Velferðarráð
Ár 2026, miðvikudagur 4. nóvember var haldinn 542. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:05 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Róbert Ragnarsson, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir, Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, Kristinn Jakob Reimarsson, Sigþrúður Erla Arnardóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. nóvember 2026, þar sem tilkynnt er að Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir hafi verið kosin aðalfulltrúi í velferðarráði í stað Skúla Þórs Helgasonar og að Bjarnveig Birta Bjarnadóttir hafi verið kosin varafulltrúi í velferðarráði í stað Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur, á fundi borgarstjórnar þann 3. nóvember 2026. MSS26060017.
Fylgigögn
-
Lögð fram samþykkt fyrir velferðarráð Reykjavíkurborgar, sem var breytt á fundi borgarstjórnar 20. október 2026, ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. nóvember 2026. MSS26080081.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgniúttektar Innri endurskoðunar á félagslegri heimaþjónustu. Einnig lögð fram eftirfylgniskýrsla Innri endurskoðunar og ráðgjafar um félagslega heimaþjónustu, dags. 13. október 2026, ásamt bréfi Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 27. október 2026 og afgreiðslubréfi frá fundi endurskoðunarnefndar 13. október 2026. VEL26030119.
Ingunn Ólafsdóttir, Innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar, og Skúli Magnússon, verkefnastjóri á skrifstofu Innri endurskoðunar og ráðgjafar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 13:43 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundinum.
- Kl. 13:47 tekur Halldór Bachmann sæti á fundinum.Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúarnir þakka fyrir greinargóða kynningu á eftirfylgni Innri endurskoðunar á félagslegri heimaþjónustu við úttekt frá árinu 2021. Stjórnendur hafa brugðist við átta af átján ábendingum. Tíu ábendingar eru enn opnar og þar af ein sem er metin sem nokkur áhætta. Fulltrúarnir leggja áherslu á að stjórnendur setji í forgang að bregðast við framkomnum ábendingum, og leggi fram tímasetta verkáætlun. Að mati Innri endurskoðunar og ráðgjafar eru líkur til þess að stofnun þjónustueininga fyrir annars vegar börn- og fjölskyldur og hins vegar félagsþjónustu og húsnæðismál muni einfalda úrvinnslu ábendinga. Einkum varðandi samræmingu verklags, innleiðingu atvikaskráningakerfis og uppfærslu gæðaskjala.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á svari velferðarsviðs við fyrirspurn endurskoðunarnefndar um fjárhagsaðstoð. Einnig lagt fram afgreiðslubréf frá fundi endurskoðunarnefndar frá 21. september 2026. VEL26100082.
Heiðrún Una Unnsteinsdóttir, teymisstjóri árangurs og gæðamats, og Sigrún Skaftadóttir, deildarstjóri virkni og ráðgjafar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn þakkar fyrir góða kynningu. Fram kemur að stór hluti þeirra sem nú þiggja fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg er fólk frá Úkraínu. Þar á eftir eru notendur frá Palestínu og Venesúela. Í öllum tilvikum er um að ræða hópa sem Alþingi og ríki hafa boðið landvistarleyfi vegna aðstæðna í heimalandinu. Það er mikilvægt að íslenskt samfélag taki vel á móti fólki sem leitað hefur hingað vegna stríðs og tryggi því þann stuðning sem það þarf. Sú stefna kallar jafnframt á að ríkið tryggi sveitarfélögum fullnægjandi fjármögnun vegna þess kostnaðar sem henni fylgir. Mikilvægt er því að endurskoða kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga þannig að Reykjavíkurborg beri ekki óeðlilega