Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 15. október, var haldinn 5841. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:02. Viðstödd voru Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Eiríkur Búi Halldórsson, Helga Lára Haarde, og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. október 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs 7. október 2026, á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina að Langavatnsvegi 3, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.- Kl. 9.06 tekur borgarstjóri sæti á fundinum.
Ragnheiður Sigvaldadóttir, Tómas Guðberg Gíslason og Ólöf Örvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25080143
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks fagnar áformum lóðarhafa að Langavatnsvegi 3 um uppbyggingu ferðaþjónustu og útivistaraðstöðu á svæðinu. Með nýju deiliskipulagi skapast tækifæri til að auka fjölbreytni í ferðaþjónustu Reykjavíkur og bæta aðstöðu fyrir þá sem vilja njóta náttúru og útivistar í nágrenni borgarinnar. Gert er ráð fyrir tjaldsvæði, aðstöðu fyrir húsbíla, þjónustuhúsi og leiksvæði, þar sem leitast verður við að nýta núverandi innviði og varðveita gróður og náttúrulegt yfirbragð svæðisins. Jafnframt leggur meirihlutinn ríka áherslu á að fyrirhuguð uppbygging skerði ekki möguleika hestamanna til að nýta það mikilvæga reiðleiðakerfi sem liggur um Hólmsheiði. Núverandi reiðleið er mikilvæg tenging milli hesthúsahverfa á höfuðborgarsvæðinu og því nauðsynlegt að tryggja samfellu hennar og öryggi. Jákvætt er að brugðist hefur verið við athugasemdum hestamannafélaganna og að þegar hefur verið fundað með fulltrúum Fáks um mögulegar útfærslur nýrrar reiðleiðar. Mikilvægt er að þeirri vinnu verði fylgt eftir í góðu samráði við hestamenn og aðra hagaðila. Markmiðið er að skapa ný tækifæri til uppbyggingar og fjölbreyttrar útivistar á Austurheiðum, um leið og tryggt er að ólíkir útivistarhópar geti áfram nýtt svæðið með öruggum og góðum hætti.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja fyrirhugaða uppbyggingu við Langavatnsveg 3. Vel útfærð ferðaþjónusta, nýtt tjaldsvæði í Reykjavík og bætt aðstaða til útivistar geta skapað ný tækifæri fyrir atvinnulíf og gert fleirum kleift að njóta þeirrar fjölbreyttu náttúru sem Reykjavík hefur upp á að bjóða. Austurheiðarnar eru mikilvægur hluti Græna trefilsins og sameiginleg útivistarperla borgarbúa. Við uppbygginguna þarf því að leggja áherslu á að vernda náttúru og gróður, lágmarka jarðrask, tryggja fullnægjandi vatnsveitu og fráveitu og tryggja að ný starfsemi styrki möguleika almennings til fjölbreyttrar útivistar. Sérstaklega þarf að vanda til breytinga á reiðleiðinni sem liggur um svæðið. Hún er mikilvæg tenging í reiðleiðakerfi höfuðborgarsvæðisins og nauðsynlegt að tryggja að ný leið verði örugg og greiðfær og tekin í notkun áður en núverandi leið verður lögð af. Samráð við Fák og önnur hestamannafélög er þar lykilatriði. Uppbygging á Austurheiðum á að byggja á þeirri hugsun að atvinnustarfsemi, náttúruvernd og fjölbreytt útivist geti farið vel saman, öllum til hagsbóta.
Fylgigögn
-
Lagt fram trúnaðarmerkt bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 12. október 2026, varðandi kortlagningu óbyggðra lóða í Reykjavík.
Ragnheiður Sigvaldadóttir, Tómas Guðberg Gíslason og Ólöf Örvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26100051
-
Fram fer kynning á niðurlagningu heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og yfirfærslu verkefna til ríkisins.
Ragnheiður Sigvaldadóttir, Tómas Guðberg Gíslason og Ólöf Örvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26100050
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn þakkar fyrir kynningu á fyrirhugaðri niðurlagningu heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og yfirfærslu verkefna þess til ríkisins, sem á að eiga sér stað um næstu áramót. Enn eru þó óleyst atriði í útfærslu breytinganna hvað sveitarfélögin varðar, sem nú er unnið að innan Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Greining Reykjavíkurborgar bendir til þess að breytingarnar geti haft í för með sér hættu á þjónusturofi, auknu flækjustigi og lengri boðleiðum. Jafnframt er ljóst að ríkið tekur yfir tekjuskapandi verkefni heilbrigðiseftirlitsins en skilur eftir skyldur hjá sveitarfélögunum sem kunna að kalla á aukin útgjöld. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að ríkið tryggi að þessar áhættur raungerist ekki, að samfella í þjónustu verði tryggð og að breytingarnar leiði hvorki til aukins flækjustigs né lengri boðleiða fyrir Reykvíkinga sem þurfa á þjónustunni að halda. Það er jafnframt grundvallaratriði að yfirfærsla verkefna til ríkisins leiði ekki til aukinnar fjárhagslegrar byrði fyrir sveitarfélögin. Komi í ljós að breytingarnar hafi í för með sér aukinn kostnað fyrir sveitarfélögin þarf ríkið að tryggja fullnægjandi og varanlega fjármögnun. Mikilvægt er að áfram verði tryggð öflug, aðgengileg og skilvirk þjónusta við íbúa og fyrirtæki í Reykjavík, ekki síst á sviði velferðar- og skólamála, loftgæða og vatnsverndar.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja markmið ríkisstjórnarinnar um að samræma og efla heilbrigðiseftirlit á landsvísu, einfalda stjórnsýslu og tryggja jafnræði í þjónustu við almenning og atvinnulíf. Yfirfærsla verkefna frá sveitarfélögum til ríkisins er umfangsmikil breyting sem kallar á vandaðan undirbúning og náið samstarf ríkis og sveitarfélaga. Kynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sýnir að enn ríkir talsverð óvissa um verkaskiptingu, framtíð starfsfólks, fjárhagsleg áhrif og framkvæmd breytinganna um áramót. Mikilvægt er að eyða þessari óvissu sem fyrst og tryggja að engin verkefni verði út undan eða þjónusta við íbúa og fyrirtæki rofni. Sérstaklega þarf að gæta þess að glata ekki þeirri mikilvægu sérfræðiþekkingu sem byggst hefur upp hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, meðal annars á sviði loftgæða, varðandi mengaðan jarðveg, vatnsvernd og fráveitumál, mál sem tengjast hávaðakvörtunum og ráðgjöf í skipulagsmálum. