Samvera, tengsl og heilbrigðar ákvarðanir í brennidepli á Forvarnardeginum í ár
Málþing Forvarnardagsins fór fram í Verslunarskóla Íslands í dag en í dag er hann er nú haldinn í 21. sinn. Við athöfnina fluttu ávörp forseti Íslands, borgarstjóri Reykjavíkur og landlæknir.
Forvarnardagurinn beinist sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Markmið dagsins er að efla umræðu um þá þætti sem stuðla að velferð og heilbrigðum þroska ungmenna. Nemendur kynna sér niðurstöður rannsókna sem snúa að þeirra aldurshópi og ræða mikilvægi samveru, íþrótta- og tómstundastarfs og þess að leyfa heilanum að þroskast án áhrifa áfengis og annarra vímuefna.
Í framhaldi vinna nemendur í hópum, skrá hugmyndir sínar og taka þátt í verkefnum sem miða að því að styrkja verndandi þætti í lífi þeirra og draga úr áhættuhegðun.
Mikilvægi góðra tengsla og samkenndar
Í ávarpi sínu lagði Halla Tómasdóttir forseti Íslands áherslu á mikilvægi tengsla, samkenndar og samræðna. Forsetinn velti upp spurningunni hvers konar samfélag við viljum byggja og hvatti ungmennin til að hlusta hvert á annað og taka eftir þeim sem kunna að standa til hliðar. Þá hvatti forsetinn ungmenni til að leggja símann stundum frá sér, horfa hvert á annað og taka þátt í samfélagsumræðunni í gegnum verkefnið Tölum saman.
Aðstæður sem hjálpa ungu fólki að dafna
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur sagði unglingsárin mikilvægan en jafnframt krefjandi tíma þar sem sjálfsmynd, gildi og framtíðarsýn mótast. Hún lagði áherslu á að hlutverk samfélagsins væri að skapa aðstæður þar sem ungt fólk getur dafnað og tekið góðar ákvarðanir.
Í því samhengi nefndi borgarstjóri sérstaklega mikilvægi skipulagðs íþrótta- og tómstundastarfs, samveru með fjölskyldu og aðgengis að fræðslu og staðreyndum sem styðja ungmenni í að bera ábyrgð á eigin lífi og heilsu. Einnig lagði hún áherslu á gildi vináttunnar og hvatti ungmenni til að styðja hvert annað og leita sér aðstoðar þegar á þarf að halda.
Heilinn þarf svigrúm til að þroskast
María Heimisdóttir landlæknir fjallaði um mikilvægi þess að leyfa heilanum að þroskast án áfengis og annarra vímuefna. Sú áhersla er jafnframt eitt af lykilviðfangsefnum Forvarnardagsins, þar sem fræðsla byggð á rannsóknum er nýtt til að styðja ungmenni í að taka upplýstar ákvarðanir um eigin heilsu og framtíð.
Forvarnardagurinn hefur um árabil verið mikilvægur vettvangur fyrir samtal við ungmenni um líðan, heilbrigða lífshætti og þá verndandi þætti sem rannsóknir sýna að skipta mestu máli fyrir farsæld þeirra til framtíðar.
Best í að vera við sjálf
Ungmenni úr Verslunarskólanum, þau Edda Sól Óladóttir og Magnús Geir Björgvinsson, tóku líka til máls og töluðu um að hver og einn væri bestur í að vera hann sjálfur og þannig væru allir bestir. Þau lögðu einnig áherslu á að fólk sýni samkennd og hugi að því hvernig þau komi fram við hvert annað.
Myndir tók Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.