Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 3. nóvember, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:02. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Brynjar Níelsson, Albert Guðmundsson, Ari Edwald, Bjarni Fritzson, Bjarni Guðjónsson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Björg Magnúsdóttir, Björn Gíslason, Friðjón R. Friðjónsson, Guðný María Jóhannsdóttir, Hlédís Maren Guðmundsdóttir, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, Líf Magneudóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Róbert Ragnarsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Skúli Helgason, Stein Olav Romslo og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram til fyrri umræðu frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027 ásamt greinargerðum, sbr. 2. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október 2026. Jafnframt eru lagðar fram tillögur borgarstjóra undir eftirtöldum liðum í fundargerð borgarráðs frá 30. október 2026. 5. liður; tillaga um lántöku vegna framkvæmda á árinu 2027, 6. liður; tillaga um álagningarhlutfall útsvars 2027, 7. liður; tillaga um álagningarhlutfall fasteignaskatta og lóðarleigu 2027, 8. liður; tillaga um gjalddaga fasteignaskatta og lóðarleigu 2027, 9. liður; tillaga um viðmunartekjur til lækkunar fasteignaskatts 2027 og 10. liður; tillaga um gjaldskrá 2027.
- Kl. 14:30 víkur Bjarni Guðjónsson af fundinum og Helga Margrét Marzellíusardóttir tekur þar sæti.
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. október 2026, sbr. 5. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október 2026:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki hreinar langtímalántökur á árinu 2027 að fjárhæð 16.000 m.kr. til að fjármagna fyrirhugaðar fjárfestingar ársins, stofnframlög borgarinnar vegna byggingar og kaupa á almennum íbúðum og stofnframlög til B-hluta fyrirtækja og hlutdeildarfélaga. Jafnframt er lagt til að borgarstjórn samþykki skammtímalántökur að fjárhæð 2.500 m.kr. til að endurfjármagna skuldabréfaflokk sem er á lokagjalddaga á árinu 2027. Með hliðsjón af lánastýringu er enn fremur lagt til að borgarstjórn samþykki að vergar lántökur geti numið hærri fjárhæð en 18.500 m.kr., enda verði umframlántaka nýtt til uppkaupa á útistandandi skuldabréfaflokkum og/eða endurgreiðslu lána frá viðskiptabönkum. Loks er lagt til að veita sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs umboð fyrir hönd Reykjavíkurborgar til þess að undirrita nauðsynlega fjármálagerninga sem tengjast lántökum borgarsjóðs, sem og til þess að taka á móti og undirrita, gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökum þessum, enda verði einstakar lántökur lagðar fyrir borgarráð til afgreiðslu.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS26100011Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. október 2026, sbr. 6. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október 2026:
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars tekjuárið 2027 verði 14,97% og er það sama hlutfall og tekjuárið 2026.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS26100010Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. október 2026, sbr. 7. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október 2026:
Lagt er til að álagningarhlutfall fasteignaskatta og lóðarleigu vegna ársins 2027 verði sem hér segir: 1. Hlutfall fasteignaskatts skv. a-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum verði 0,18% af fasteignamati alls. 2. Hlutfall fasteignaskatts skv. b-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum verði 1,32% af fasteignamati alls. 3. Hlutfall fasteignaskatts skv. c-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr.4/1995 með síðari breytingum verði 1,60% af fasteignamati alls. 4. Hlutfall lóðarleigu fyrir íbúðarhúsalóðir verði 0,2% af fasteignamati lóða. 5. Hlutfall leigu fyrir verslunarlóðir, iðnaðarlóðir og lóðir fyrir opinberar byggingar verði 1,0% af fasteignamati lóða.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS26100009Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. október 2026, sbr. 8. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október 2026:
Lagt er til að gjalddagaskipting fasteignagjalda fyrir árið 2027 verði eftirfarandi: Greiðendur fasteignagjalda skulu gera skil á fasteignagjöldum ársins 2027 með 11 jöfnum greiðslum á eftirfarandi gjalddögum: 30. janúar, 2. mars, 3. apríl, 2. maí, 1. júní, 4. júlí, 2. ágúst, 1. september, 2. október, 1. nóvember og 4. desember. Þá er lagt til að nemi álagning fasteignagjalda 25.000 kr. eða lægri fjárhæð á fastanúmer greiði gjaldendur þau með einum gjalddaga þann 30. janúar. Lagt er til að gjalddagar krafna vegna framkvæmdar afsláttar til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti og fráveitugjaldi verði 1. nóvember, 4. desember og 2. janúar. Lagt er til að þeir sem eiga inneignir fái þær greiddar út 4. nóvember 2027.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS26100009Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. október 2026, sbr. 9. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október 2026:
Lagt er til að viðmiðunartekjur til lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds elli- og örorkulífeyrisþega árið 2027 verði eftirfarandi:
Viðmiðunartekjur
I. Réttur til 100% lækkunar
Einstaklingur með tekjur allt að 6.310.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 8.790.000 kr.
