Velferðarráð - Fundur nr. 540

Velferðarráð

Ár 2026, miðvikudagur 7. október var haldinn 540. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:03 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Helgi Áss Grétarsson, Róbert Ragnarsson, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Berglind Magnúsdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir, Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, Kristinn Jakob Reimarsson, Rannveig Einarsdóttir, Sigþrúður Erla Arnardóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á starfsemi Átaks, félags fólks með þroskahömlun. VEL26100003.

    Jónína Rósa Hjartardóttir, formaður Átaks, og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Átaks, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 13:08 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum.
    -    Kl. 13:14 tekur Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Velferðarráð þakkar fulltrúum Átaks - félags fólks með þroskahömlun kærlega fyrir góða og upplýsandi kynningu og fyrir mikilvægt starf félagsins í þágu réttinda, sjálfræðis og samfélagslegrar þátttöku fólks með þroskahömlun. Sérstaklega er mikilvægt að fólk með þroskahömlun hafi sjálft sterka rödd í umræðu og ákvarðanatöku um málefni sem varða líf þess og þá þjónustu sem því stendur til boða. Velferðarráð óskar félaginu áframhaldandi velfarnaðar í mikilvægu starfi sínu.

  2. Fram fer kynning á drögum að fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2027. Trúnaður er um málið þar til fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar hefur verið vísað til borgarstjórnar. VEL26100005.

  3. Lögð fram til kynningar drög að gjaldskrám velferðarsviðs 2027. Trúnaður er um málið þar til fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar hefur verið vísað til borgarstjórnar. VEL26100006.

    -    Kl. 14:15 víkur Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir af fundinum og Albert Guðmundsson tekur sæti á fundinum.

  4. Fram fer kynning á stöðu málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. VEL26100007.

    Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Velferðarráð þakkar fyrir góða og upplýsandi kynningu á stöðu þjónustu við heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Ánægjulegt er að sjá að sú umfangsmikla vinna sem farið hefur fram við framkvæmd aðgerðaáætlunar málaflokksins er farin að skila árangri. Sex aðgerðum er þegar lokið, meðal annars innleiðingu nýs verklags í neyðarþjónustu, þarfagreiningum á neyðarskýlum og sólarhringsþjónustu og fjölgun stöðugilda í VoR-teymi. Ráðið ítrekar mikilvægi þess að fjölga húsnæðisúrræðum fyrir hópinn, enda eru öruggt heimili og traustur griðastaður grundvallarforsendur þess að hægt sé að ná árangri í þjónustu og stuðningi. Þjónustan spannar í dag neyðarskýli, tímabundna búsetu og búsetu með stuðningi. Nú búa um 85 einstaklingar í húsnæðisþjónustu málaflokksins og enn fleiri nýta þjónustu neyðarskýla og VoR-teymis. Næsta mikilvæga verkefni er að styrkja enn frekar leiðina úr neyðarskýli yfir í öruggt og varanlegt heimili, með stuðningi sem tekur mið af þörfum hvers og eins. Jafnframt er mikilvægt að undirstrika að þjónusta við heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir er  sameiginlegt samfélagslegt verkefni og bæði ríkið og önnur sveitarfélög þurfa að taka þátt í uppbyggingu úrræða og tryggja að þjónustan hvíli ekki á einu sveitarfélagi.
     

  5. Fram fer kynning á húsnæðisáætlun í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. VEL26100008.

    Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun húsnæðisáætlunar í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir:

    Lagt er til að velferðarsviði verði falið að endurskoða húsnæðisáætlun í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir í takt við forsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar. VEL26100009.

