Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2026

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar afhent í Höfða. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir verðlaunahafi og Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri við Höfða að lokinni athöfn.
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar afhent í Höfða. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir verðlaunahafi og Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri við Höfða að lokinni athöfn.

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2026 fyrir handritið að ljóðabókinni Deig, sem kemur út samdægurs og verðlaunin verða afhent.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. 

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar hafa verið veitt af Reykjavíkurborg frá árinu 1994 til minningar um skáldið Tómas Guðmundsson. Frá árinu 2004 hafa verðlaunin verið veitt fyrir óútgefið handrit að ljóðabók. Markmið þeirra er að styðja við íslenska ljóðlist og hvetja til nýsköpunar á sviði bókmennta. Verðlaunaféð nemur einni milljón króna og hefur Reykjavík bókmenntaborg UNESCO umsjón með verðlaununum. Alls bárust 78 handrit í samkeppnina í ár.

Fjölhæfur rithöfundur og sviðslistakona

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er rithöfundur og sviðslistakona sem hefur starfað á fjölbreyttum vettvangi lista og bókmennta. Fyrsta ljóðabók hennar, Sítrónur og náttmyrkur, kom út árið 2019 og sú næsta, Urðarflétta, árið 2022. Hún hefur jafnframt samið verk fyrir leikhús og útvarp og unnið að fjölbreyttum sviðslistaverkefnum.

Ragnheiður Harpa er ein sex skálda í höfundahópnum Svikaskáldum, sem hafa meðal annars sent frá sér ljóðabækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd, Ég er fagnaðarsöngur og Nú sker ég netin mín. Skáldsaga hópsins, Olía, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2021. Hún hefur einnig skrifað barnabókina Eyja og sólarsteinninn.

Í ljóðabókinni Deig beinir Ragnheiður Harpa sjónum sínum að hráefni mannlegrar tilveru, hversdeginum og þeim töfrastundum sem leynast í hinu hversdagslega. Fortíð og framtíð mætast í ljóðmyndum þar sem minningar flæða upp úr skúffum, framtíðin birtist á silfurmynd og leitað er að griðastöðum, jafnt innan veggja heimilisins sem utan þess.

Deig er þriðja ljóðabók Ragnheiðar Hörpu í eigin nafni og kemur út miðvikudaginn 28. október, sama dag og verðlaunin verða afhent. Mál og menning (Forlagið) gefur út. 

Umsögn dómnefndar: 

Í umsöng dómnefndar segir meðal annars:

„Ljóðin í Deig eru í senn fallegir, djúpir og kjarnyrtir textar sem fjalla á yfirborðinu um hversdagsleika fjölskyldulífsins en vísa einnig til stærri sammannlegri veruleika þar sem dauði, draumar og hið dularfulla ráða ríkjum. Rauði þráðurinn í gegnum verkið eru fjölskyldubönd og þá sérstaklega móðurhlutverkið sem deigið í titli bókarinnar verður að eins konar myndlíkingu fyrir. Í Deig er lesandanum ekki aðeins boðið upp í ljóðrænt ferðalag, heldur einnig skynrænt, þar sem blóðappelsínur, hvítlaukur og kóríander verða að hráefnum í margra rétta, bragðmikilli veislu lífsins.“

Í dómnefnd Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar árið 2026 sátu Þorvaldur S. Helgason, formaður, Friðgeir Einarsson og Gyða Sigfinnsdóttir.

Til hamingju Ragnheiður Harpa.