Fjölbreytt dagskrá á UNGLIST 2026

Dansinn dunar á Unglist 2025

Unglist 2026, listahátíð ungs fólks hefst laugardaginn 31. október næstkomandi og stendur til 7. nóvember. Frítt er inn á alla viðburði.

UNGLIST - Listahátíð ungs fólks, er vettvangur fyrir upprennandi listafólk til að láta ljós sitt skína og hefja menningu ungs fólks á aldrinum 16-25 ára til vegs og virðingar. 

Dansinn dunar, hljóðfæri eru þanin, söngurinn ómar, leikarar etja kappi í spuna, fyrirsætur spranga um tískupalla og óheft myndsköpun og skáldskapur eiga sinn fasta sess á hátíðinni. Unglist er hátíð þar sem fjölbreytileikinn þrífst og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Ungir leikarar spreyta sig á sviði á Unglist 2025
Ungir leikarar spreyta sig á sviði á Unglist 2025

Ungu fólk gesfst einstak tækifæri á að koma menningu ungs fólks á framfæri og sýna listsköpun sína allt frá hugmynd til framkvæmdar. 

Meðal dagskrárliða er Leikhúsfestival í Tjarnarbíói, Dans pop up og Kór og klór í sundhöllinni, Kvikyndi – stuttmyndahátíð og Listasmiðjur þar sem nemendur á myndlistarbraut FB sýna verk sín.

Hljómsveit á sviði í Hinu húsinu á Unglist 2025
Hljómsveit á sviði á tónleikum í Hinu Húsinu á Unglist 2025

Iceland Airwaves off-venue verður í Hinu Húsinu þar sem grasrót í íslensku tónlistarsenunni tekur yfir sviðið í Elliðaárdalnum og flytur fjölbreytta tónlist. Að lokum er það svo tískusýningin Éclat þar sem fatahönnuðir framtíðarinnar á hönnunar- og klæðskerabraut við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og Tækniskólann sýna afrakstur vinnu sínnar. 

Kór og klór í Sundhöll Reykjavíkur
Kór og klór í Sundhöll Reykjavíkur 

Frítt er inn á alla viðburði Unglistar.

Unglistin hefur allt frá upphafi verið haldin af Hinu Húsinu, miðstöð ungs fólks, sem heyrir undir menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar. 

Andaðu að þér ferskum andblæ framtíðarlistar!

Öll velkomin!