    Samþykkt.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Húsnæði er ein mikilvægasta forsenda þess að hægt sé að færa fólk úr neyðarþjónustu yfir í varanlegt heimili með viðeigandi stuðningi og draga þannig úr þörf fyrir neyðarrými. Það er því mikilvægt að fyrir liggi skýr og framkvæmanleg áætlun um uppbyggingu húsnæðis í málaflokknum. Núverandi húsnæðisáætlun hefur hins vegar aldrei verið fjármögnuð og því ekki verið raunhæfur grundvöllur fyrir uppbyggingu málaflokksins. Tillagan felur í sér að áætlunin verði endurskoðuð út frá raunverulegum forsendum fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar, verkefnum forgangsraðað og skýr leið mörkuð til næstu ára. Markmiðið er ekki að draga úr metnaði heldur að tryggja að áætlanir borgarinnar séu framkvæmanlegar og að fjármunir fylgi þeim verkefnum sem ákveðið er að ráðast í.

    Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar styður endurskoðun húsnæðisáætlunar og leggur áherslu á að hugmyndafræði "Húsnæðis fyrst" verði áfram leiðarljós. Hún byggir á þeirri einföldu hugsun að öruggt heimili sé grunnurinn að því að fólk geti náð meiri stöðugleika í lífinu. Endurskoðunin þarf að byggja á metnaði um að draga úr heimilisleysi og koma í veg fyrir að fólk festist í neyðarúrræðum. Fjárhagsáætlun og uppbygging húsnæðis þurfa að endurspegla þann metnað.

    Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Vinstrið styður "Housing first" hugmyndafræðina og vill minna alla flokka á að taka tillit til þeirrar hugmyndafræði í allri sinni vinnu varðandi starf og áætlanir sem lúta að málaflokki heimilislausra.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að kanna möguleika á samrekstri úrræða fyrir heimilislausar konur:

    Lagt er til að velferðarsviði verði falið að kanna möguleika á samrekstri Konukots og tímabundinnar búsetuþjónustu fyrir heimilislausar konur sem rekin er af Reykjavíkurborg í Ármúla. VEL26100010.

    Samþykkt.
    Fulltrúi Samfylkingarinnar situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar, Vinstrisins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Konukot og tímabundin búsetuþjónusta í Ármúla sinna bæði heimilislausum konum, annars vegar í neyðarskýli og hins vegar í tímabundinni búsetu. Konukot er með 12 rúm en í Ármúla eru sex herbergi fyrir konur. Mikilvægt er að skoða þjónustukeðjuna í heild og hvort hægt sé að nýta húsnæði, mönnun og fagþekkingu betur með aukinni samþættingu eða samrekstri þessara úrræða. Slík greining þarf jafnframt að taka mið af ólíkum þörfum kvenna eftir því hvort þær þurfa neyðarskjól, tímabundna búsetu eða stuðning til að komast í varanlegt húsnæði. Sem fyrr er það leiðarljós að bæta þjónustu og nýta fjármuni og úrræði betur, auka samfellu og skapa skýrari leið úr neyð í örugga og varanlega búsetu. Það samræmist þeirri áherslu fjárhagsáætlunar 2027 að draga úr þörf fyrir tímabundin og kostnaðarsöm úrræði þar sem varanlegri lausnir geta betur mætt þörfum.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram tillaga sviðsstjóra, dags. 5. október 2026, um framlengingu samnings um samræmda móttöku flóttafólks, ásamt fylgiskjölum. VEL26100011.

    Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi málsmeðferðartillögu:

    Lagt er til að fresta tillögu um að samþykkja að framlengja þjónustusamning  Reykjavíkurborgar og félags- og húsnæðismálaráðuneytis um samræmda móttöku flóttafólks og að málið verði tekið að nýju fyrir í ráðinu eftir að ítarleg kostnaðargreining á framkvæmd samnings af þessu tagi hefur verið könnuð sem og fjárhagslegar afleiðingar fyrirliggjandi samningsdraga.

    Greinargerð fylgir tillögunni.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu við málsmeðferðartillöguna:

    Lagt er til að fresta afgreiðslu tillögu um framlengingu þjónustusamnings Reykjavíkurborgar og félags- og húsnæðismálaráðuneytis um samræmda móttöku flóttafólks. Málið verði tekið að nýju fyrir í ráðinu þegar fyrir liggja fullmótuð samningsdrög, ítarleg kostnaðargreining á framkvæmd samningsins og mat á fjárhagslegum áhrifum fyrir Reykjavíkurborg.

