16338 Ræsting fyrir stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar, EES útboð

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í:

Ræsting fyrir stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar, EES útboð nr. 16338

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:00 þann 1. október 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 2. nóvember 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026.