Velferðarráð
Ár 2026, miðvikudagur 21. október var haldinn 541. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:04 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Helgi Áss Grétarsson, Róbert Ragnarsson, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Þorvaldur Daníelsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Berglind Magnúsdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir, Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, Kristinn Jakob Reimarsson, Rannveig Einarsdóttir, Sigþrúður Erla Arnardóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á skýrslu um samspil og virkni velferðarþjónustu, dags. september 2026. VEL26100086.
Arnar Haraldsson, viðskiptafræðingur hjá HLH ráðgjöf, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Skýrsla HLH ráðgjafar varpar skýru ljósi á kerfislægan vanda í verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Óljós ábyrgð og grá svæði milli þjónustukerfa bitna ekki aðeins á fjárhag sveitarfélaganna heldur fyrst og fremst á fólkinu sem þarf á þjónustunni að halda. Sérstaka athygli vekja þau álitaefni sem varða aldrað fatlað fólk, einstaklinga með umfangsmiklar heilbrigðisþarfir og mörkin milli félags- og heilbrigðisþjónustu. Hér þarf að tryggja að ábyrgð sé skýr og fjármögnun fylgi þeim verkefnum sem sveitarfélögum er gert að sinna. Niðurstöðurnar styðja jafnframt þá stefnu sem meirihlutinn hefur markað með breytingum á stjórnskipulagi velferðarsviðs: að samræma verklag, skýra ábyrgð, efla faglega yfirsýn og tryggja rétta þjónustu á réttum tíma. Þær undirstrika einnig mikilvægi þeirra greininga sem þegar hafa verið settar af stað á þjónustubilum, kostnaðarþróun og áhrifum biðlista ríkisins. Reykjavíkurborg þarf að nýta niðurstöður skýrslunnar í áframhaldandi samtali við ríkið um ábyrgðarskiptingu og fjármögnun. Það getur ekki verið sjálfgefið að þegar þjónustu skortir hjá ríkinu falli bæði ábyrgðin og reikningurinn á sveitarfélögin.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á niðurstöðum úttektar á fyrirkomulagi fósturmála hjá Barnavernd Reykjavíkur. Einnig lagt fram minnisblað, dags. 19. október 2026, um úttekt á fyrirkomulagi fósturmála hjá Barnavernd Reykjavíkur, tillögur til úrbóta og stöðu á úrbótum. VEL26030078.
Anna K. Newton, sálfræðingur, María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur og verkefnastjóri, Þyrí Halla Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, og Arna Kristjánsdóttir, teymisstjóri fósturteymis Barnaverndar Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Velferðarráð þakkar fyrir vandaða og mikilvæga úttekt. Barnavernd Reykjavíkur fær almennt góða umsögn hagaðila, en niðurstöðurnar eru engu að síður alvarlegar og kalla á markviss viðbrögð. Fram kemur að mikið og viðvarandi álag á starfsfólk Barnaverndar Reykjavíkur hafi leitt til þess að lögum og verklagi sé ekki alltaf fylgt við vistun barna, eftirliti sé ekki ávallt sinnt samkvæmt lögum og dæmi séu um að börn fái ekki þjónustu við hæfi. Þótt stöðugildum hafi fjölgað undanfarin ár er ljóst að frekari aðgerða er þörf. Verulega úrelt málaskrárkerfi torveldar yfirsýn, eftirfylgni og samræmt verklag og eykur álag á starfsfólk. Brýnt er að fjárfesta í nútímalegu upplýsingakerfi sem einfaldar vinnuna og tryggir betri yfirsýn yfir mál barnanna. Jafnframt þarf að styrkja eftirfylgni með aðbúnaði, öryggi og líðan fósturbarna, tryggja að sjónarmið þeirra séu skráð, innleiða skýr gæðaviðmið og bæta stuðning við ungmenni eftir fósturlok. Reykjavíkurborg hefur þó ekki forræði á öllum nauðsynlegum úrbótum. Skortur á fósturúrræðum, íþyngjandi regluverk og stjórnsýslulegar hindranir kalla einnig á aðkomu ríkisins. Velferðarráð mun bregðast við niðurstöðunum með skipulögðum hætti á næstu misserum. Borgin mun bæta það sem undir hana heyrir og þrýsta af festu á þær breytingar sem ríkið þarf að ráðast í.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á ársskýrslu heimahjúkrunar 2025. VEL26100074.
