Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð miðvikudaginn 11. nóvember 2026 nr. 395

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 11. nóvember, kl. 9:03 var haldinn 395. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Friðjón R. Friðjónsson, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Þorvaldur Daníelsson og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á minnisblaði sérfræðinga umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Dýraþjónustu Reykjavíkur, umhverfis- og skipulagssviðs Hafnarfjarðarbæjar, umhverfissvið Kópavogsbæjar og skipulags- og umhverfissviðs Seltjarnarness um fuglalíf og fóðurgjafir á höfuðborgarsvæðinu.

    Helena Gylfadóttir, Þórólfur Jónsson og Eva Ósk Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26100515

    Lögð fram svohljóðandi bókun umhverfis- og skipulagsráðs:

    Umhverfis- og skipulagsráð þakkar fyrir vandaða vinnu sérfræðinga Dýraþjónustu Reykjavíkur og tekur undir áhyggjur þeirra af neikvæðum áhrifum af óæskilegri fóðrun fugla við Tjörnina og í landi Reykjavíkur. Þá er ljóst að mikil mengun af m.a. lífrænum efnum fyrirfinnst nú þegar í Tjörninni og mun aukið álag vegna offóðrunar stefna lífríki hennar og búsvæðum fugla í hættu. Ráðið telur mikilvægt að leitað verði samstarfs við Dýravaktina og þá sjálfboðaliða sem hafa sýnt fuglalífi á höfuðborgarsvæðinu mikla umhyggju. Bestum árangri verður náð með því að nýta þennan velvilja og kraft í góðu samstarfi við sérfræðinga, þannig að velferð fugla og vernd lífríkis verði ávallt í fyrirrúmi með það að markmiði að einungis fóðra villta fugla í Reykjavík þegar þörf er á.
     

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á verkefnisáætlun stýrishóps á innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna í Reykjavík.

    Heiða Aðalsteinsdóttir, Þórólfur Jónsson og Eva Ósk Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26100310

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar framlagðri verkefnisáætlun um innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna í Reykjavík. Eðlilegt er að nýta náttúrulegar lausnir til að draga úr álagi á fráveitukerfi borgarinnar, bæta nýtingu innviða og stuðla að grænna og vistvænna borgarumhverfi. Í dag berst verulegt magn regn- og leysingavatns inn í fráveitukerfi borgarinnar og hluti þess fer um dælustöðvar og skólphreinsistöðvar þótt ekki sé þörf á hefðbundinni skólphreinsun. Blágrænar ofanvatnslausnir draga úr álagi, minnka þörf fyrir dælingu og hreinsun og skapa forsendur fyrir hagkvæmari rekstri fráveitukerfisins til lengri tíma. Verkefnisáætlun þarf að horfa sérstaklega til þess hvar mestur ávinningur fæst af slíkum lausnum, bæði með tilliti til rekstrarhagkvæmni, fjárfestinga í fráveitu og umhverfislegra áhrifa. Mikilvægt er að samstarf Reykjavíkurborgar og Veitna byggist á skýrri forgangsröðun og að metið verði hversu mikið draga megi úr magni ofanvatns sem berst til skólphreinsunar og hvaða fjárhagslegi ávinningur geti falist í þeim aðgerðum. Blágrænar ofanvatnslausnir eiga að vera eðlilegur hluti af framtíðaruppbyggingu borgarinnar, bæði í nýjum hverfum og við endurnýjun eldri byggðar, þar sem þær geta samtímis stuðlað að auknum gróðri, betri vatnsbúskap og minni flóðahættu.
     

  3. Fram fer kynning á drögum að úthlutunarskilmálum styrktarsjóðs Reykjavíkurborgar til skógræktar á landi Reykjavíkurborgar.

    Marta Guðrún Daníelsdóttir, Þórólfur Jónsson og Eva Ósk Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26100517

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur ríka áherslu á uppbyggingu og eflingu grænna svæða í Reykjavík, meðal annars með markvissri skógrækt og þróun borgarskóga. Það er skýrt markmið nýs meirihluta að gróðursettar verði 50 þúsund trjáplöntur í borginni á kjörtímabilinu og þannig stuðlað að auknum gróðri, betra nærumhverfi og fjölbreyttari útivistarmöguleikum fyrir borgarbúa. Með reglum um styrki til skógræktar á landi Reykjavíkurborgar er stigið skref í þá átt að efla samstarf borgarinnar við félagasamtök og fagaðila á sviði skógræktar og grænna innviða. Slíkt samstarf er mikilvægt til að tryggja faglega uppbyggingu borgarskóga þar sem tekið er mið af staðháttum, líffræðilegri fjölbreytni og langtímaumhirðu. Meirihlutinn telur mikilvægt að nýta þekkingu og reynslu þeirra aðila sem hafa sérhæft sig í skógrækt og uppbyggingu útivistarsvæða. Með markvissri forgangsröðun, skýrum markmiðum og öflugu samstarfi viljum við stuðla að því að græn svæði og borgarskógar verði enn mikilvægari hluti af borgarumhverfi Reykjavíkur til framtíðar.
     

