Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 7. október, kl. 9:02 var haldinn 390. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Friðjón R. Friðjónsson, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Þorvaldur Daníelsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Sigurjóna Guðnadóttir og Elísabet Dröfn Erlingsdóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 7. október 2026 þar sem tilkynnist að Birkir Ingibjartsson taki sæti í umhverfis- og skipulagsráð í stað Heiðu Bjargar Hilmisdóttur og að Bjarnveig Birta Bjarnadóttir verði varamaður í ráðinu í stað Birkis. MSS26060015
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á vinnslutillögu Spangarinnar þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu í kringum núverandi byggingar á lóðinni. Fyrirhuguð uppbygging fer aðallega undir nýjar íbúðir en einnig skrifstofur, verslanir og þjónustu.
Þórhildur B. Guðmundsdóttir, Birgir Þór Birgisson, Aron Elí Sævarsson og Gabija Montvilaite taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25100240
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar þeirri framtíðarsýn sem birtist í vinnslutillögu fyrir Spöngina. Hér er tækifæri til að styrkja Spöngina sem öflugan og lifandi hverfiskjarna Grafarvogs og skapa um leið eftirsóknarvert íbúðarumhverfi fyrir fólk á ólíkum æviskeiðum. Þá er vert að hrósa Reitum fyrir að hafa leitað eftir sjónarmiðum íbúa Grafarvogs með könnun sem sýndi mikinn stuðning meðal þátttakenda við aukna þjónustu í Spönginni. Mikilvægt er að byggja áfram á því samtali við íbúa við þróun svæðisins. Meirihlutinn fagnar áherslu á fjölbreyttar húsnæðisgerðir, vönduð og græn dvalarsvæði, skjólgóð almenningsrými og gott samspil íbúða, verslunar og þjónustu. Tillagan gerir ráð fyrir að stór hluti bílastæða fyrir íbúa verði neðanjarðar, sem skapar aukið rými ofanjarðar fyrir gróður, mannlíf og vönduð dvalarsvæði. Við áframhaldandi útfærslu verði sérstaklega hugað að nægu og aðgengilegu framboði bílastæða fyrir íbúa og gesti verslunar og þjónustu, auk þess sem hæðir og umfang bygginga verði vandlega metin með tilliti til aðliggjandi byggðar, skuggavarps og skjóls á dvalar- og almenningsrýmum. Uppbyggingin hefur alla burði til að verða mikil lyftistöng fyrir Grafarvog og gera Spöngina að enn betri stað til að búa á, sækja þjónustu og dvelja.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Samfylkingin fagnar þeirri faglegu vinnu sem fram hefur farið við framtíðarsýn fyrir Spöngina og þeim áherslum sem lagðar eru á að styrkja hana sem lifandi og fjölbreyttan hverfiskjarna Grafarvogs. Mikilvægt er að slíkt verkefni sé unnið í góðu og virku samráði við íbúa, rekstraraðila og notendur svæðisins frá fyrstu stigum og áfram í gegnum allt skipulagsferlið. Það er ánægjulegt að sjá að forsvarsfólk verkefnisins hefur þegar leitað eftir sjónarmiðum íbúa og að niðurstöðurnar benda til áhuga og stuðnings við frekari uppbyggingu í Spönginni. Tillagan gerir ráð fyrir bæði verulegri fjölgun íbúa og aukinni atvinnu- og þjónustustarfsemi og því má gera ráð fyrir aukinni umferð um svæðið. Mikilvægt er að með áframhaldandi vinnu fylgi vandað umferðarmat þar sem sérstaklega er horft til öryggis gangandi og hjólandi vegfarenda, ekki síst barna og eldra fólks. Spöngin er mikilvægur hluti af daglegu lífi Grafarvogs og framtíð hennar þarf því áfram að mótast með fólkinu sem býr og starfar í hverfinu.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Áheyrendafulltrúi Sósíalistaflokksins fagnar því að það skuli verða haft samráð við íbúa Grafarvogs um framtíðaruppbyggingu í Spönginni og þá sérstaklega eldri borgara sem sitja margir hverjir fastir í stærri eignum og vilja minnka við sig án þess að flytja burt. Mikilvægt er að losa um þá stíflu sem hefur myndast vegna þess að ekki hefur verið hugsað um að byggja mikið við hæfi eldri borgara sem eru enn á almennum fasteignamarkaði. Með því losnar um fjölskylduhúsin og um leið fjölgar börnum aftur í hverfisskólunum. Grafarvogsbúum hefur fækkað um nokkur þúsund meðal annars vegna þess að íbúar Grafarvogs eru að eldast.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 21. september 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
Fylgigögn
-
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Betula landslagsarkitekta ehf. dags. 14. ágúst 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir lóðina að Langavatnsvegi 3. Skipulagssvæðið er staðsett norðvestan við Langavatn í austurjaðri sveitarfélagsmarka Reykjavíkur. Í tillögunni sem lögð er til felst að koma fyrir ferðaþjónustu og útisvæði á lóðinni, en afmarkað er svæði fyrir ferðaþjónustu, tjaldsvæði, húsbíla og leiksvæði á lóðinni, auk byggingarreita fyrir starfsmannahús og þjónustuhús. Verða innviðir sem svæðið hefur upp á að bjóða nýttir, eins og vegir sem eru til staðar og gróður, ásamt því að leitast verður við að tengja svæðið við nálæg svæði til útivistar, samkvæmt uppdr. Betula landslagsarkitekta ehf., dags. 28. apríl 2025, br. 21. september 2026. Einnig er lögð fram greinargerð Betula landslagsarkitekta ehf., dags. 23. apríl 2026, br. 21. september 2026. Deiliskipulagið er unnið í samræmi við rammaskipulag Austurheiða. Tillagan var auglýst frá 4. júní 2026 til og með 16. júlí 2026. Athugasemdir og ábendingar bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2026.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2026.