    Breytingartillagan er samþykkt.
    Fulltrúi Vinstrisins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram minnisblað um kostnaðarþróun skammtímadvala. VEL26080045.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 5.október 2026, við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um fjölda einstaklinga sem hafa fengið vinnu fyrir tilstilli Virknihúss, sbr. 22. lið fundargerðar velferðarráðs frá 2. september 2026. VEL26090014.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir svarið. Markmiðið með breytingunum er að skýra ábyrgð og verkaskiptingu. Vinnumálastofnun ber ábyrgð á vinnumarkaðsúrræðum og atvinnumiðlun og mikilvægt er að einstaklingar fái slíka þjónustu hjá þeim aðila sem hefur lögbundið hlutverk og sérþekkingu á því sviði. Því verður meðal annars rætt við Vinnumálastofnun um þjónustu við einstaklinga sem ekki eiga rétt til atvinnuleysisbóta.  Áherslan á að vera á árangur fyrir einstaklinginn fremur en að viðhalda tilteknu skipulagi eða starfseiningum.

    Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þetta svar staðfestir í raun þær áhyggjur sem Samfylkingin hefur haft af lokun Virknihúss en í því kemur fram að fækkun stöðugilda mun gera erfiðara að viðhalda jafn sérhæfðri atvinnuráðgjöf og Virknihúsið veitti. Árangurinn af starfinu er ótvíræður en á árunum 2023–2025 fengu 286 einstaklingar starf með stuðningi Atvinnu- og virknimiðlunar og IPS atvinnuráðgjafar og fóru þar með af fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar. Það er mikilvægt að styðja íbúa sem búa við vanvirkni til aukinnar virkni og þátttöku í samfélaginu en atvinna gegnir þar lykilhlutverki. Því er skammsýnt að veikja þessa þjónustu.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Rétt er að halda til haga að þær tölur sem vísað er til gefa ekki einar og sér fullnægjandi mynd af langtímaárangri þjónustunnar. Af þeim 286 einstaklingum sem fengu vinnu með stuðningi Atvinnu- og virknimiðlunar og IPS atvinnuráðgjafar á árunum 2023–2025 eru 62 aftur komnir með greidda fjárhagsaðstoð árið 2026. Þá hafa um 30% allra þeirra sem fengu stuðning hjá AVM og IPS fengið fjárhagsaðstoð á árinu 2026. Ekki liggja jafnframt fyrir upplýsingar um hvort þeir einstaklingar sem fóru í vinnu séu enn á vinnumarkaði né nægjanleg gögn til að meta með áreiðanlegum hætti hver fjárhagslegur ávinningur Reykjavíkurborgar hefur verið af starfseminni. Því er ekki hægt að draga þá ályktun af fyrirliggjandi gögnum að árangurinn hafi verið jafn ótvíræður og haldið er fram. Mikilvægt er jafnframt að halda því til haga að atvinnumiðlun og vinnumarkaðsúrræði eru verkefni Vinnumálastofnunar. Markmið breytinganna er því ekki að draga úr stuðningi við fólk heldur að skýra ábyrgð og verkaskiptingu og tryggja að þjónustan sé veitt af þeim aðila sem ber lögbundna ábyrgð og hefur sérþekkingu á því sviði.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 5. október 2026, við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um hvar forvarnamál tengd börnum og ungmennum verði staðsett í skipuriti velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs, sbr. 18. lið fundargerðar velferðarráðs frá 16. september 2026. VEL26090074.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Verið er að skoða skipuritið með tilliti til þess hvar forvarnarmálin eru staðsett.

    Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar furðar sig á þeirri ákvörðun að staðsetja forvarnamál Reykjavíkurborgar undir skrifstofu öldrunarmála. Forvarnir og lýðheilsa snerta vissulega borgarbúa á öllum aldri, en stór hluti forvarnastarfs borgarinnar hefur um árabil beinst að börnum og ungmennum og byggist á nánu samstarfi við skóla, frístundastarf, félagsþjónustu og foreldra. Að staðsetja verkefnastjóra forvarnamála undir skrifstofu öldrunarmála er því mjög undarlegt. Eðlilegra væri að forvarnamál heyrðu undir skrifstofu barna- og fjölskyldumála, þar sem þau væru í beinum tengslum við þá þjónustu og það faglega samstarf sem gegnir lykilhlutverki í forvörnum meðal barna og ungmenna.