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á verkefnum tengdum Jólaborginni 2026.

    Rebekka Guðmundsdóttir og Björg Jónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26100528

    Lögð fram svohljóðandi bókun umhverfis- og skipulagsráðs:

    Umhverfis- og skipulagsráð leggur ríka áherslu á að efla Jólaborgina Reykjavík enn frekar í góðu samstarfi við rekstraraðila, verslunareigendur, veitingafólk og aðra sem leggja sitt af mörkum til að skapa einstaka jólastemningu í borginni. Jólaborgin á að vera lifandi og aðlaðandi vettvangur fyrir samveru, upplifun og gleði þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Með fallegum jólaskreytingum, jólamarkaði, skautasvelli, fjölbreyttum viðburðum og menningu viljum við skapa umgjörð sem laðar fólk í miðborgina, styrkir verslun og þjónustu og eflir mannlífið á aðventunni. Það er einlæg von meirihlutans að allir borgarbúar, ungir sem aldnir, leggi leið sína í Jólaborgina sína á aðventunni þegar frostið greypir á rúður rós. Þau njóti þess sem borgin býður, til gagns og prýði, ánægju mestrar og eigi þar góðar og gleðilegar stundir með fjölskyldu og vinum. Gleðileg jól!
     

    Fylgigögn

  5. Leiðrétt bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. október 2026, liður 2 um Lágmúla 2 - Nýtt deiliskipulag - Skipulagslýsing.
    Rétt bókun er: Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, lóðarhöfum aðliggjandi lóða vegna þeirrar nauðsynlegu aðlögunar sem gera þarf á landhæðum á lóðamörkum og tengingum við göngu- og hjólastíga, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi. USK25080285

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna áformum um að breyta vannýttu bílastæði við Lágmúla í fallega, blandaða byggð í nálægð við atvinnu, þjónustu og fyrirhugaða Borgarlínu. Verkefnið á rætur í alþjóðlegri loftslagssamkeppni C40 þar sem lögð var áhersla á kolefnishlutleysi, félagslega blöndun og gæði borgarumhverfis. Mikilvægt er að þau markmið endurspeglist í endanlegu skipulagi, meðal annars með fjölbreyttum búsetukostum, grænum svæðum og öruggum göngu- og hjólatengingum.
     

    Fylgigögn

  6. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 3. nóvember 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  7. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 3. nóvember 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  8. Lagt fram yfirlit yfir kærur og úrskurðir sem hafa borist til umhverfis- og skipulagssviðs í október 2026. USK26090044
     

    Fylgigögn

  9. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 22. október 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1. USK26030120
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar:

    1. Hvaða hönnunarviðmið gilda um staðsetningu ljósastaura, umferðarmerkja og annars búnaðar við göngu- og hjólastíga og hvernig er tryggt að þeim sé fylgt? 2. Hvernig er gæðaeftirliti háttað við hönnun og framkvæmdir og hver ber ábyrgð á lokaúttekt áður en stígar eru teknir í notkun? 3. Er til staðar verklag til að skrá og lagfæra hindranir og hönnunargalla sem koma í ljós eftir að stígar hafa verið teknir í notkun? 4. Er haft samráð við hjólasamfélagið við hönnun hjólastíga? 5. Er frágangur hjólastígs við Heklureit endanlegur og í samræmi við gildandi hönnunarviðmið?

    Greinargerð fylgir fyrirspurn. USK26110148
     

    Fylgigögn

  11. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Óskað er eftir sundurliðun á innri leigu fasteigna í eignasjóði fyrir árin 2024, 2025 og 2026, ásamt því hversu stórfjárhæð var reiknuð til viðhalds samkvæmt 1,5% viðmiði borgarinnar. Einnig er óskað eftir upplýsingum um hvaða fjárhæðir voru í raun nýttar til viðhalds þessara fasteigna á hverju ári og hvort ónýttar fjárheimildir til viðhalds hafi verið fluttar milli ára. USK26110146
     

Fundi slitið kl. 10:48

Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald

Birkir Ingibjartsson Friðjón R. Friðjónsson

Margrét Rós Sigurjónsdóttir Pétur Hafliði Marteinsson

Þorvaldur Daníelsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 11. nóvember 2026