Sandra valin framúrskarandi kennari

Sandra Ómarsdóttir með Höllu Tómasdóttur forseta.

Sandra Ómarsdóttir kennari við Seljaskóla í Reykjavík hlaut Íslensku menntaverðlaunin fyrir framúrskarandi sviðslistakennslu. Þá hlaut verkefnið Söngvavor, sem er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla, verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni. Verðlaunin voru afhent á Bessastöðum við hátíðlega athöfn.

Sandra er hugmyndarík, jákvæð og ósérhlífin

Sandra er vel að því komin að vera verðlaunuð sem framúrskarandi kennari. Á hverju ári setur hún upp metnaðarfullar og vandaðar leiksýningar með nemendum í Seljaskóla sem hafa vakið mikla og verðskuldaða athygli. „Sýningarnar þykja einkennast af faglegum vinnubrögðum, ríkri listrænni sýn og vandaðri útfærslu þar sem hvert smáatriði er úthugsað,“ segir í umsögninni um Söndru. Henni er líka lýst sem jákvæðum samstarfsfélaga sem miðlar þekkingu sinni og að hún sé hugmyndarík, skipulögð, ósérhlífin og hafi þannig jákvæð áhrif á skólasamfélagið í heild.

Halla Tómasdóttir og Sandra Ómarsdóttir ásamt fjölskyldu Söndru.
Sandra Ómarsdóttir með fjölskyldu sinni og Höllu Tómasdóttur forseta.

 

„Ástæða þess að Sandra á skilið að fá viðurkenningu sem framúrskarandi kennari er að hún er ungur kennari sem hefur sett svip sinn á gamalgróinn skóla svo um munar.“ 

segir í einni tilnefningunni.

Söngvavor hófst með samvinnu við leikskóla í Reykjavík

Söngvavor er verðlaunað fyrir að vera framúrskarandi þróunarverkefni en verkefnið nær til ríflega 3000 barna í 140 leikskólum og 15 tónlistarskólum víða um land. Verkefnið hófst með farsælli samvinnu Tónlistarskóla Sigursveins og leikskóla í Reykjavík árið 2010 og hefur því vaxið svo um munar. Á hverju ári er valið íslenskt tónskáld og verk þess útsett sérstaklega fyrir leikskólabörn. Elfa Lilja Gísladóttir hefur verið verkefnastjóri Söngvavors frá upphafi. „Meginmarkmið þess er að efla sönggleði, sjálfstraust og samfélagslega virkni elstu barna leikskólans með virkri þátttöku í miðlun íslensks tónlistararfs.“

Halla forseti með þeim sem standa að Söngvavori.
Aðstandendur Söngvavors með Höllu Tómasdóttur forseta

Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum: fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.

Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf og menntabætur. Verkmenntaskólinn á Akureyri var verðlaunaður fyrir framúrskarandi iðn- og verkmenntun og hvatningarlaunin komu í hlut Opna leikskólans MEMMM.

Meira um verðlaunin á síðu Samtaka áhugafólks um skólaþróun.

Myndir: Mummi Lú