    Fylgigögn

  12. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.

  13. Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Reykjavíkurborg hefur um langt árabil veitt börnum (einstaklingum undir 18 ára) viðeigandi velferðarþjónustu sem sveitarfélagið sjálft hefur skilgreint sem börn með fjölþættan vanda. Spurt er um eftirfarandi: 1) Hversu mörg börn, sem fallið hafa undir skilgreiningu borgarinnar, hafa notið þessarar þjónustu á árunum 2019–2025, sundurliðað eftir ári, upprunalandi (eða fæðingarlandi eftir þeirri flokkun sem stjórnvöld nota), kyni og aldri? 2) Hver var heildarkostnaður Reykjavíkurborgar af þessari þjónustu á þessu tímabili, árin 2019-2025, og hver var kostnaðurinn á þeirri þjónustu tímabilið 1. janúar til og með 30. júní 2026? Tekið skal fram að fyrirspurnin miðar við skilgreiningu Reykjavíkurborgar á börnum með fjölþættan vanda en ekki hver sú skilgreining er samkvæmt 3. gr. reglugerðar um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins nr. 700/2026. VEL26100047.

  14. Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Með hliðsjón af upplýsingum sem fram komu í svörum sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 1. september 2025 (VEL25060113) og dags. 29. september 2025 (VEL25090014), er óskað eftir svörum við eftirfarandi: Hver voru heildarútgjöld Reykjavíkurborgar árið 2025 vegna fjárhagsaðstoðar til einstaklinga og hver er skipting ríkisfangs þeirra sem fengu þá fjárhagsaðstoð, bæði með tilliti til fjölda og kostnaðar?  Óskað er sérstaklega eftir sundurliðun af þeim þjóðernum, sem nema meira en 1% af heildarfjölda árið 2025, og hver hafi verið heildarkostnaður af hverju þjóðerni fyrir sig.  VEL26100049.

  15. Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í ársskýrslum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar undanfarin ár er að finna töflur sem lýsa fjölda notenda sviðsins eftir tegund þjónustu, sjá til dæmis bls. 63 í ársskýrslu velferðarsviðs fyrir árið 2025. Á grundvelli þeirrar flokkunar, sem fram kemur í þessum töflum, er óskað eftir svörum við eftirfarandi spurningum: 1) Hversu margir einstaklingar á vinnualdri, 18-66 ára, voru skilgreindir sem notendur þjónustu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar árin 2021-2025, sundurliðað eftir ári, upprunalandi (eða fæðingarlandi eftir þeirri flokkun sem stjórnvöld nota), kyni og aldri? 2) Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu félagslega heimaþjónustu frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar árin 2021-2025, sundurliðað eins og að framan? 3) Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu fjárhagsaðstoð til framfærslu frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar árin 2021-2025, sundurliðað eins og að framan? 4) Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu sérstakan húsnæðisstuðning vegna húsnæðis í eigu Félagsbústaða frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar árin 2021-2025, sundurliðað eins og að framan? 5) Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu lán til framfærslu frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar árin 2021-2025, sundurliðað eins og að framan? 6) Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu einstaklingsstuðning frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar árin 2021-2025, sundurliðað eins og að framan? 7) Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu úthlutað félagslegum leiguíbúðum frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar árin 2021-2025, sundurliðað eins og að framan? Samhliða svörum við fyrrgreindum fyrirspurnum er óskað eftir því að heildarútgjöld Reykjavíkurborgar, undir hverjum lið, verði sundurliðuð. VEL26100052.

    -    Kl. 16:50 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundinum.

Fundi slitið kl. 17:03

Róbert Ragnarsson Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Albert Guðmundsson Helgi Áss Grétarsson

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Þorvaldur Davíð Kristjánsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 7.10.2026