Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 392

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 21. október, kl. 9:01 var haldinn 392. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Friðjón R. Friðjónsson, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Einar Þorsteinsson, Eyþór Máni Steinarsson, Pétur Hafliði Marteinsson og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Brynjar Þór Jónasson, Friðrik Klingbeil Gunnarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning um sorphirðukönnun í Reykjavík sem gerð var árið 2025.

    -    Kl. 9:09 tekur Margrét Rós Sigurjónsdóttir sæti á fundinum.

    Þóra Ásgeirsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26100125

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning um útvistun á úrgangshirðu í Breiðholti, sem samþykkt var í borgarstjórn 29. september 2026.

    -    Kl. 9:50 víkur Friðrik Klingbeil Gunnarsson af fundi. MSS26090116

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Þakkað er fyrir kynningu á útvistun úrgangshirðu í Breiðholti. Verkefnið er tækifæri til að kanna hvort veita megi jafn góða eða betri þjónustu með hagkvæmari hætti. Áhersla er lögð á skýrar þjónustukröfur, góða upplýsingagjöf til íbúa og markvisst eftirlit með framkvæmdinni. Til að tryggja raunhæfan samanburð við eigin rekstur borgarinnar verði kostnaður, þjónustugæði, áreiðanleiki og ánægja íbúa metin með sambærilegum hætti. Í lok hvers árs verður gerð könnun meðal íbúa Reykjavíkur á ánægju með úrgangshirðu og verður hún endurtekin árlega til að fylgjast með þróun þjónustunnar. Niðurstöður verði kynntar ráðinu reglulega og nýttar til að bæta úrgangshirðu í borginni.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar eru opnir fyrir því að skoða ólík rekstrarform í sorphirðu borgarinnar. Slíkar ákvarðanir verða þó að byggjast á gögnum og skýrum markmiðum. Einkarekstur er síður en svo sjálfkrafa hagkvæmari eða betri fyrir borgarbúa. Áður en ráðist er í sex til átta ára tilraun þarf að liggja fyrir hvaða vanda eigi að leysa, hver núverandi kostnaður og þjónustugæði eru og hvaða árangri er stefnt að. Nauðsynlegt er að bera saman kostnað, þjónustugæði og ánægju íbúa yfir nokkur ár, bæði við önnur hverfi og sambærileg sveitarfélög, og tryggja að hægt sé að bregðast við ef tilraunin skilar ekki árangri. Í ljósi aukinnar áherslu meirihlutans á útvistun og einkarekstur er sérstaklega mikilvægt að ákvarðanir byggist á gögnum og raunverulegum ávinningi fyrir borgarbúa, en ekki fyrirframgefnum hugmyndum um hvaða rekstrarform sé best. Rekstrarformið má aldrei verða markmið í sjálfu sér. Það eru hagsmunir borgarbúa, þjónustugæði og raunveruleg hagkvæmni sem eiga að ráða för.

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Einkavæðing hirðunnar í Breiðholti er síður en svo töfralausnin sem bætir þjónustu við íbúa og lækkar um leið gjöldin. Það er skoðun Vinstrisins að Reykjavíkurborg standi sig afar vel í þeim lögbundnu verkefnum sem hún nú sinnir á því sviði. Það sýna viðhorfskannanir. Það er líka skoðun Vinstrisins að Reykjavík eigi sjálf að bera ábyrgð á þeim verkefnum sem úrgangsmálin kalla á, minnka sóun, þróa lausnir í umhverfisvernd, innleiða hringrásarhagkerfið og stemma stigu við loftslagsbreytingum af mannavöldum. Því er best að sorphirðan sé á einni hendi, hjá borginni. Í umræðunni um sorphirðuna og úrgangsmálin virðast þessi atriði því miður gleymast og nú eru komnir til valda flokkar sem skeyta engu um að axla ábyrgð á þessum brýnu og aðkallandi málum samtímans og velja frekar að telja baunir og setja þær fáu sem gætu fundist, í skálar einkaaðila, án þess að vita hver útkoman verður. Þetta er bæði óábyrgt og ber vott um hugmyndafræðilega fátækt.
     