Vísað til borgarráðs.Svana Rún Hermannsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25080143
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn fagnar því að lóðarhafar Langavatnsvegar 3 hyggist ráðast í uppbyggingu á svæðinu og skapa þar nýja aðstöðu fyrir ferðaþjónustu og útivist. Uppbygging af þessu tagi getur aukið fjölbreytni í útivistar- og ferðaþjónustu í Reykjavík og skapað aukin tækifæri til að nýta þetta fallega útivistarsvæði. Jafnframt leggur meirihlutinn áherslu á að leyst verði með fullnægjandi hætti úr færslu þeirrar mikilvægu reiðleiðar sem nú liggur um lóðina, þannig að samfella og öryggi reiðleiðakerfisins verði tryggt. Reiðleiðin er hluti af samfelldu reiðleiðakerfi höfuðborgarsvæðisins og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir hestamennsku og útivist á svæðinu. Meirihlutinn telur því mikilvægt að áfram verði unnið að útfærslu nýrrar legu í góðu samráði við hestamenn og aðra hagaðila, samhliða framgangi uppbyggingarinnar. Jákvætt er að þegar hefur verið fundað með fulltrúum Fáks og að nokkrir valkostir um nýja legu reiðleiðarinnar verði teknir til skoðunar.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á kortlagningu ástands gangstétta í borgarlandi og skipulagi viðhalds.
Frestað. USK26090394 -
Fram fer kynning á Gufunesinu, forsögunni, stöðunni í dag og sviðsmynd fyrir 2. og 3. áfanga.
Drífa Árnadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 10:17 víkur Þorvaldur Daníelsson af fundi og Magnea Gná Jóhannsdóttir tekur sæti á fundinum. USK26030147
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 29. september 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 29. september 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Lagt fram uppfært fundardagatal umhverfis- og skipulagsráðs fyrir júní - desember 2026. USK26060196
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur til að hafinn verði undirbúningur úrbóta á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls samkvæmt sviðsmynd 2 í greiningu COWI sem lögð var fyrir umhverfis - og skipulagsráð. Þar er meðal annars gert ráð fyrir lengingu vinstribeygjuakreinar frá Bæjarhálsi, lengingu akreinar sunnan gatnamótanna og breyttri akreinaskipan frá Streng. Jafnframt verði hafinn undirbúningur að endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka, sem fjarlægt var við síðustu breytingar á gatnamótunum. Þá verði einnig kannaður fýsileiki undirganga undir Höfðabakka rétt norðan við gatnamótin til að tengja göngu - og hjólastíga beggja vegna götunnar. Áður en endanleg ákvörðun um framkvæmdir verður tekin verði lagt fyrir ráðið kostnaðarmat, áætlaður framkvæmdatími og möguleg tímasetning framkvæmda, auk upplýsinga um hvort og með hvaða hætti þurfi að bjóða verkið út.
Greinargerð fylgir tillögu.
Lögð fram svohljóðandi málsmeðferðartillaga fulltrúa Samfylkingarinnar og áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Lagt er til að tillögu um breytingar á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls verði frestað þar til frekari faglegar greiningar hafa verið gerðar á þeim viðbótum sem tillagan leggur til umfram sviðsmynd 2. Meta þarf kostnað við endurgerð á beygjuvasa frá Bæjarhálsi og leggja fram kostnaðarmat á mögulegum undirgöngum undir Höfðabakka og hvernig slík tenging muni tengjast stígakerfi borgarinnar áður en lengra er haldið.