II. Réttur til 80% lækkunar
Einstaklingur með tekjur á bilinu 6.310.001 til 7.220.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 8.790.001 til 9.750.000 kr.
III. Réttur til 50% lækkunar
Einstaklingur með tekjur á bilinu 7.220.001 til 8.390.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 9.750.001 til 11.660.000 kr.
Lagt er til að skilyrði lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds fari eftir reglum Reykjavíkurborgar um afslátt af fasteignagjöldum eins þær eru á hverjum tíma.Greinargerð fylgir tillögunni.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands merkt J-1:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að viðmiðunartekjur til lækkunar fasteignaskatts og
fráveitugjalds elli- og örorkulífeyrisþega árið 2027 verið eftirfarandi:
Viðmiðunartekjur
I. Réttur til 100% lækkunar
Einstaklingur með tekjur allt að 6.440.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 8.970.000 kr.
II. Réttur til 80% lækkunar
Einstaklingur með tekjur á bilinu 6.440.001 til 7.360.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 8.970.001 til 9.950.000 kr.
III. Réttur til 50% lækkunar
Einstaklingur með tekjur á bilinu 7.360.001 til 8.560.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 9.950.001 til 11.890.000 kr.
Lagt er til að skilyrði lækkunar fasteignamats og fráveitugjalds fari eftir reglum
Reykjavíkurborgar um afslátt af fasteignagjöldum eins og þær eru á hverjum tíma.Greinargerð fylgir breytingartillögunni.
Breytingartillagan er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Tillaga borgarstjóra um viðmiðunartekjur til lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds er samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS26100009Lögð fram tillaga borgarstjóra að gjaldskrám Reykjavíkurborgar fyrir árið 2027 sbr. 10. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október.
Lagðar fram breytingartillögur borgarfulltrúa Vinstrisins merktar A-1 til A-9:
Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins merkt A-1 þar sem lagt er til að gjaldskrá fyrir gjaldsvæði 1-4 taki 2,5% hækkunum eins og flestir aðrir gjaldliðir í gjaldskrá Reykjavíkurborgar er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins merkt A-2 þar sem lagt er til að eitt íbúakort verði gefið út og flokkurinn raf-vetnisbílar verði lagður niður. Þá taki gjald fyrir íbúakortin 2,5% hækkun eins og flestir aðrir gjaldliðir í gjaldskrá Reykjavíkurborgar er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn sjö atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins.
Borgarfulltrúar Miðflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins merkt A-3 þar sem lagt er til að gjaldskrá fyrir deilibílakort taki 2,5% hækkun eins og flestir aðrir gjaldliðir í gjaldskrá Reykjavíkurborgar er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins merkt A-4 þar sem lagt er til að afnot af gjaldstæðum tímabundið fyrir öll gjaldsvæði og tilfelli taki 2,5% hækkun eins og flestir aðrir gjaldliðir í gjaldskrá Reykjavíkurborgar er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins merkt A-5 þar sem lagt er til að aukastöðugjald taki 2,5% hækkun eins og flestir aðrir gjaldliðir í gjaldskrá Reykjavíkurborgar er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins merkt A-6 þar sem lagt er til að stöðubrotsgjald taki 2,5% hækkun eins og flestir aðrir gjaldliðir í gjaldskrá Reykjavíkurborgar er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins merkt A-7 þar sem lagt er til að hætt verði að innheimta fæðisgjöld fyrir leikskóla og frístundaheimili er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúa Vinstrisins.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins merkt A-8 þar sem lagt er til að hætt verði að rukka námsgjöld í leikskólum er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúa Vinstrisins.