Bónus Vanilludropar innkallaðir
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Aðföng, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Bónus Vanilludropa.
Ástæða innköllunar: Möguleiki er á að hráefni sem notað er við framleiðslu vörunnar uppfylli ekki kröfur sem gerðar eru til matvæla
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Bónuss um land allt.
Leiðbeiningar til neytenda: Neytendur sem eiga umræddar vörur eru beðnir um að neyta þeirra ekki heldur farga þeim á viðurkenndan hátt. Einnig er hægt að skila þeim í versluninni þar sem þær voru keyptar gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gm@adfong.is.