi. 

Borgarstjóri styður vegferð hópsins og leggur áherslu á að hann leiti réttar síns til ríkisins vegna sanngirnisbóta.