Íþrótta- og útilífsráð
Ár 2026, föstudaginn 2. október var haldinn 34. fundur íþrótta- og útilífsráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:06. Viðstödd voru: Bjarni Guðjónsson formaður, Björn Gíslason, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Albert Guðmundsson, Stefán Pálsson, Lárus Blöndal Sigurðsson og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir. Jafnframt Ingvar Sverrisson áheyrnarfulltrúi ÍBR. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Andrés Bögebjerg Andreasen, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Atli Steinn Árnason, Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 23. september 2026 þar sem fram kemur að á fundi forsætisnefndar 22. september 2026 hafi verið samþykkt að vísa endanlegri tillögu að nýrri samþykkt íþrótta- og útilífsráðs til umsagnar ráðsins. MIR26090010.
Íþrótta- og útilífsráð gerir engar athugasemdir við samþykktina.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á Þjóðarhöll í Laugardal. MIR26090021
Ómar Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn þakkar fyrir góða kynningu á Þjóðarhöll og fagnar því að loksins liggi fyrir endanleg niðurstaða og undirritaður samningur um uppbyggingu þjóðarleikvangs fyrir innanhússíþróttir í Laugardal. Um er að ræða mikilvæga innviðafjárfestingu sem mun styrkja aðstöðu til íþróttaiðkunar, stórviðburða og alþjóðlegrar keppni á komandi árum. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að öryggi íbúa Laugardals verði tryggt á framkvæmdatíma, sérstaklega skólabarna og iðkenda hjá Ármanni og Þrótti sem stunda daglegt starf í næsta nágrenni framkvæmdasvæðisins. Jafnframt er mikilvægt að góð upplýsingagjöf og samráð verði við notendur svæðisins á öllum stigum framkvæmdarinnar. Meirihlutinn fagnar því að fyrirhugað sé að innleiða bókunarkerfi sem tryggi fyrirsjáanleika og jafnræði í nýtingu aðstöðunnar, þannig að skólar og íþróttafélög verði ekki víkjandi notendur í Laugardalshöll eða Þjóðarhöll. Þá er mikilvægt að tryggt verði að mannvirkið nýtist sem best til íþrótta-, menningar- og samfélagsviðburða til hagsbóta fyrir íbúa og íþróttahreyfinguna í heild.
-
Fram fer kynning á Vetrargarðinum í Breiðholti. MIR25100002
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar meirihlutans þakka fyrir góða kynningu á framtíðarsýn um Vetrargarðinn í Breiðholti og þeim framkvæmdum sem farið var í í sumar. Kynningin sýnir hvernig verkefnið getur orðið mikilvægt lýðheilsuverkefni sem styður við markmið Reykjavíkurborgar um aukna hreyfingu, útivist og þátttöku í íþróttum fyrir alla aldurshópa. Sérstaklega er jákvætt að lögð sé áhersla á aðgengi barna, fjölskyldna og byrjenda að fjölbreyttri afþreyingu auk þess sem verkefnið getur styrkt hverfisbrag og samfélagslega samveru í Breiðholti. Meirihlutinn fagnar því að horft sé til heilsársnotkunar svæðisins með fjölbreyttum möguleikum til útiveru og hreyfingar og telur verkefnið geta orðið verðmæt viðbót við íþrótta- og frístundastarf í borginni
Fylgigögn
-
Lögð fram samantekt dags. 29. september 2026 á stöðu á tillögum starfshóps vegna aðstöðumála Glímufélagsins Ármanns. MIR26090020
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Samfylkingar um Nauthólsvík sbr. 32. fund íþrótta- og útilífsráðs 28. ágúst 2026. MIR26080019
Tillögunni er hafnað með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar gegn einu atkvæði Samfylkingar. Fulltrúar Miðflokksins og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillögu fulltrúa Samfylkingar er hafnað með vísan til þess að til stendur að fela menningar- og íþróttasviði að skoða framtíðarmöguleika og uppbyggingu Nauthólsvíkur og þeirrar starfsemi sem er þar í dag, t.d. fyrir Siglunes. Fyrirhugað er að nánari útfærsla þeirrar vinnu fari fram á næstu misserum og kann framkomin tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar að nýtast við þá vinnu.