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins merkt A-9 þar sem lagt er til að veitingar og fæði sem falla undir gjaldskrá velferðarsviðs taki ekki hækkunum á milli ára er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Breytingartillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands merkt J-2 þar sem lagt er til að gjald fyrir hádegisverð lífeyrisþega og heimsendan mat í gjaldskrá velferðarsviðs um veitingar og fæðisgjald fyrir hádegisverð hækki ekki er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Tillaga borgarstjóra að gjaldskrám Reykjavíkurborgar fyrir árið 2027 sbr. 10. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október er samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS26010019Samþykkt að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2026 til síðari umræðu í borgarstjórn sem fram fer 1. desember nk. FAS26010019
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Nýr meirihluti setur fram nýja fjármálastefnu sem byggir á sjálfbærni og stöðugleika í rekstri borgarinnar til lengri tíma. Með fjármálastefnunni eru sett strangari fjárhagsleg markmið fyrir rekstur borgarinnar og stefnt að því að öll markmið verði uppfyllt á árunum 2027 til 2031. Eftir 6,6 milljarða króna halla á þessu ári, samkvæmt útkomuspá, er gert ráð fyrir 2,8 milljarða afgangi á næsta ári, að borgin hefji niðurgreiðslu skulda árið 2028 og að fjárfestingargeta hennar styrkist ár frá ári. Áhersla er lögð á fjárfestingar í þágu grunnþjónustu, ekki síst barna og barnafjölskyldna og að vinna á milljarða innviðaskuld sem blasir við í Reykjavík. Frumvarpinu er nú vísað til seinni umræðu í byrjun desember en á milli umræðna verða forsendur frumvarpsins endurmetnar sér í lagi verðbólguforsendur og mat á tekjum af sölu byggingarréttar. Meirihlutinn leggur áherslu á að setja fram raunhæfar áætlanir sem standast.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrsta fjárhagsáætlun nýs meirihluta borgarstjórnar endurspeglar þá hörðu hægri niðurskurðarstefnu sem meirihlutinn keyrir. Á annað hundrað manns hafa misst vinnuna þar sem harka og virðingarleysi hefur einkennt framkvæmdina. Samhliða hafa verið lögð niður verkefni sem spöruðu borginni peninga eða öfluðu tekna. Meirihlutinn boðar stórsókn í menntamálum en í fjárhagsáætluninni er skorið niður um 2,2 milljarða í málaflokknum, meðal annars 400 milljónir í grunnskólum, 200 milljónir í leikskólum og 300 milljónir í frístundastarfi en 960 milljónir eru óútfærðar. Nýfjárfestingar í leikskólum dragast saman um 1,6 milljarð og viðhald skólahúsnæðis er skorið niður um einn milljarð þrátt fyrir loforð um stóraukið viðhald í húsnæði leik- og grunnskóla. Ekkert í fjármálum borgarinnar réttlætir hinn harkalega niðurskurð meirihlutans. Grunnrekstur borgarinnar er traustur, skilaði tæplega átta milljörðum króna í afgang fyrir afskriftir og fjármagnsliði, sem er 4,6 milljörðum betri niðurstaða en á sama tíma í fyrra. Á fyrri hluta ársins var halli A-hluta Reykjavíkur um 22 þúsund krónur á hvern íbúa, borið saman við 29 þúsund á íbúa í Garðabæ, 72 þúsund í Hafnarfirði og 113 þúsund á Seltjarnarnesi. Samfylkingin leggur áherslu á menntun, menningu, velferð, fjölbreytta húsnæðisuppbyggingu og samgöngumáta auk nærþjónustu, sem skýran valkost við óbilgjarna niðurskurðarstefnu meirihlutans.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Athygli vekur að þessi meirihluti, sem er hlynntur því að þeir borgi sem noti, sé að afsala sér tekjum af því sem borgarbúar og gestir Reykjavíkurborgar eru sannarlega að nota og eru bílastæði í borgarlandi og kosta í margs konar rekstri og umhirðu. Þetta þykir Vinstrinu afar vandræðalegt og óumhverfisvænt og er í beinni mótsögn við yfirlýsingar flokkana og annað sem var samþykkt í gjaldskrám í dag.