Hanna María Karlsdóttir, gæða- og fagstjóri heimaþjónustu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Velferðarráð þakkar starfsfólki heimahjúkrunar fyrir mikilvægt starf og ársskýrslu sem sýnir bæði góðan árangur og tækifæri til frekari umbóta. Árið 2025 fengu 2.908 einstaklingar heimahjúkrun og starfsfólk sinnti rúmlega 181 þúsund vitjunum. Sérstaklega ánægjulegar eru niðurstöður endurhæfingarteymanna, en 64% notenda voru sjálfbjarga að fullu eða hluta við útskrift, samanborið við 57% árið áður. Það undirstrikar mikilvægi þess að efla endurhæfingu í heimahúsum svo fólk geti búið sjálfstætt eins lengi og það kýs. Árangur í nýtingu velferðartækni er sömuleiðis athyglisverður. Á árinu voru framkvæmdar 12.510 skjáheimsóknir og rafrænir lyfjaskammtarar afgreiddu tæplega 100 þúsund lyfjagjafir með 99,3% árangri. Hér liggja tækifæri til frekari þróunar. Á sama tíma vekur athygli að félagsleg einangrun mælist hjá 29,6% þeirra sem metnir voru, auk þess sem skortur á hjúkrunarfræðingum er viðvarandi áskorun. Þessar niðurstöður kalla á markviss viðbrögð. Áfram verður lögð áhersla á samþætta heimaþjónustu, öflugri endurhæfingu og aukna nýtingu velferðartækni. Þannig verður sjálfstæði eldra fólks styrkt samhliða því að þjónustan þróast í takt við vaxandi þarfir.
Fylgigögn
-
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2027. Trúnaður er um málið þar til fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027 hefur verið vísað til borgarstjórnar. VEL26100005.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar. -
Lögð fram drög að gjaldskrám velferðarsviðs 2027. Trúnaður er um málið þar til fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027 hefur verið vísað til borgarstjórnar. VEL26100006.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. -
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um samræmt verklag til að aðstoða einstaklinga við að komast út úr vændi og mansali:
Lagt er til að settur verði á fót sérstakur verkefnahópur með fulltrúum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Bjarkarhlíðar, Stígamóta og Félagsbústaða, auk þess sem óskað verði eftir aðkomu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og annarra hagaðila eftir því sem þörf krefur. Hópnum verði falið að móta tillögu að samræmdu verklagi og skýrri þjónustuleið fyrir einstaklinga sem vilja komast út úr vændi eða mansali, þar sem ábyrgð og hlutverk hvers aðila eru skilgreind og tryggð samfella í þjónustu. Sérstök áhersla verði lögð á að einstaklingar geti fengið skjótt aðgengi að öruggu húsnæði, félagslegum stuðningi, áfallamiðaðri ráðgjöf og öðrum nauðsynlegum úrræðum, án þess að þurfa sjálfir að leita milli stofnana og þjónustukerfa. Tillögum um verklag og útfærslu fylgi kostnaðarmat ef við á. Verkefnahópurinn skal skila velferðarráði tillögu að verklagi og útfærslu fyrir 20. desember 2026.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26100103.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi breytingartillögu:
Lagt er til að settur verði á fót sérstakur verkefnahópur með fulltrúum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Bjarkarhlíðar, Stígamóta og Félagsbústaða, auk þess sem óskað verði eftir aðkomu eftirfarandi aðila: Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu; eins af þeim akademísku sérfræðingum við Háskóla Íslands sem vilja vernda rétt kynlífsverkafólks með því að afglæpavæða vændi; fulltrúa samtakanna Rauðu regnhlífarinnar, samtaka kynlífsverkafólks á Íslandi. Hópnum verði falið að móta tillögur að samræmdu verklagi og skýrri þjónustuleið fyrir einstaklinga sem stunda vændi í skjóli mansals og vilja komast út úr þeirri aðstöðu. Þjónustuleið þessi á að tryggja að ábyrgð og hlutverk hvers aðila séu skilgreind og samfella í þjónustu verði efld. Sérstök áhersla verði lögð á að einstaklingar geti fengið skjótt aðgengi að öruggu húsnæði, félagslegum stuðningi, áfallamiðaðri ráðgjöf og öðrum nauðsynlegum úrræðum, án þess að þurfa sjálfir að leita milli stofnana og þjónustukerfa. Verkefnahópurinn skal skila velferðarráði tillögu að verklagi og útfærslu eigi síðar en 1. febrúar 2027.