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar harmar að tillagan hafi verið felld, ekki síst vegna þess að á fundi ráðsins 11. september bókaði meirihlutinn sjálfur að mikilvægt væri að halda áfram að styrkja starfsemina í Nauthólsvík. Á sama fundi lagði meirihlutinn áherslu á að starfshópur um framtíðaraðstöðu Brokeyjar tæki til heildstæðrar skoðunar bláa útivistarsvæðið í borginni og hvernig strandsvæðin gætu þjónað fjölbreyttum hópi borgarbúa. Þar gleymdist þó alveg að taka Siglunes með í myndina, þrátt fyrir að þar hafi reykvísk börn lært að róa og sigla í áratugi. Tillagan fól ekki í sér nein útgjöld, heldur einungis mat á því hvað þurfi til að Siglunes geti tekið á móti fleiri börnum og lengur á hverju ári og hvernig starfsemin þar geti unnið með Ylströndinni, Brokey og öðrum á svæðinu. Við hljótum öll að vera sammála um að vilja gefa fleiri tækifæri til að kynnast sjónum og stunda siglingar og því er óskiljanlegt að meirihlutinn hafi ekki viljað stíga þetta litla skref.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Samfylkingar um stefnu og starfsreglur frístundaaksturs sbr. 33. fund íþrótta- og útilífsráðs 11. september 2026. MIR26090012
Tillögunni er hafnað með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar gegn einu atkvæði Samfylkingar. Fulltrúar Miðflokksins og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar er hafnað að svo stöddu. Ástæður þess eru fyrst og fremst þær að Reykjavíkurborg hefur þegar, í samvinnu við ÍBR, mótað tilmæli varðandi aksturinn. Þrátt fyrir slík tilmæli hefur framkvæmd aksturs verið ólík milli félaga. Stafar það m.a. af ólíkum aðstæðum, lengd milli frístundaheimila og íþróttamannvirkja, fjölda iðkenda og ólíkri fjárhagsstöðu félaga. Þar sem Reykjavíkurborg hefur ekki fjármagnað akstur félaganna að fullu heldur aðeins veitt stuðning að hluta hefur það verið á forræði félaganna að sjá um frekari útfærslu og hvort þau leggi á sérstakt viðbótargjald fyrir þjónustuna og þá fjárhæð þess. Reykjavíkurborg hefur ekki talið sér stætt af því að skylda félögin til að veita þjónustuna eða í hvaða mæli eða á hvaða verði það skuli gert þar sem fjármögnun hefur að stórum hluta til fallið á félögin sjálf. Meirihlutinn felur menningar- og íþróttasviði að rýna möguleika á að bæta núverandi fyrirkomulag frístundaaksturs með það að markmiði að samræma betur framkvæmd milli félaga.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar harmar að tillagan hafi ekki verið samþykkt. Svar sviðsins sjálfs frá 8. september kemst að sömu niðurstöðu og tillagan, að þarft sé að auka samstarf hagaðila til að lækka kostnað og samræma þjónustuna, svo hægt sé að halda úti faglegum frístundaakstri fyrir yngstu börnin í öllum hverfum borgarinnar.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi tillögu varðandi rekstur og umsjá á íþróttahúsinu Austurbergi 3:
Lagt er til að menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar verði falið að taka að nýju yfir rekstur íþróttamannvirkis að Austurbergi 3. Til samræmis verði menningar- og íþróttasviði falið að segja upp ósamræmanlegum skuldbindingum. Þá falli ennfremur úr gildi ákvörðun menningar- og íþróttaráðs um að ganga frá nýjum samningi milli Reykjavíkurborgar og Aþenu íþróttafélags, dags. 20. júní 2025 en ljóst er að sá samningur komst aldrei til framkvæmda. Í tengslum við framangreindar breytingar skal lögð áhersla á að tryggja að Aþena fái nægan fjölda æfingatíma og aðstöðu til að starfrækja og efla sína starfsemi á sviði íþrótta. Breytt fyrirkomulag á rekstri mannvirkisins eigi því ekki að hafa neikvæð áhrif á íþróttastarfsemi félagsins eða iðkendur þess. Lagt er til að Reykjavíkurborg yfirtaki þau ráðningarsambönd sem eru í gildi vegna starfsfólks sem hefur annast umsjón íþróttahússins að Austurbergi 3. Starfsfólk ætti því að halda kjörum sínum og réttindum að fullu.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26100001
