Hrekkjavaka um alla borg
Hrekkjavaka er á morgun og hefur hátíðin fest sig í sessi og víða er boðið upp á viðburði og dagskrá í tilefni dagsins.
Það er orðin hefð fyrir því hérlendis að á hrekkjavöku klæðist börn og fullorðnir skrautlegum og oft skelfilegum búningum.
Skrímsli, vampírur og aðrar dularfullar verur skríða út úr skúmaskotum sínum til að hrella þá sem á vegi þeirra verða og banka gjarnan á dyr til að sníkja góðgæti.
Draugalegar skreytingar eru á húsum og gróðri og útskorin grasker lýsa upp myrkrið.
Gróðurhúsið á Lækjartorgi er komið í hrekkjavökubúning og víða er boðið upp á dagskrá í tilefni dagsins.
Keltneskur siður
Hrekkjavaka er hátíðisdagur ættaður frá keltum og er haldinn hátíðlegur 31. október ár hvert, daginn fyrir Allraheilagramessu sem er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar.
Á Írlandi og Skotlandi var hefð fyrir því að á hrekkjavöku var kertaljósum komið fyrir í útskornum næpum eða rófum. Bæði unglingar og fullorðnir fóru á milli húsa klæddir búningum með grímur og gerðu öðrum gjarnan einhvern grikk í leiðinni.
Þegar Írar og Skotar fluttust búferlum til Ameríku á 19. öld fluttist hrekkjavakan með þeim. Með tímanum hafa graskerin tekið við af næpunum á hrekkjavökuhátíðinni í Bandaríkjunum og svo er víðast hvar annars staðar.
Grikk eða gott
Í Reykjavík verður hrekkjavökudagskrá víða í boði um allar borg. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður með skelfilega dagskrá í garðinum, í Grasagarðinum verður listasamiðja á hrekkjavökunni og bókasöfnin bjóða upp á hrekkjavökusmiðjur.
Víða í hverfum borgarinnar eru viðburðir í boði og nú er hægt að merkja hús sín inn á kort til að láta vita að þar sér góðgæti í boði fyrir góðan grikk. Draugalegar skreytingar eru alls ráðandi, útskorin grasker standa gjarnan við útidyrahurð húsa og húsráðendur eru sjálfir í draugalegum búningum.
Minnum alla á að fara varlega, búa sig eftir veðri og skemmta sér hryllilega vel!
Hrekkjavökur í hverfum:
- Hrekkjavaka í 101
- Hrekkjavaka í Hlíðunum
- Hrekkjavaka í Laugarneshverfi 105
- Hrekkjavaka Langholts- og Vogahverfi
- Hrekkjavaka í 108
- Hrekkjavaka í Norðlingaholti
- Hrekkjavaka 110
- Hrekkjavaka í Rimahverfi
- Hrekkjavaka í Breiðholti
- Hrekkjavaka í Úlfarsárdal