  3. Lögð fram lýsing skipulagsgerðar Aðalskipulags Reykjavíkur 2040, dags. í október 2026, um miðstöð um öryggisráðstafanir á Hólmsheiði, skilgreining samfélagsþjónustu (S63). Lagt er til að lýsingin verði kynnt og leitað umsagna þeirra aðila sem taldir eru upp í henni.
    Samþykkt að kynna lýsingu að aðalskipulagi í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins, Kópavogsbæ, Garðabæ, Hafnarfjarðarkaupstaði, Seltjarnarneskaupstaði, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Skipulagsstofnun, Vegagerðinni, Veitum, Umhverfis- og orkustofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Minjastofnun, Borgarsögusafni, Landi og skógi, Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, Fangelsismálastofnun, Framkvæmdarsýslunni – Ríkiseignum (FSRE), Landsneti, Fisfélagi Reykjavíkur, Fáki – hestamannafélagi, landeigendum í nágrenni, fleiri aðilum eftir því sem þörf er á og kynna hana fyrir almenningi.
    Vísað til borgarráðs.

    Margrét Lára Baldursdóttir og Svana Rún Hermannsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26100141

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar tekur undir mikilvægi þess að byggja upp sérhæft úrræði þar sem öryggi almennings, skjólstæðinga og starfsfólks fer saman við mannúðlega þjónustu og endurhæfingu. Ráðið styður að lýsingin verði kynnt og leitað umsagna. Við áframhaldandi skipulagsvinnu verði lögð áhersla á vandað mat á staðarvali, vernd náttúru og vatns og að útivist og stígatengingar á Hólmsheiði skerðist sem minnst. Tryggt verði virkt samráð við hagaðila og skýra verkaskiptingu ríkis og borgar um innviði og kostnað.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks um að fallið verði frá frekari vinnu við breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040, sbr. mál USK24080161 í málaskrá borgarinnar og málinu lokað.
    Samþykkt. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK24080161

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
    Með tillögunni er fallið frá þéttingaráformum síðasta kjörtímabils í Grafarvogi og viðkomandi máli lokað í Skipulagssjá. Mikilvægt er að eyða óvissu meðal íbúa um þessi áform og tryggja að opinber skipulagsgögn endurspegli ákvörðunina. Með skýrum ákvörðunum, gagnsæi og raunverulegu samtali við íbúa vill meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks byggja upp traust í Grafarvogi. Meirihlutinn leggur áherslu á að framtíðaruppbygging í grónum hverfum taki mið af sérkennum þeirra, innviðum og gæðum nærumhverfis og verði mótuð í virku samráði við íbúa.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Það er alltaf mikilvægt og nauðsynlegt að hlusta á og taka tillit til sjónarmiða íbúa. En við þurfum líka og ekki síður að horfa til hagsmuna hverfisins og borgarinnar í heild - bæði til skemmri og lengri tíma. Skipulag þarf ekki aðeins að taka mið af þeim sem búa í hverfinu í dag, heldur líka þeim sem vilja búa þar í framtíðinni. Ungu fólki sem vill eignast sína fyrstu íbúð og eldra fólki sem vill minnka við sig án þess að yfirgefa hverfið. Íbúum í Reykjavík mun fjölga verulega á næstu áratugum og við glímum nú þegar við húsnæðis- og innviðaskuld. Skynsamleg uppbygging í grónum hverfum getur nýtt skóla, veitur, samgöngur og nærþjónustu betur. Fleiri íbúar skapa jafnframt betri grundvöll fyrir hverfisverslun, þjónustu og fjölbreytt atvinnulíf. Ef við nýtum ekki þessi tækifæri eykst þrýstingur á útþenslu byggðar, lengri ferðalög, meiri umferð og kostnaðarsamari innviði. Það er mikilvægt og sjálfsagt að hlusta á ólíkar skoðanir íbúa borgarinnar. En ábyrgð okkar er líka að skipuleggja borgina fyrir komandi kynslóðir.

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Að falla frá áformum um áframhaldandi uppbyggingu húsnæðis og fegrun grænna svæða í Grafarvogi, sem var vel unnið verkefni og byggt á gögnum og ítarlegri rýni, er afar óskynsamlegt í fjölmörgu tilliti. Mun sagan ekki fara vel með þessa ákvörðun Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks.
     

  5. Fram fer kynning á stöðu verkefna og fyrirhuguðum framkvæmdum næsta árs við Hlemm.

    -    Kl. 10:51 víkur Brynjar Þór Jónasson af fundi.