stóran hluta kostnaðarins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins lýsa áhyggjum af þeirri neikvæðu umræðu sem átt hefur sér stað um fjárhagsaðstoð til fólks af erlendum uppruna, þar sem gefið hefur verið í skyn að útlendingar séu í stórum stíl að misnota íslenska velferðarkerfið. Samantekt velferðarsviðs gefur allt aðra mynd. Fjölgun erlendra ríkisborgara sem þiggja fjárhagsaðstoð á undanförnum árum skýrist að verulegu leyti af komu fólks sem flúði stríðið í Úkraínu, en einnig komu flóttafólks frá Venesúela og Palestínu. Gögnin sýna jafnframt að fjárhagsaðstoð er í flestum tilvikum tímabundin og að erlendir ríkisborgarar eru að jafnaði skemur á fjárhagsaðstoð en íslenskir. Þá hefur notendum fjárhagsaðstoðar fækkað verulega frá árinu 2022, þrátt fyrir áframhaldandi fjölgun íbúa af erlendum uppruna. Ríkið endurgreiðir Reykjavíkurborg jafnframt umtalsverðan hluta kostnaðarins vegna aðstoðar við erlenda ríkisborgara. Mikilvægt er að umræða um fjárhagsaðstoð byggist á staðreyndum en ekki tortryggni í garð tiltekinna hópa af því að fjárhagsaðstoð er mikilvægt öryggisnet fyrir fólk í erfiðri stöðu.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum voru 63% þeirra sem nutu fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar árið 2025 erlendir ríkisborgarar. Erlendir ríkisborgarar með lögheimili í Reykjavík eru um tæpur fjórðungur. Ef miðað er við hlutfall af fjölda íbúa eru 1% Reykvíkinga með íslenskt ríkisfang á fjárhagsaðstoð, á móti um þriðjungi Reykvíkinga með úkraínskt eða palestínskt ríkisfang. Fjárhagsaðstoð á að vera leið til sjálfstæðrar framfærslu. Fyrir vinnufært fólk þarf að fylgja henni raunveruleg krafa um virka atvinnuleit, íslenskunám eða önnur úrræði sem leiða til þátttöku í samfélaginu. Það er ótækt að útsvarsgreiðendur standi undir sívaxandi framfærslu- og þjónustukostnaði vegna óásættanlegrar innflytjendastefnu núverandi ríkisstjórnar sem og forvera hennar. Húsnæðismarkaður, skólar og velferðarþjónusta eru þegar undir miklu álagi sem bitnar verulega á þjónustu borgarinnar. Miðflokkurinn leggur til að ríkið stöðvi frekari móttöku og staðsetningu fólks með vernd í Reykjavík. Nú þegar er komið yfir þolmörk borgarinnar til móttöku frekari hælisleitenda.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 2. nóvember 2026, við fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um útgjöld Reykjavíkurborgar vegna fjárhagsaðstoðar og ríkisfang notenda á fjárhagsaðstoð, sbr. 14. lið fundargerðar velferðarráðs frá 7. október 2026. VEL26100049.
Heiðrún Una Unnsteinsdóttir, teymisstjóri árangurs og gæðamats, og Sigrún Skaftadóttir, deildarstjóri virkni og ráðgjafar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Minnisblað um gjaldskrá stuðningsþjónustu og fyrirkomulag þrifþjónustu. VEL26080114.
Frestað. -
Lagt fram fundadagatal velferðarráðs fyrir janúar - júní 2027. VEL26100073.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 7. október 2026, um framlengingu samnings um samræmda móttöku flóttafólks, ásamt fylgiskjölum, sbr. 8. lið fundargerðar velferðarráðs frá 7. október 2026:
Lagt er til að samþykkt verði að framlengja þjónustusamning Reykjavíkurborgar og félags- og húsnæðismálaráðuneytis um samræmda móttöku flóttafólks um eitt ár eða til 31. desember 2027. Þá er jafnframt lagt til að fjöldi flóttafólks sem Reykjavíkurborg veitir þjónustu á grundvelli samningsins verði 1.500.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26110011.
Samþykkt með sex atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Vinstrisins og Framsóknarflokksins gegn einu atkvæði fulltrúa Miðflokksins.
