Tónlistar- og menningarklasi á Grensásvegi 8
Menningar- og íþróttasviði hefur verið falið, í samráði við skrifstofu eignastýringar, að hefja formlegar viðræður um leigu á húsnæði að Grensásvegi 8.
Tónlistarfólk í borginni hefur skort æfingaaðstöðu frá því að leigusamningur Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar að Hólmaslóð rann út 1. júní síðastliðinn. Félagasamtök á borð við Læti/Stelpur rokka eru jafnframt í tímabundnu húsnæði. Listafólk hefur um árabil bent á að borgin þurfi að bjóða upp á aðgengileg rými til listsköpunar.
Húsnæðið að Grensásvegi 8 er nýuppgert, um 940 fermetrar og vel tengt almenningssamgöngum. Á jarðhæð er rými með sérinngangi sem hentar fyrir samnýtta tónlistar- og menningarstarfsemi. Þar mætti meðal annars koma fyrir:
- æfingaaðstöðu fyrir listafólk og listhópa,
- rými fyrir minni tónleika og aðra menningarviðburði,
- aðstöðu fyrir námskeið, fræðslu og þróunarverkefni,
- sameiginlegri aðstöðu fyrir tónlistar- og menningarverkefni.
Með samnýtingu gæti orðið til tónlistar- og menningarklasi í hjarta borgarinnar þar sem reynslumikið listafólk og ungt listafólk vinnur hlið við hlið.
Ákvörðunin styður við markmið menningarstefnunnar List og menning í Reykjavík 2030 um bætt starfsumhverfi listafólks, aukið framboð listrýma og sjálfbæra samnýtingu menningarhúsnæðis.
Lítill viðbótarkostnaður
Áætlaður leigukostnaður er um 42 milljónir króna á ári. Leigan verður að mestu fjármögnuð með því fjármagni sem hingað til hefur farið í beina styrki til tiltekinna samtaka, þar á meðal Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar og Láta/Stelpur rokka. Stuðningur borgarinnar við þau verður þannig í formi aðgangs að húsnæðinu í stað beinna fjárveitinga. Áætlaður viðbótarkostnaður borgarinnar er innan við 5 milljónir króna á ári. Fyrirkomulagið á að nýtast fleira listafólki, skapandi fólki og hópum en áður.