    Rebekka Guðmundssóttir, Grétar Mar Hreggviðsson og Rúnar Gísli Valdimarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25080332

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti DCB fagnar yfirstandandi uppfærslu á Hlemmsvæðinu og styður að umbreytingu svæðisins verði haldið áfram. Hlemmstorg verður lykilhlekkur í bættu aðgengi almenningssamgangna og virkra ferðamáta að miðborginni og um leið grænt og aðlaðandi borgarrými fyrir fólk. Sérstakt ánægjuefni er áherslan á leik, aðgengi fyrir alla og aukinn gróður. Framundan eru mikilvægar framkvæmdir Veitna og verksamningur um framkvæmdina er í gildi. Meirihlutinn leggur áherslu á að áfram verði lögð rík áhersla á samhæfingu framkvæmda, skýra upplýsingagjöf til íbúa og rekstraraðila og öruggar og greiðfærar leiðir um svæðið á framkvæmdatíma. Mikilvægt er að áætlanir um verklok standist svo borgarbúar geti sem fyrst notið hins nýja Hlemmsvæðis til fulls.
    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því innilega að sjá hversu mikill kraftur er í framkvæmdum við Hlemm. Torgið er að verða mikilvægur áfangastaður í borginni og eflist ár frá ári sem mótvægi við aðra kjarna vestar í miðborginni. Þannig styrkist miðborgin sem heild og fjölbreytni mannlífsins eykst. Jafnframt er ánægjulegt að sjá framkvæmdum Betri samgangna við Borgarlínuna á efsta hluta Laugavegar vinda fram. Með tilkomu Borgarlínunnar við Hlemm mun torgið endurheimta hlutverk sitt sem mikilvægur upphafs- og endapunktur almenningssamgangna fyrir íbúa og gesti miðborgarinnar. Þar með skapast enn betri forsendur til að leysa úr læðingi þau miklu tækifæri sem svæðið býr yfir. Framkvæmdirnar við Hlemm og endurnýjun svæðisins í kring sýna hvernig skýr framtíðarsýn og metnaðarfull fjárfesting í almenningsgæðum, svo sem mannvænum torgum og öflugum almenningssamgöngum, stuðlar að meira lifandi, aðgengilegri og skemmtilegri borg fyrir okkur öll.
     

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á fyrirhuguðum framkvæmdum við strætóstöðina í Mjódd.

    Rebekka Guðmundssóttir, Grétar Mar Hreggviðsson og Rúnar Gísli Valdimarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 11:24 víkur Gunnar Hersveinn Sigursteinsson af fundi. USK25050042

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis- og skipulagsráði lýsa ánægju sinni yfir fyrirhuguðum endurbótum á strætóstöðinni í Mjódd og farþegasal við Þönglabakka. Bætt lýsing, aðgengi fyrir alla, skjól og rauntímaupplýsingar eru mikilvæg skref til að auka öryggi og bæta þjónustu við farþega. Áhersla er lögð á að framkvæmdum verði fylgt eftir í virku samstarfi við Strætó, lögreglu og félags- og frístundastarf svo Mjódd verði öruggur og aðlaðandi samgöngukjarni fyrir alla aldurshópa.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Skiptistöðin við Mjódd er sú stoppistöð Strætó sem er að jafnaði með sem flest innstig á dag á öllu höfuðborgarsvæðinu og þjónar auk þess mikilvægu hlutverki í samgöngum fyrir Breiðholt sem er fjölmennasta hverfi borgarinnar. Endurbætur á biðsal stöðvarinnar og bætt aðstaða og þjónusta fyrir farþega er því löngu tímabær sem mikilvægt er að komist til framkvæmdar sem fyrst. Farþegar Strætó eiga þá virðingu skilið að fjárfest sé með raunverulegum hætti í þeim mikilvægu innviðum sem almenningssamgöngur eru. 

    Fylgigögn

  7. Fram fer kynning á tillögu að breytingu á efstu hæð bílahússins við Bergstaðastræti í P1 stæði.

    Matthías Bernhöj Daðason tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26100073

    Fylgigögn

  8. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna- og borgarhönnunar dags. 6. október 2026 þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki tillögu um að efsta hæð bílahússins Bergstaða verði opnuð almenningi sem P1-gjaldsvæði.
    Samþykkt.

    Matthías Bernhöj Daðason tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26100073

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Opnun efstu hæðar Bergstaða fyrir almenningi sem P1-gjaldsvæði bætir nýtingu þeirra 35 bílastæða sem þar eru og einfaldar rekstur. Við breytinguna geta íbúakortshafar einnig nýtt stæðin á grundvelli íbúakorta sinna. Nýtingarmælingar sýna að efsta hæðin hefur að jafnaði aðeins verið nýtt um 24% yfir daginn og því er verulegt svigrúm til betri nýtingar. Með breytingunni geta fleiri nýtt fyrirliggjandi stæði í miðborginni og dregið er úr viðhaldsþörf og rekstrarvanda vegna aðgangsstýringar á efstu hæðinni. Mikilvægt er að breytingin verði kynnt núverandi áskrifendum með góðum fyrirvara og þeim og fólki á biðlista boðnir aðrir áskriftarkostir í samræmi við tillöguna.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar samþykkja tillöguna og fagna því að bæta eigi nýtingu bílahússins Bergstaðir. Samkvæmt fyrirliggjandi nýtingartölum er nýting hússins aðeins um 24% þegar mest er og enn minni yfir sólarhringinn. Svipaða vannýtingu má sjá í fleiri bílastæðahúsum borgarinnar. Þetta vekur spurningar um áherslur í bílastæðamálum. Á sama tíma og bílastæðahúsin eru vannýtt eru uppi áform um að endurheimta götustæði, jafnvel á kostnað almenningsrýma sem hafa verið nýtt undir mannlíf og betra borgarumhverfi. Við teljum mikilvægt að nýta betur þau bílastæði sem þegar eru til staðar í bílastæðahúsum borgarinnar áður en ráðist er í að fjölga götustæðum á kostnað almenningsrýma.

    Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Þetta er svo sem ágætis breyting og í takt við þá stefnu sem umhverfis- og skipulagsráð hefur markað um betri stýringar, nýtingu og aðgengi í bílastæðahúsin. Hins vegar er það skoðun fulltrúa Vinstrisins að Reykjavíkurborg ætti að selja Bergstaði og skipuleggja íbúðauppbyggingu á lóðinni. Væri það spennandi þróunarverkefni, betri nýting lóðarinnar og myndi stuðla að fjölgun íbúa í hjarta miðborgarinnar og þar með betri nýting allra innviða. 
     

    Fylgigögn

  9. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 12. október 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  11. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Landslags og umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmörkun Árbæjarlóns er fjarlægð þar sem það er ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir Elliðaár skilgreindir í stað lónsins. Þá er skilgreint nýtt hlutverk Árbæjarstíflu sem aðgengileg göngutenging yfir Elliðaárnar ásamt því að breytingar verða á aðliggjandi stígum og áningarstöðum beggja megin stíflunar. Breytingin tekur einnig til Rafstöðvarvegar þar sem breytingar verða á stígakerfi og útfærslum þar sem vegurinn fer um Rafstöðvarsvæðið. Markmiðið er að umhverfi og dalurinn allur verði áfram einstök náttúru- og útivistarperla, skv. uppdrætti Landslags, dags. 27. febrúar 2026 og greinargerð Landslags, dags. 25. febrúar 2026. Einnig er lögð fram skýrsla Verkís, dags. í september 2025, um áhrifamat vatnshlota vegna breytinga á Árbæjarstíflu og framkvæmda við nýja brú. Tillagan var auglýst frá 21. apríl 2026 til og með 2. júní 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram drög að umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. október 2026.
    Frestað. USK25110138
     

  12. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 17. september 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að fegrunarviðurkenningum Reykjavíkurborgar fyrir árið 2026 vegna vandaðra lóða og endurbóta á eldri húsum. USK26050242
     

    Fylgigögn

  13. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 1. október 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Laufásvegar 19 og 21-23 og Þingholtsstrætis 34. USK25120032
     

    Fylgigögn

  14. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 1. október 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna nýrrar innviðalóðar fyrir farsímastaur. USK26070011
     

    Fylgigögn

  15. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 1. október 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar - Fenjanna vegna lóðarinnar nr. 1 við Grensásveg. USK26070028
     

    Fylgigögn

  16. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 10. október 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að breytingu á deiliskipulag Sunda vegna lóðarinnar nr. 18 við Dyngjuveg, leikskólinn Sunnuás. USK26040107
     

    Fylgigögn

  17. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um endurskoðun aðgerðarbundinnar Umferðaröryggisáætlunar Reykjavíkurborgar til næstu fimm ára, sbr. 13. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. október 2026.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK26100231
     

    Fylgigögn

  18. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Óskað er eftir að fram fari kynning á fundi ráðsins um hvað er á teikniborðinu í deiliskipulagsvinnunni sem er sérstaklega ætlað eldri borgurum. Eru þar á meðal lífsgæðakjarnar fyrir eldri borgara? Eru þar á meðal íbúðir fyrir 60+? Eru þar á meðal þjónustuíbúðir? Eru þar á meðal hjúkrunarheimili? Eru þar á meðal búsetukjarnar eða annars konar búsetuform? Hvað er reiknað með að það sem er í vinnslu núna mæti þörfum margra?

    Greinargerð fylgir fyrirspurn. USK26100356
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 12:01

Friðjón R. Friðjónsson Ari Edwald

Birkir Ingibjartsson Einar Þorsteinsson

Eyþór Máni Steinarsson Margrét Rós Sigurjónsdóttir

Pétur Hafliði Marteinsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 21. október 2026