Samþykkt með fimm atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar gegn einu atkvæði Miðflokksins. Fulltrúi Vinstrisins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar vill ítreka mikilvægi þess að áfram verði tryggt fjölbreytt íþróttastarf í efra Breiðholti, sem nær til ólíkra hópa barna og ungmenna í hverfinu. Tillagan var samþykkt á þeim forsendum að tryggja þurfi íþróttafélögum og iðkendum aðstöðu á jöfnum grunni.Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins furðar sig á ákvörðun meirihlutans að ákveða að Reykjavíkurborg verði falið að taka að nýju yfir rekstur íþróttamannvirkis að Austurbergi 3 og íþróttamiðstöðinni Klébergi, Kjalarnesi. Þessi ákvörðun er í hrópandi ósamræmi við þá stefnu sem Reykjavíkurborg hefur haft að leiðarljósi undanfarin ár, sem er að semja við íþróttafélög borgarinnar um rekstur íþróttamannvirkja. Ástæða þess að íþróttafélögin í Reykjavík hafa rekið íþróttamannvirkin er að þau hafa rekið þau með mun hagkvæmari hætti en Reykjavíkurborg hefur gert. Reykjavíkurborg er því ekki að hagræða í rekstri með þessari ákvörðun. Meirihlutinn segist hafa það að markmiði að efla íþróttastarf barna- og ungmenna í Efra Breiðholti í góðri samvinnu við þau félög sem þar eru með starfsemi. Þessi ákvörðun er ekki dæmi um það. Það er ástæða til þess að hafa miklar áhyggjur af starfsemi Aþenu í Efra Breiðholti í kjölfar þessarar ákvörðunar. Engu er líkar en að þessi ákvörðun sé tekin í hreinni óvild gangvart þeirri starfsemi sem Aþena sinnir í dag. Tryggja verði áframhaldandi starf Aþenu og lítur út fyrir að þessi ákvörðun sé ekki að gera það. Fulltrúi Miðflokksins harmar ákvörðun meirihlutans og leggst gegn henni og skorar á meirihlutann að endurskoða þessa ákvörðun.
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Vinstrisins lýsir vonbrigðum yfir að samskipti borgarinnar og Íþróttafélagsins Aþenu hafi endað í þeim hnút sem raun ber vitni. Fulltrúar félagsins, sem vakið hefur verðskuldaða athygli fyrir árangur sinn, brenna fyrir hagsmunum þess en ekki verður þó öðru haldið fram en að starfsmenn borgarinnar hafi unnið af heilindum í málinu og í samræmi við almennar reglur. Aðalatriðið hlýtur þó að vera að tryggja öflugt, fjölbreytt og aðgengilegt íþróttalíf í efra-Breiðholti á komandi misserum, með aðkomu sem flestra aðila.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi tillögu varðandi rekstur og umsjá á íþróttamiðstöðinni Klébergi:
Lagt er til að menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar verði falið að taka að nýju yfir rekstur á íþróttahúsi Klébergsskóla. Til samræmis verði menningar- og íþróttasviði falið að segja upp ósamræmanlegum skuldbindingum. Í tengslum við framangreindar breytingar skal lögð áhersla á að tryggja að Ungmennafélag Kjalnesinga fái nægan fjölda æfingatíma og aðstöðu til að starfrækja og efla sína starfsemi á sviði íþrótta. Breytt fyrirkomulag á rekstri mannvirkisins eigi því ekki að hafa neikvæð áhrif á íþróttastarfsemi félagsins eða iðkendur þess.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26100002
Samþykkt með fimm atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar gegn einu atkvæði Miðflokksins. Fulltrúi Vinstrisins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins furðar sig á ákvörðun meirihlutans að ákveða að Reykjavíkurborg verði falið að taka að nýju yfir rekstur íþróttamannvirkis að Austurbergi 3 og íþróttamiðstöðinni Klébergi, Kjalarnesi. Þessi ákvörðun er í hrópandi ósamræmi við þá stefnu sem Reykjavíkurborg hefur haft að leiðarljósi undanfarin ár, sem er að semja við íþróttafélög borgarinnar um rekstur íþróttamannvirkja. Ástæða þess að íþróttafélögin í Reykjavík hafa rekið íþróttamannvirkin er að þau hafa rekið þau með mun hagkvæmari hætti en Reykjavíkurborg hefur gert. Reykjavíkurborg er því ekki að hagræða í rekstri með þessari ákvörðun.
- kl. 10:45 víkur Margrét Rós Sigurjónsdóttir af fundi.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar fjármálastjóra MÍR við fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um íþróttafélög sbr. 33. fund íþrótta- og útilífsráðs 11. september 2026. MIR26090014
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 10:50.
Bjarni Guðjónsson Björn Gíslason
Albert Guðmundsson Stefán Pálsson
Lárus Blöndal Sigurðsson Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íþrótta- og útilífsráðs 02.10.26