Málsmeðferðartillaga felld með 5 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn 2 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um málsmeðferðartillögu Samfylkingarinnar og Vinstrisins:
Meirihlutinn telur ekki ástæðu til að fresta tillögunni á nýjan leik enda er gagnaöflun mikilvægur hluti þess undirbúnings sem hún kveður á um. Við undirbúninginn verði metin samanlögð áhrif fyrirhugaðra aðgerða á afkastagetu og umferðaröryggi og unnið kostnaðarmat og framkvæmdaáætlun. Niðurstöðurnar verði lagðar fyrir ráðið og nýttar til að móta endanlega útfærslu úrbótanna.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um málsmeðferðartillögu Samfylkingarinnar og Vinstrisins:
Tillaga um að ráðast aftur í breytingar á gatnamótum Höfðabakka/Bæjarhálsi er ekki nægilega undirbúin til endanlegrar afgreiðslu. Fyrir liggur fagleg greining COWI sem mælir með sviðsmynd 2 en ekki endurgerð framhjáhlaupsins. Hins vegar vantar heildarmat á samspili aðgerðanna, kostnaðarmat og skýra útfærslu á mögulegum undirgöngum og tengingu þeirra við stígakerfið. Það er því eðlilegt að fresta málinu þar til nauðsynleg gögn liggja fyrir og ráðið getur tekið upplýsta ákvörðun. Það er dapurlegt að Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Framsókn og Miðflokkur vilji ekki vanda til verka og taka endanlega ákvörðun þegar öll gögn málsins liggja fyrir og felli frestunartillögu Samfylkingar og Vinstrisins.
Upphafleg tillaga er samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn 2 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar.
- Kl. 10:45 víkja Ólöf Örvarsdóttir og Guðmundur Benedikt Friðriksson af fundinum. USK26060301
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn vill hefja undirbúning úrbóta samkvæmt sviðsmynd 2 í greiningu COWI og endurgerðar hægribeygjuframhjáhlaups frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka. Stefnt er að framkvæmd beggja aðgerða, að því gefnu að kostnaður rúmist innan fjárheimilda. Við undirbúninginn verði samanlögð áhrif þeirra á afkastagetu og umferðaröryggi metin og niðurstöðurnar nýttar til að móta endanlega útfærslu. Við endurgerð framhjáhlaupsins verði gripið til aðgerða sem miða að aukinni árvekni ökumanna, minni beygjuhraða og bættu öryggi gangandi og hjólandi. Gert verði ráð fyrir upphækkaðri gönguþverun, í samræmi við ábendingu COWI um útfærslu við endurgerð. Jafnframt verði metnar breytingar á lögun beygjunnar og bættar sjónlínur. Sérstaklega verði leitað leiða til að draga úr hættu á aftanákeyrslum. Íbúar í Ártúnsholti hafa bent á að umferð inn í hverfið hafi aukist verulega eftir breytingarnar á gatnamótunum árið 2025. Kanna þarf hvort tafir við gatnamótin hafi leitt til aukins gegnumaksturs um hverfið og hvernig megi draga úr honum. Samhliða verði kannaður fýsileiki undirganga undir Höfðabakka norðan gatnamótanna til að bæta göngu- og hjólatengingar og aðgengi fyrir alla. Kostnaðarmat og framkvæmdaáætlun verði lögð fyrir ráðið. Markmiðið er að tryggja örugga og greiða umferð um Höfðabakka og draga úr töfum og samfélagslegum kostnaði þeirra án þess að slaka á öryggiskröfum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Við áframhaldandi endurbætur á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls er mikilvægt að næstu skref byggist á fyrirliggjandi faglegum greiningum, þar sem umferðarflæði og öryggi allra vegfarenda eru höfð að leiðarljósi. Samkvæmt óháðri greiningu verkfræðistofunnar COWI er sviðsmynd 2 sú lausn sem best sameinar aukna afkastagetu gatnamótanna og bætt umferðaröryggi, bæði fyrir óvarða vegfarendur og akandi. Í greiningunni kemur jafnframt fram að endurgerð hægribeygju-framhjáhlaups frá Bæjarhálsi myndi skila takmörkuðum ávinningi fyrir umferðarflæði en draga úr umferðaröryggi. Framlögð tillaga samræmist því ekki þeim faglegu ráðleggingum sem sérfræðingar borgarinnar og ráðgjafar hennar hafa lagt til grundvallar. Fulltrúar Samfylkingarinnar eru ávallt opnir fyrir því að allir raunhæfir valkostir séu skoðaðir og styðja úrbætur í takt við sviðsmynd 2. Endurgerð framhjáhlaupsins felur hins vegar í sér kostnaðarsamar breytingar sem greiningar sýna að skila litlum ávinningi fyrir umferðarflæði og lakara umferðaröryggi. Hér er því vikið frá niðurstöðum faglegra greininga án þess að sterk rök eða ný gögn liggi til grundvallar. Það vekur upp alvarlegar spurningar um breytta nálgun við ákvarðanatöku í skipulags- og samgöngumálum borgarinnar. Meta þarf kostnað við endurgerð á beygjuvasa frá Bæjarhálsi og leggja fram kostnaðarmat á mögulegum undirgöngum undir Höfðabakka og hvernig slík tenging muni tengjast stígakerfi borgarinnar áður en lengra er haldið.