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Þrátt fyrir digurbarkarlegar yfirlýsingar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar um stórsókn í hinum ýmsu málaflokkum er ekki að sjá að slíkt raungerist í þessari rýru og ómarkvissu fjárhagsáætlun þar sem yfirsýnin er engin, fjármögnun til málaflokka óútfærð og niðurskurðarhnífnum m.a. beint að viðkvæmri grunnþjónustu og stuðningi við hana. Minna er varið í fjárfestingu og viðhald. Sem dæmi er gert ráð fyrir að fjárfestingin verði 300 milljónum lægri á næsta ári miðað við árið á undan. Þá ríkir mikil óvissa um áframhaldandi uppbyggingu óhagnaðardrifins húsnæðis sem og áætlana vegna fjölgun félagslegra leiguíbúða og styrkingu Félagsbústaða. Það óreiðu- og óvissuástand sem framundan er skrifast alfarið á viðvaningsleg vinnubrögð, fálmkennda og óljósa pólitík og forystuleysi í lykilmálaflokkum borgarinnar. Meirihlutinn áformar að selja innviði í eigu almennings, útvista grunnþjónustu með tilheyrandi kostnaði og fjarlægð við málaflokka og hefur boðað enn frekari niðurskurð án tilgangs eða skýrra markmiða og ekki hafa fengist svör um hvernig niðurskurðaraðgerðirnar bæti og efli þjónustu við borgarbúa. Með Sjálfstæðisflokk, Viðreisn og Framsóknarflokk við stjórnvölinn í Reykjavík stefnir ekki bara í leiðinlegri borg þar sem skorið er niður í menningu og listum, fegrun borgarlandsins og fjárfestingu í góðum almannarýmum og grænu umhverfi, heldur hafa nýlegar aðgerðir þessara flokkar valdið því að Reykjavík hefur orðið fyrir álitshnekki sem vinnustaður og sent þau skilaboð að hér sé ekki gott að starfa. Vinstrið vill minna á að það er starfsfólk Reykjavíkurborgar og þær bjargir sem því eru veittar sem ákvarðar hversu öflug og góð þjónusta er veitt, hversu góða menntun börnin okkar fá og hversu vel við hlúum að fólki í viðkvæmri stöðu.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fyrirliggjandi frumvarp sýnir verulegan niðurskurð og grunnþjónustan er ekki varin. Minna fjármagn fer í leikskólana, grunnskólana, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar, menningarstofnanir okkar þurfa að mæta enn og aftur mikilli hagræðingarkröfu. Minna fjármagni er varið í rekstur og umhirðu borgarlandsins og velferðarsvið fær 6% minna fjármagn fyrir komandi ár, sem er mesta skerðingin meðal fagsviðanna. Verulega er verið að draga úr fjárfestingu á meiriháttar viðhaldi skólahúsnæðis og hvorki frumvarpið né fimm ára áætlun gefur til kynna að þessi meirihluti eigi eftir að ráðast í aðgerðir til að mæta húsnæðiskreppunni. Á meðan skrifstofur sviðstjóra flestra sviða fá aukna fjárheimild, mannauðs og starfsumhverfissvið tekur ekki á sig rýrnun fjárheimilda, skrifstofa borgarstjóra og borgarritara fær aukna fjárheimild upp á 84 m.kr að raunvirði. Enn á eftir að útfæra hagræðingaraðgerðir á skóla- og frístundasviði, velferðarsviði og menningar- og íþróttasviði að fjárhæð sem nemur 1,8 ma.kr. Ekki er hægt að sjá annað en að sú hagræðing muni leiða til skerðingar á grunnþjónustu. Frumvarpið mun taka verulegum breytingum á milli umræðna í ljósi óútfærðra hagræðingaraðgerða og vegna uppsagna síðastliðinn þriðjudag. Því er enn tími fyrir meirihlutann að endurhugsa niðurskurðarkröfurnar og endurmeta nálgun sína.
Fylgigögn
- Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027 og fimm ára áætlun 2027-2031
- Greinargerð fagsviða og B-hluta fyrirtækja með fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027
- Greinargerð með frumvarpi um fjárhagsáætlun og fimm ára áætlun 2027-2031
- Tillaga um álagningarhlutfall fasteignaskatta og lóðarleigu 2027
- Tillaga um gjalddaga fasteignaskatta og lóðarleigu 2027
- Tillaga um viðmunartekjur til lækkunar fasteignaskatts 2027
- Tillaga um lántöku vegna framkvæmda á árinu 2027
- Tillaga um álagningarhlutfall útsvars 2027
- Tillaga um gjaldskrá 2027
- Breytingatillögur Vinstrisins A1-A9
- Breytingatillögur Sósíalistaflokks Íslands J1-J2
-
Lagt fram frumvarp að fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar 2027-2031, ásamt greinargerð, sbr. 3. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október 2026.