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að ríki og sveitarfélög ljúki skýrri verkaskiptingu og geri raunhæfa innleiðingaráætlun fyrir áramót. Kannað verði til þrautar hvort ekki sé grundvöllur fyrir auknu samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um þau verkefni sem út af standa.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir kynningu framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur (HER) á stöðu mála vegna fyrirhugaðs flutnings heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkisins um næstu áramót. Ljóst er að undirbúningur ríkisins hefur ekki verið nægjanlegur og enn ríkir óvissa um þau verkefni sem verða eftir hjá sveitarfélögum og umfang þeirra. Breytingarnar munu hafa í för með sér umtalsverðar áskoranir fyrir Reykjavíkurborg. Hætta er á þjónusturofi við íbúa og viðskiptavini á meðan unnið er að nýju fyrirkomulagi, auk þess sem sérþekking sem byggst hefur upp innan HER kann að glatast. Jafnframt mun þjónusta við svið borgarinnar skerðast í formi umsagna, leiðbeininga og ráðgjafar. Þá blasir við aukið flækjustig í eftirlitsmálum, lengri boðleiðir, hægari vinnsla starfsleyfa og aukinn kostnaður fyrir borgina vegna umsagna og þjónustu ríkisstofnana. Mikilvægt er að tryggja að þekking, reynsla og nauðsynlegur mannskapur verði áfram til staðar hjá sveitarfélögum til að sinna þeim verkefnum sem eftir verða. Í ljósi þessarar stöðu telur Vinstrið nauðsynlegt að skýrsla verði lögð fram um stöðu undirbúnings vegna yfirfærslunnar. Þessi kynning svarar mörgum spurningum en ljóst er að enn ríkir mikil óvissa um stöðuna.
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands lýsir miklum áhyggjum yfir því hversu margt er enn óljóst í flutningi heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkis sem mun eiga sér stað við áramótin. Enn er óvissa um verkaskiptingu, fjárhagsleg áhrif og hvort starfsfólk Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur verði boðin störf hjá ríkinu til að tryggja að sérþekking á málefnum borgarinnar haldist. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur verið lykilaðili í ýmsum skipulags- og byggðamálum borgarinnar vegna sérþekkingu þeirra á m.a. loftgæðum, hávaða og vatnsvernd og verður því mikill missir að hafa ekki jafn greitt aðgengi að sérfræðingum. Ríkið mun þurfa að tryggja að boðleiðir lengist ekki og að nýja fyrirkomulagið sé skilvirkt. Tíminn er naumur og nauðsynlegt er að leysa úr óvissunni sem fyrst. Tryggja þarf ríkt samstarf milli ríkis og sveitarfélaga til þess að flutningurinn skapi ekki þjónusturof og svo sveitarfélögin geti undirbúið fyrirkomulag á þeim verkefnum sem verða eftir hjá þeim.
Fylgigögn
-
Lagt fram trúnaðarmerkt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar-ágúst 2026, dags. 15. október 2026.
Halldóra Káradóttir, Jónas Skúlason, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir og Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26050026
-
Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók borgarráðs. MSS26100044
Fylgigögn
-
Afgreiðsla og bókanir undir þessum lið er færð í trúnaðarbók borgarráðs. MSS26100053
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 12. október 2026, þar sem óskað er eftir því að borgarráð samþykki meðfylgjandi erindisbréf fyrir verkefnaráð þjónustu- og nýsköpunarsviðs, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt. ÞON20060042Fylgigögn
-
Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað borgarlögmanns, dags. 12. október, um málaferli Reykjavíkurborgar. MSS26010143
-
Lagður fram dómur Landsréttar frá 9. október 2026 í máli nr. 341/2025. MSS23020069
-
Lagður fram úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur frá 9. október 2026 í máli nr. E-1170/2026. MSS26030009
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um niðurlagningu starfshópa um innleiðingu húsnæðissáttmála og um leigumarkað, sbr. 15. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. september 2026. MSS26090046
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um niðurlagningu starfshópa um innleiðingu húsnæðissáttmála og um leigumarkað, sbr. 15. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. september 2026. MSS26090046
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 8. október 2026. MSS26010008
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 2. október. MSS26010015
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. október 2026.
7. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 7 mál (MSS26010011, MSS22030266, MSS26100037, MSS26100046, MSS26090067 MSS26090068, MSS26060172). MSS26090084
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26090120
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 12. október 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki meðfylgjandi samkomulag við félagið Emm-enn vegna stækkunar lóðar á skipulagssvæði 2C, við Elliðaárvog í Reykjavík, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt. USK26040371Fylgigögn
Fundi slitið kl. 11:28
Einar Þorsteinsson Ari Edwald
Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir
Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 15. október 2026 - prentvæn útgáfa