Ráðist í ástandsmat á mannvirkjum sundlauga í Reykjavík
Á næstunni verður unnið að þrívíddarmyndatöku af mannvirkjum sundlauga Reykjavíkur, meðal annars með drónaflugi.Tilgangurinn er að fá nákvæma og samræmda mynd af ástandi mannvirkjanna svo unnt verði að sinna viðhaldi með markvissum hætti.
Út frá myndunum er hægt að meta ástand þaka, veggja, laugarkera, potta og lagna- og tæknirýma, sjá hvar viðhaldi er ábótavant og fylgjast með breytingum yfir tíma. Þrívíddarskönnunin er unnin af verkfræðistofunni EFLU í samstarfi við Reykjavíkurborg.
Aðgerðirnar miða ennfremur að því að tryggja öryggi gesta og starfsfólks, aðgengi að laugunum og rekstraröryggi.
Stutt lokun lauga á meðan tökur fara fram
Fyrstu myndatökur verða innandyra í Breiðholtslaug laugardaginn 7. nóvember og í Laugardalslaug sunnudaginn 8. nóvember. Þær myndatökur eru utan hefðbundins opnunartíma Breiðholtslaugar, en vegna þeirra seinkar opnun í Laugardalslaug til kl. 10.00 sunnudaginn 8. nóvember.
Drónamyndatökur utanhúss
Innan skamms verður jafnframt farið í drónamyndatökur utanhúss á báðum laugum þar sem þak, laugarkar og útisvæði verða mynduð. Vegna persónuverndarsjónarmiða verður lokað í tvær klukkustundir í hvorri laug á meðan þrívíddarmyndataka með dróna fer fram. Nákvæm dagsetning liggur ekki fyrir en verður kynnt með góðum fyrirvara.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Verkefninu er þó ætlað að efla sundstaði borgarinnar, nýta nútímatækni til að kortleggja viðhaldsþörfina og tryggja öryggi sundlaugargesta meðan myndavéladrónar eru að störfum.