Samþykkt að vísa frumvarpi að fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar 2027-2031 til síðari umræðu í borgarstjórn sem fram fer 1. desember 2026. FAS26010019
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. október 2026, sbr. 4. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. október 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki fjármálastefnu Reykjavíkurborgar fyrir árin 2027–2031. Stefnan setur fram langtímasýn, meginmarkmið og töluleg viðmið um fjármálastjórn borgarinnar. Hún er stjórntæki við gerð fjárhagsáætlunar og fimm ára áætlunar og við ákvarðanir um tekjuöflun, rekstur, fjárfestingar, fjármögnun og ráðstöfun eigna. Stefnan setur umgjörð um fjármálastjórn borgarinnar. Henni er ætlað að tryggja fjárhagslegt svigrúm til að mæta efnahagslegum sveiflum og áföllum, og getu borgarinnar til að veita trausta þjónustu, viðhalda eignum og byggja upp innviði í þágu núverandi og komandi kynslóða. Stefnan byggir á fjármálaákvæðum sveitarstjórnarlaga og grunngildum laga um opinber fjármál: sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi. Jafnframt er tekið mið af ráðleggingum OECD um ábyrga fjármálastjórn. Markmið og viðmið stefnunnar taka til A-hluta nema annað sé tilgreint. Áherslum gagnvart B-hluta er fylgt eftir með eigendastefnum. Stefnuna skal endurskoða innan sex mánaða frá sveitarstjórnarkosningum og þegar forsendur breytast verulega. Jafnframt er lagt til að fjármála- og áhættustýringarsviði verði falið að undirbúa grunnreglur stefnunnar, móta og innleiða stjórntæki áætlunargerðar ásamt því að útfæra og festa í sessi stefnur og kerfi í samvinnu við fag- og kjarnasvið borgarinnar eftir því sem við á.
Samþykkt að vísa fjármálastefnu Reykjavíkurborgar 2027-2031 til síðari umræðu í borgarstjórn sem fram fer 1. desember 2026. FAS26100029
Fylgigögn
-
Lagt til að Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir taki sæti í velferðarráði í stað Skúla Helgasonar. Jafnframt er lagt til að Bjarnveig Birta Bjarnadóttir taki sæti sem varamaður í ráðinu í stað Steinunnar.
Samþykkt. MSS26060017 -
Lagt til að Stein Olav Romslo taki sæti í skóla- og frístundaráði í stað Skúla Helgasonar. Jafnframt er lagt til að Skúli Helgason taki sæti sem varamaður í ráðinu í stað Isabel Alejandra Diaz.
Samþykkt. MSS26060016 -
Lagt til að Skúli Helgason taki sæti í leikskóla- og daggæsluráði í stað Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur. Jafnframt er lagt til að Stein Olav Romslo taki sæti sem varamaður í ráðinu í stað Bjarnveigar Birtu Bjarnadóttur.
Samþykkt. MSS26060009 -
Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 22., 29., og 30. október 2026.
11. liður fundargerðar borgarráðs frá 30. október 2026, tillaga að stofnun varúðarsjóðs í efnahag A-hluta Reykjavíkurborgar er samþykktur.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS26100019
12. liður fundargerðar borgarráðs frá 30. október; starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins 2027 er samþykktur. MSS26100011
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.
13. liður fundargerðar borgarráðs frá 30. október; gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2027 er samþykktur. MSS26100025
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.
14. liður fundargerðar borgarráðs frá 30. október; fjárhagsáætlun samráðshóps um vatnsvernd og vatnsnýtingu 2027, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26010002Fylgigögn
- Fundargerð borgarráðs frá 22. október
- Fundargerð borgarráðs frá 29. október
- Fundargerð borgarráðs frá 30. október
- Tillaga um stofnun varúðarsjóðs
- Starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins 2027
- Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2027
- Fjárhagsáætlun samráðshóps um vatnsvernd og vatnsnýtingu 2027
-
Lögð fram fundargerð íþrótta- og og útilífsráðs frá 21. október, fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. og 28. október, fundargerð menningarráðs frá 21. október, fundargerð velferðarráðs frá 21. október, fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 28. október og fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 28. október. MSS26010022
Fylgigögn
- Fundargerð íþrótta- og útilífsráðs frá 21. október
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. október
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 28. október
- Fundargerð menningarráðs frá 21. október
- Fundargerð velferðarráðs frá 21. október
- Fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 28. október
- Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 28. október
Fundi slitið kl. 16:30
Björg Magnúsdóttir Albert Guðmundsson
Silja Sóley Birgisdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar frá 3. nóvember 2026 - prentvæn útgáfa