Innkaupa- og framkvæmdaráð - og framkvæmdaráð fimmtudaginn 08. október 2026 nr. 198

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 8. október var haldinn 198. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir og Safa Jemai. Friðjón R. Friðjónsson, Björn Gíslason og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Jón Páll Hilmarsson starfsmaður borgarlögmanns. Hallgrímur Tómasson starfsmaður skrifstofu fjármálaþjónustu og innkaupa sat einnig fundinn. Fundarritari var Helena Rós Sigmarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram erindi þjónustu- og nýsköpunarsviðs merkt ÞON25050011, dags 2. október 2026, varðandi EES útboð nr. 16307,  Innleiðing SharePoint Online hjá Reykjavíkurborg, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að hagkvæmasta gilda tilboði frá KPMG ehf.
    Samþykkt.

    Nanna Rún Ásgeirsdóttir og Sigrún Lára Sverrisdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 21. september 2026, varðandi yfirlit yfir innkaup umhverfis- og skipulagssviðs júlí 2025 – júlí 2026. USK26090323.

    Hreinn Ólafsson, Margrét Lilja Gunnarsdóttir og Þóra Pálsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  3. Lagt er til að Safa Jemai verði varaformaður innkaupa- og framkvæmdaráðs. FAS24010025
    Samþykkt.

Fundi slitið kl. 13:45

Friðjón R. Friðjónsson Bjarni Guðjónsson

Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Safa Jemai

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 08.10.2026