Greinargerð fylgir breytingartillögunni.
Breytingartillagan er felld með sex atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Vinstrisins og Framsóknarflokksins, gegn einu atkvæði fulltrúa Miðflokksins.Tillaga um samræmt verklag til að aðstoða einstaklinga við að komast út úr vændi og mansali er samþykkt.
Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Vinstrisins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Í heimsókn til Stígamóta á dögunum var vakin sérstök athygli á þeim kerfislægu hindrunum sem mæta fólki sem vill komast út úr vændi eða mansali. Samkvæmt upplýsingum sem þar komu fram vilja um 90% einstaklinga í vændi hætta, en fátækt, húsnæðisleysi og áföll, sem oft liggja að baki aðstæðum þeirra, gera þeim jafnframt erfitt að sjá sér leið út. Þar við bætist skömmin sem getur gert fyrsta skrefið í átt að hjálp sérstaklega erfitt, þótt hún eigi aldrei heima hjá þolendunum. Þegar það skref er loksins tekið má þjónustukerfið ekki verða næsta hindrun. Fólk á ekki að þurfa að ganga á milli stofnana og úrræða, segja sögu sína aftur og aftur í þeirri von að einhver grípi boltann. Þess vegna er lagt til að Reykjavíkurborg, Stígamót, Bjarkarhlíð og Félagsbústaðir, ásamt lögreglunni, móti sameiginlega skýra útgönguleið með samræmdu verklagi, skýrri ábyrgð og greiðu aðgengi að húsnæði, ráðgjöf og stuðningi. Oftar en ekki felst lausnin í því að straumlínulaga samstarf ólíkra stofnana og úrræða, svo þau nái meiri árangri í þágu þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Síðan frá árinu 2009 hefur verið refsilaust að veita kynlífsþjónustu (vændi) á Íslandi en refsivert að kaupa hana. Skiptar skoðanir eru um afleiðingar þessarar stefnumótunar fyrir hagsmuni þeirra sem bjóða upp á kynlífsþjónustu, sjá til dæmis umsagnir ýmissa aðila um nýleg áform stjórnvalda um breytingar á hegningarlögum, samráðsgátt stjórnvalda, S-118/2026. Aðalatriðið hér þó, er að framkvæmd þessarar stefnu er fyrst og fremst á hendi ríkisvaldsins, ekki sveitarfélaga. Vegna þessarar ábyrgðarskiptingar á milli ríkis og sveitarfélagsins, hefur framkomin tillaga meirihlutans viss einkenni pólitískrar sýndarmennsku. Í því skyni að bæta vissa vankanta tillögunnar, svo sem að samsetning verkefnahópsins yrði fjölbreyttari, lagði fulltrúinn til breytingar á henni. Svo sem við mátti búast, var sú breytingartillaga felld. Kjarni málsins er á hinn bóginn einfaldur, félagsþjónusta sveitarfélagsins fyrir íbúa þess á meðal annars að ná til þeirra sem eru fórnarlömb mansals. Á hinn bóginn leiðir það ekki sjálfkrafa til þess að aðstoða eigi þá íbúa sem vilja hætta að veita kynlífsþjónustu, slíkt verkefni á fremur heima hjá ríkisvaldinu.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð öldungaráðs frá 30. september 2026. VEL26100076.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.
Fundi slitið kl. 17:01
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Þorvaldur Daníelsson Róbert Ragnarsson
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Helgi Áss Grétarsson
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 21.10.2026 - Prentvæn útgáfa