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Með því að setja aftur hægri beygju á framhjáhlaup er verið að fara gegn ráðleggingum umferðarsérfræðinga COWI, auka kostnað skattgreiðenda stórkostlega og hunsa markmið aðalskipulags og allt sem er skynsamlegt til að tryggja öryggi gangandi fólks, hjólreiðamanna og bílfarþega. Það þarf þrautseigju að búa til borg fjölbreyttra og virkra ferðamáta og gefa fólki raunverulegt frelsi frekar en að festa það í bílunum sínum með auknum umferðartöfum. Allir umferðarsérfræðingar mæla gegn því að nota hægri beygju framhjáhlaup og ætti það að vera síðasti valkostur í hönnun hægribeygja. Þegar götur eru settar í megrun, þeim breytt fyrir fjölbreytta ferðamáta eða fjarlægðar þá hverfur hluti af fyrri umferðarþunga. Hann færist ekki í aðrar götur heldur hafa rannsóknir sýnt að fólk velur að ferðast öðruvísi sé valmöguleikinn fyrir hendi. Það á ekki að breyta þessum gatnamótum til baka heldur á að setja fjármagnið sem meirihlutinn ætlar að nota í þessar breytingar í almenningssamgöngur, öryggi gangandi vegfarenda og hjólastíga. Að setja aftur beygjuvasa kostar u.þ.b. 100-200 milljónir og ætli þessi meirihluti að koma fyrir undirgöngum undir Höfðabakka þá má vænta milljarðaframkvæmd. Er það góð meðferð skattfjár og fyrir hvað og hverja?
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar:
Lagt er til að fela umhverfis- og skipulagssviði að merkja sem gangbrautir, með hvítum yfirborðsmerkingum (sebrabraut) og umferðarmerki D02.11 báðum megin götu, þær gönguþveranir í Rimahverfi sem liggja á megingönguleið barna í Rimaskóla, það er þveranirnar yfir Langarima, Berjarima, Flétturima, Hrísrima, Rósarima, Mosarima, Laufrima og Sóleyjarima.
Greinargerð fylgir tillögu.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu. USK26100050Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
1. Hver ber ábyrgð á reglubundnu eftirliti með því að götulýsing og ljósastaurar séu í lagi og kveikt á þeim þegar það byrjar að dimma? 2. Hvernig er slíku eftirliti háttað og hversu reglulega fer það fram? 3. Er sérstakt eftirlit eða forgangsröðun á svæðum við skóla, frístundastarf og íþróttasvæði? 4. Hvernig er brugðist við þegar ljósastaurar eru óvirkir eða ekki kveikt á þeim og hver er almennt viðbragðstími við slíkum bilunum? 5. Er fyrirhugað að fara yfir stöðu götulýsingar nú í upphafi hausts, sérstaklega á svæðum þar sem börn og ungmenni eru mikið á ferðinni?
Greinargerð fylgir fyrirspurn.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. USK26100007Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um heildarmat COWI á breytingum við Höfðabakka, sbr. 15. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 30. september 2026.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK26090490Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um hjólanet höfuðborgarsvæðisins, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 30. september 2026.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK26090491Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um kostnað bílastæða, sbr. 17. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 30. september 2026.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. USK26090479Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Eru reglubundin þrif á niðurföllum eða er bara farið af stað ef kvörtun berst um stíflu? Er sérstök vöktun á haustin þegar hætta er á að fallandi lauf myndi stíflur?
Greinargerð fylgir fyrirspurn.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. USK26100013Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit yfir kærur og úrskurðir sem hafa borist til umhverfis- og skipulagssviðs í september 2026. USK26090044
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Óskað er eftir því að fá kynningu á Maskínukönnun sem var gerð árið 2025 um sorphirðu í Reykjavík. USK26100125
Fundi slitið kl. 11:21
Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald
Birkir Ingibjartsson Friðjón R. Friðjónsson
Magnea Gná Jóhannsdóttir Margrét Rós Sigurjónsdóttir
Pétur Hafliði Marteinsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 7. október 2026