Vísað til borgarráðs.Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins fagna því að samningur um samræmda móttöku flóttafólks verði framlengdur og að Reykjavíkurborg muni áfram sinna þessu mikilvæga verkefni. Samræmd móttaka er gríðarlega mikilvægt inngildingarverkefni þar sem fólk sem hefur leitað hér skjóls fær stuðning við að fóta sig í nýju samfélagi, meðal annars við að finna húsnæði, koma börnum í skóla og fá aðgang að þeirri þjónustu sem það þarf. Markmiðið er að fólk geti búið sér gott líf og orðið virkir þátttakendur í samfélaginu. Þá er sérstaklega ánægjulegt að flest starfsfólk alþjóðateymis borgarinnar sem áður hafði fengið uppsögn fái nú tækifæri til að halda áfram störfum við verkefnið. Þar býr mikilvæg þekking og reynsla sem skiptir máli fyrir gæði þjónustunnar og samfellu í stuðningi við flóttafólk.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Miðflokkurinn leggur til að afgreiðslu tillögu um framlengingu þjónustusamnings Reykjavíkurborgar og félags- og húsnæðismálaráðuneytis um samræmda móttöku flóttafólks verði hafnað. Ríkisstjórnin getur ekki haldið áfram að taka ákvarðanir sem skapa varanlegan kostnað í félagsþjónustu sveitarfélaga. Reykjavíkurborg er nú þegar komin vel yfir sín þolmörk. Kerfi borgarinnar hreinlega ráða ekki við fleiri flóttamenn. Við þurfum að ná tökum á málaflokknum innan borgarinnar áður en gerður er jafn viðamikill samningur við ríkið. Reykjavíkurborg hefur staðið sína plikt en núna þarf ríkið að finna aðrar lausnir en að koma vandanum og útgjöldum vegna málaflokksins frá sér og yfir á Reykvíkinga. Fyrir liggur að mikil vinna er framundan við að reyna að ná vel utan um þann hóp sem við höfum tekið á móti og hjálpa honum að aðlagast Íslandi. Við megum ekki við áframhaldandi fjölgun á bótakerfið og því legg ég til samningurinn við ríkið verði ekki samþykktur í óbreyttri mynd. Ef það liggur fyrir að samningurinn verður framlengdur þá þarf að rýna betur í áhrif núgildandi samnings. Skoða þarf fjárhagsleg áhrif hans á félagsþjónustu, húsnæðismál, skóla- og leikskólaþjónustu, mannafla og stjórnsýslu. Einnig þarf að sjá hversu margir þeirra sem komið hafa í gegnum samræmda móttöku eru nú að þiggja fjárhagsaðstoð hjá borginni.
Fylgigögn
- Tillaga sviðsstjóra um framlengingu samnings um samræmda móttöku flóttafólks
- Drög að IV. viðauka þjónustusamnings um samræmda móttöku flóttafólks, október 2026
- Þjónustusamningur um samræmda móttöku flóttafólks, 24. mars 2024
- Viðauki þjónustusamnings um samræmda móttöku flóttafólks, júní 2024
- II. viðauki þjónustusamnings um samræmda móttöku flóttafólks, janúar 2025
- III. viðauki þjónustusamnings um samræmda móttöku flóttafólks, 18. desember 2025
- Kostnaðarmat - Framlenging SM
-
Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.
-
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að velferðarráð feli velferðarsviði að vinna úttekt á áhrifum nýlegra breytinga á Vitatorgi á þá sem hafa nýtt sér máltíðaþjónustuna. Sér í lagi áhrif; verðhækkana, lokana um helgar og matargæða. Í úttektinni verði leitast við að svara eftirfarandi spurningum: Eru verðhækkanir frá 1. september útilokandi fyrir einhverja sem áður nýttu sér þjónustuna? Eru til samanburðartölur um fjölda keyptra máltíða fyrir og eftir gjaldskrárbreytingu? Hver er fjöldi þeirra sem hafa sótt um lægra gjaldið? Hafa borist kvartanir vegna rafræns umsóknarferlis fyrir lægri gjaldtöku? Hefur útvistun til þriðja aðila orðið til lakari gæða og ónógs matar að mati neytenda? Lagt er til að gerð verði neytendakönnun.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26110036.
Frestað.Fylgigögn
Fundi slitið kl. 15:26
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Róbert Ragnarsson Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir
Halldór Bachmann Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 4.11.2026