Útboð á sorphirðu í Breiðholti
Samþykkt var á síðasta fundi borgarstjórnar að hefja útboð á sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni.
Gert er ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til 2ja ára og geti samtals orðið til 8 ára.
Útboð á sorphirðu í Breiðholti er skref í átt að því að kanna hvort veita megi borgarbúum jafn góða eða betri sorphirðu með hagkvæmari hætti. Verkefnið í Breiðholti skapar grundvöll fyrir raunhæfan samanburð á útboðinni þjónustu og eigin rekstri borgarinnar. Árangur verður metinn reglulega með hliðsjón af kostnaði, þjónustugæðum, áreiðanleika og sveigjanleika þjónustunnar.
Niðurstöður verkefnisins munu veita mikilvægar upplýsingar fyrir framtíðarákvarðanir um sorphirðu í borginni.