Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins

Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í gær. Frá vinstri Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Inga Dóra Sigfúsdóttir, stofnandi Ráðgjafar og greiningar.
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í gær. Frá vinstri Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Inga Dóra Sigfúsdóttir, stofnandi Ráðgjafar og greiningar.

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, og Inga Dóra Sigfúsdóttir, stofnandi Ráðgjafar og greiningar undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um endurreisn íslenska forvarnarmódelsins.

Íslenska forvarnarmódelið, sem varð til fyrir aldarfjórðungi í samstarfi rannsakenda, sveitarfélaga, æskulýðsstarfs, skóla, foreldra og íþróttahreyfingarinnar er eitt árangursríkasta forvarnarstarf sem þekkist á alþjóðavettvangi. 

Í viljayfirlýsingunni sem var undirrituð í gær er gert ráð fyrir gerð þjónustusamnings við Rannsóknir og greiningu (R&G) um framkvæmd fyrsta áfanga verkefnisins í grunnskólum Reykjavíkurborgar árið 2026, þar sem meðal annars verði notast við gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni. Jafnframt er lagt til að skóla- og frístundasviði verði falið að vinna að því í samstarfi við R&G að fullmóta tillögu að framhaldi verkefnisins fyrir árin 2027– 2029. 

Verkefni í þágu farsældar barna og ungmenna

Margt er vel gert í Reykjavík, en ýmis merki eru um aukna áhættuhegðun meðal ungmenna. Því er mikilvægt að ráðast í markvissa endurreisn þessa mikilvæga forvarnarstarfs, sem reynslan sýnir að getur skilað verulegum árangri í þágu farsældar barna og ungmenna. Innleiðingin hefst í haust og gert er ráð fyrir að starfið nái fullum krafti skólaárið 2027-2028.

Unglingar í grunnskóla
Unglingar í kennslustrund.

Markviss endurreisn forvarnarstarfs

Hlutfall nemenda í 10. bekk sem höfðu orðið ölvaðir lækkaði til að mynda úr 42% árið 1998 í um 5% árið 2016. Árangurinn hefur vakið athygli víða og módelið orðið fyrirmynd forvarnarstarfs víða um heim. Kjarni módelsins felst meðal annars í reglulegri gagnasöfnun um stöðu og líðan ungmenna og að niðurstöðunum sé hratt og með aðgengilegum hætti miðlað til skóla, foreldra, félagsmiðstöðva, íþróttafélaga og annarra sem þjónusta börn og ungmenni. 

Á þeim grunni setja aðilar á vettvangi sér markmið, móta aðgerðir, fylgja þeim markvisst eftir og nýta niðurstöðurnar til áframhaldandi þróunar starfsins. Jafnframt er lögð áhersla á að draga úr áhættuhegðun með því að beina börnum og ungmennum í uppbyggilegt starf. 

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri fagnar þessu.

Það er mikilvægt  að að styðjast við gögn og setja fram markvissar aðgerðir til að ná árangri í forvarnarmálum. Þannig náum við að bæta líðan barna og unglinga í borginni okkar.